Heimilispósturinn - 16.04.1951, Qupperneq 6
H. G. WELLS :
Dómurinn mikli
1.
Bru-a-a-a.
Ég hlustaði og gat ekki átt-
að mig.
Va-ra-ra-ra.
„Guð komi til,“ sagði ég og
var enn hálfsofandi. „Hvaða dé-
skotans gauragangur!“
Ra-ra-ra-ra-ra-ra-ra.
„Þetta er nóg,“ sagði ég, „til
þessa vekja —“ og snarþagnaði.
Hvar var ég?
Ta-rra-rara — hærra og
hærra.
„Það er annaðhvort einhver
ný uppfining —“
Túra-túra-túra! Ég fékk hellu
fyrir eyrun.
„Nei,“ sagði ég og brýndi
raustina til þess að heyra til
sjálfs mín. „Þetta er lúðurinn
mikli.“
Túú-rraa.
2.
Síðasti tónninn kippti mér
upp úr gröfinni eins og kræktri
lontu.
Ég sá legsteininn minn (lítil-
fjörlegur var hann; ég vildi, að
ég vissi, hver hefði búið hann
til), og gamli álmurinn og út-
sýnið til sjávarins hvarf eins
og í gufustróki. Og því næst allt
umhverfis mig — manngrúi,
sem enginn maður fengi tölu á
komið, þjóðir, tungur, konungs-
ríki, fólk — börn allra alda, á
hringsviði, er þandist um allan
geim. Og andspænis okkur, í há-
sæti, glampandi hvítu skýi, sat
Drottinn Guð og allar hersveitir
engla hans. Ég kannaðist við
Azreal af dökku yfirbragði hans
og Míkael af sverði hans, og
engillinn mikli, sem hafði þeytt
lúðurinn, hafði hann enn á lofti
til hálfs.
3.
„Rösklegt," sagði litli mað-
urinn við hliðina á mér, „mjög
rösklegt. Sérðu engilinn með
bókina?“
Hann ýmist beygði sig eða
teygði álkuna til þess að sjá
yfir og undir og á milli sáln-
anna, sem þyrptust allt í kring
um okkur. „Allir eru hérna,“
sagði hann, „hver og einn. Og
nú fáum við að vita —“
„Þarna er Darvín,“ sagði hann
og tók snögglega annað tal.
„Hann fær fyrir .... Og þarna,
sérðu, þessi stóri, þóttalegi mað-
ur, sem er að reyna að vekja
athygli Drottins Guðs, það er
hertoginn. En það er mesti
fjöldi, sem maður þekkir ekki.
0, þarna er Priggles, útgef-
andinn. Mér hefur oft leikið
forvitni á að vita um hagnað
útgefenda. Priggles var snjall
náungi, — en nú munum við
fá að vita, — jafnvel um hann.
Ég fæ að heyra það allt. Ég
fæ mestan hlutann af skemmt-
uninni áður en — Stafurinn
minn er S.“
Hann saug upp í sig.
„Sögufrægt fólk líka. Skoí
Þetta er Hinrik áttundi. Þar
4
HEIMILISPÓSTURINN