Heimilispósturinn - 16.04.1951, Síða 7
Cary Grant, Shirley Temple og Hyrna Loy.
verður eitthvað að heyra. Svei-
attan! Hann er af Tudor-kyn-
inu.“
Hann lækkaði röddina. „Sérðu
náungann þarna, beint fyrir
framan okkur, allur kafloðinn
í framan. Frumaldarmaður, skil-
urðu. Og þessi þarna —“
En ég sinnti honum ekki, því
að ég var að horfa á Drottin
Guð.
4.
„Er þetta allt og sumt?“
spurði Drottinn Guð.
Engillinn við bókina, — hún
var í óteljandi bindum, rétt eins
og bókaskráin í Brezka safninu
— engillinn leit á okkur og virt-
ist telja okkur í sömu andrá.
„Þetta er allt,“ sagði hann
og bætti við: „Þetta var, ó, Guð,
mjög lítil jarðstjarna.“
Augu Guðs virtu okkur fyrir
sér.
„Látum oss taka til starfa,“
sagði Drottinn Guð.
5.
Engillinn opnaði bókina og
nefndi nafn. Það var nafn með
fjölda af a-um, og bergmálið
af því barst til okkar aftur frá
yztu endimörkum geimsins. Ég
heyrði það ekki greinilega, því
að litli maðurinn við hliðina á
mér sagði snöggt: „Hver er
þetta?“ Mér heyrðist það vera
„Ahab“, eða eitthvað í þá átt-
ina, en ekki gat það verið hann
Ahab í Ritningunni.
Samstundis lyftist lítill, dökk-
leitur maður upp á skýbólstur
rétt við fótskör Guðs. Þetta var
sperrt mannkerti, klæddur
skrautlegum klæðum, útlend-
ingslegum, og með kórónu á
höfði. Hann stóð með kross-
lagðar hendur og hleypti brún-
um.
HEIMILISPOSTURINN
5