Heimilispósturinn - 16.04.1951, Blaðsíða 11
FRANK RASKY:
• Reimleikar •
„Ef þér verðiö var við reimleika,
þá látið oss vita. Vér óskum eftir
jrásögnum af hverskonar fyrirbær-
um, sem ekki verða skýrð með þekkt-
um náttúrulögmálum".
Þegar fréttastofan Associated
Press birti þessa auglýsingu í fjölda
amerískra blaða fyrir skömmu, undr-
aðist hinn þekkti eðlisfræðingur og
draugaveiðimaður Richard C. Darn-
ell, undirtektir fólks.
Ef trúa má frásögninni, er mikið
um draugagang í Ameríku um þess-
ar mundir. Sjónarvottar eru reiðu-
búnir að sverja, að þeir hafi séð alls-
konar vofur og drauga og heyrt þá
veina og kveina. Þeir hafa séð eða
heyrt vofur opna dyr og þramma upp
og niður stiga. Þeir hafa séð haus-
lausa drauga klóra á veggi og krota
á spjöld og velta stólum og rúmum
um koll. Og þeir hafa verið klipn-
ir af þvölum draugskrumlum.
Þótt mörgum kunni að þykja slík-
ar frásagnir harla ótrúlegar, telur
Darnell fyrirbrigðin þess verð, að
þau séu rannsökuð á vísindalegan
hátt.
„Fólk, sem heyrir sagt frá dular-
fullum fyrirbrigðum, skiptist oftast
í tvo hópa,“ segir hann. „Annar hóp-
urinn — sem er skipaður ofsatrúar-
mönnum og kreddufólki — er of auð-
trúa. Hinn hópurinn — flokkur hinna
efagjörnu — hæðist að fyrirbrigð-
unum og telur þau hégiljur einar og
hindurvitni. Ég lít á fyrirbrigðin með
hlutlausum augum vísindamannsins,
sem er ævinlega reiðubúinn að rann-
saka öll sönnunargögn."
1 þessu augnamiði stofnaði Darn-
ell fyrir tveim árum félag til rann-
sóknar á dulrænum fyrirbrigðum. Að
félag þetta er ekki skipað eintómum
hjátrúarseggjum má marka af því,
að 29% félagsmanna eru doktorar að
nafnbót.
Enda þótt félagið rannsaki aðal-
lega fjarhrif og skyggnigáfu, hefur
það líka fengizt allmikið við rann-
sóknir á reimleikum eða drauga-
gangi. 1 slíkum tilfellum er um að
ræða kynleg hljóð eða hávaða, hús-
gögn eru færð úr stað og leirtau
brotið, og allt gerizt þetta á óskilj-
anlegan hátt og án þes að fólk geti
gert sér grein fyrir orsökinni.
Gott dæmi um þetta er fyrirbrigði,
sem frú Sylvia Y., í Logansport í
Indianafylki, skýrði frá: „Reimleik-
arnir í húsinu minu hafa lýst sér
þannig:
1. Fjöðrunum í rúmdýnunni er ýtt
upp og niður eins og einhver lægi
undir rúminu.
2. Kona í ljósrauðum kjól gekk í
gegnum herbergið mitt og hvarf.
3. Kona með fjóra fætur lá við
höfðagaflinn á rúminu mínu.
4. Ég sá alklæddan, en höfuðlaus-
an mann standa niðri í anddyrinu.
Hann gekk tvö skref í áttina til
kjallarastigans, en hvarf siðan. Hver
er skýring yðar á þessu?“
Ungfrú Rose S. frá Massashusetts
skýrði félaginu frá svipuðum fyrir-
brigðum. Faðir hennar hafði tekið á
leigu gamalt hús fyrir nokkrum ár-
»m. Þegar hann sagði einum af kunn-
HEIMILISPÓSTURINN
9