Heimilispósturinn - 16.04.1951, Síða 29
Fiskæta-sálmur
eftir Hallgrím Pétursson.
Afbragðs matur er ísan feit,
ef hún er bæði fersk og heit
eoðin í sjávar blandi;
líka prísa. eg lúðu raf,
lax og silungur ber þó af
hverskyns fisk hér á landi;
langan svangan
maga seður,
soltna gleður,
satt ég greini,
en úldin skatan er iðra reynir.
Morkinn hákarl, sem matar kníf,
margra gerir að krenkja líf,
ríkismenn oft það reyna;
um háfinn hugsa húskar meir,
hann í eldinum steikja þeir,
brjósk er í staðinn beina;
hlýrinn rýrinn,
halda menn
af honum renni
hræðileg feiti;
rauðmaginn bezti rétturinn heiti.
Karfinn feitur ber fínan smekk,
fáum er spáný keilan þekk,
ufsinn er alls á milli;
þyrsklingur sá er í þaranum snýst
þrefaldur út úr roðinu brýzt,
frá ég hann margan fylli;
þorskinn roskinn,
rýran, magran,
rétt ófagran
ráð er bezta:
að bleyta í sýru á borð fyrir presta.
kattarins og hinnar blindu slöngu.
Þegar Bowman sá sér færi, stökk
hann upp á vaskinn og horfði þaðan
á aðfarirnar.
Átökin voru löng og hörð, en þeim
lauk svo, að slangan lá dauð á gólf-
inu og kötturinn kraminn til bana
í hringuðum búk hennar.
Klara var dauð. En nú skildi Bow-
man, hversvegna hún hafði lagt til
atlögu við slíkan óvin og hversvegna
hún gat ekki orðið undir í átökun-
um — undir vaskinum kúrðu þrir
litlir kettlingar. Hann tók þá upp
og hraðaði sér með þá til skips-
jómfrúarinnar. A
Belkningsdæiuið á bls. 19.
D=7, það er gefið. 7 margfaldað
með Ö er tala, sem endar á Ö (5.
lína). Það er fljótséð, að Ö hlýtur að
vera 5 (5x7=35). F er minna en Ö
(sbr. 5. og 6. 1.), annanðhvort 3 eða
4, eftir því hvort 1 eða 2 hafa verið
geymdir frá dálkinum á undan. R er
lægri tala en F (en þó hvorki 0 né
1), þar sem 6 tölustafir eru í 3. 1., en
ekki nema 5 í 4. 1., þar sem marg-
faldað er með R. 4. lína sýnir, að R
sinnum 7 endar á F, en bæði R og
F eru lægri en 5, og R lægra en F,
eins og fyrr segir. Ef þær tölur, sem
koma til greina, eru prófaðar og
margfaldaðar með 7, er fljótséð, að
R er=2, F=4, aðrar tölur eiga ekki
við. Margfaldarinn Ö R F er því
=524
Við byrjum þá að margfalda.
4x7=28. U er því = 8 (3. 1.). Tveir
síðustu tölustafirnir í 3. 1. eru R U
= 28, og það getur ekki komið út,
nema M sé = 0. Þá eru sex tölur
fengnar. Skal þetta ekki rakið leng-
ur, en með dálítilli umhugsun er auð-
velt að finna hinar tölurnar.
En ef einhver skyldi gefast upp,
er ráðlegt að skrifa ,,lykilinn“ upp,
það sem kunnugt er orðið af honum:
0123456789
M - R - F Ö - D U -
Þarf þá litla getspeki að spá í eyð-
urnar og prófa, hvort rétt er.
Lausn á tölugátum á bls. 19.
2.985.984.
Káðningar á gátum á bls. 19.
1. Tog. Heimska dýrið er sauðkind-
in. Kónga boðin eru lög. Sbr.
málsháttinn: Svo er lög sem hafa
tog. Gátan er eftir Sveinbjörn
Egilsson.
2. Dagurinn í dag.
3. Stjarna. Þessar tvær gátur eru
eftir Jón sýslumann Espólin.
4. Uxarnir hétu Skuggi og Litur.
HEIMILISPÓSTURINN
27