Heimilispósturinn - 16.04.1951, Page 34
HEiMILIS
PósTliRINN
Kvikniyndaopnan
STJÖRNUBÍÓ :
Það hlaut að verða þ ú
(Xt had to be you)
(Sjá mynd á bls. 31 hér á eftir).
Aðalhlutverk leika: Ginger Rogers
og Cornel Wilde. — Leikstjóri: Don
Hartman. — Myndin er gerð af
Columbia Pictures.
Viktoría Stafford er af vellauðugu fólki
komin og á í vændum að erfa mikinn
auð. En ekki er öll lífshamingja fengin
með fénu, Viktoría á í töluverðu basli með
að velja sér maka. Hún hefur sem sé
gengið upp að altarinu til heilagrar vígslu
með þrem mönnum, en alltaf gefizt upp
á að halda lengra, svo að aldrei hefur
neitt orðið úr hjónavigslunni, og hin fyrr-
verandi mannsefni hafa orðið að láta sér
þetta lynda. _
Sem sténdur er hún hðlBUffairr Oliver
Harrington, en er annars búin að fá nóg
af þessu hverflyndi sinu sjálf og vill finna
sér eitthvert ráð til að geta tekið örugga
og óhagganlega ákvörðun fyrirfram í
þetta sinn. Hún heldur því til Maine-
fylkis og ætlar að dveljast þar um mán-
aðartíma til að hugsa sig um og átta sig
betur.
Eftir þennan reynslutíma er hún sann-
færð um, að hún elski Oliver, og heldur
því af stað aftur heim til New York,
þar sem brúðkaup þeirra á fram að fara.
Á leiðinni sefur hún í svefnvagni, en hana
dreymir illa. Henni þykir hún vera að
giftast Oliver, en þá kemur myndarlegur
Indíáni og truflar athöfnina. Við þetta
vaknar hún öll í einu svitabaði.
Henni verður þá heldur en ekki bilt
við, því í rekkjunni fyrir ofan hana í
svefnvagninum sér hún mokkasinur (Ind-
íánaskó). Indíáninn segir henni, að hann
hafi stokkið lifandi út úr draumi hennar
eins og Pallas Aþena alvopnuð forðum úr
úr höfði Seifs.
Þeirn lendir þarna saman nokkuð
harkalega, og þvi lyktar með þvi, að
Viktoría flýr af hólmi og heidur heim.
Indíáninn er þó ekki af baki dottinn, held-
ur klæðist venjulegum borgarabúningi og
telst vera verzlunarmaður. Hann kemur
heim til Viktoríu, en hún vísar honum inn
til foreldra sinna og kynnir hann sem
George McCassin. Segist hún hafa kynnzt
honum í Maine og vinni hann við að vera
fyrirmynd fyrir myndhöggvara.
Þrátt fyrir ágengni Indíánans heldur
Viktoría fast við þá ákvörðun sína að gift-
ast Oliver Harrington.
Sama kvöld er samkvæmi heima hjá
henni, og eru þar m. a. sýndar myndir
frá æsku hennar. Á einni þeirra sést hún
kyssa dreng í Indiánabúningi.
George kemur þá með skýringu á þessu
draumarugli hennar um Indíána. Auðvitað
er það sprottið af þessum atburði úr æsku
hennar, segir hann. Hann hefur festst í
undirvitund hennar og kemur nú fram í
draumum. Hún kemst að því að George
heitir i raun og veru Johnny Blaine og
er slökkviliðsmaður að atvinnu. Hún fellir
ástarhug til hans, en hann neitar að kvæn-
ast stúlku með fortíð hennar. Þar með
sýnist úti um þann drauminn.
Hún á ekki annars úrkosta en giftast
unnusta sinum, og hún er tilbúin til að
segja „já“-ið i þetta sinn, þegar McCassin
tilkynnir að eldur sé laus.
Johnny er meðal þeirra slökkviliðs-
manna, sem svara kallinu og koma. Hann
kemur þjótandi inn, þrífur brúðina til að
bjarga henni úr „eldinum" og heldur með
hana, alls hugar feginn, burt frá Oliver.
Það þarf ekki að taka það fram, hvað
síðan gerðist hjá þeim Viktoriu og
Johnny . . .
GAMLA BÍÓ :
Mærin fá Qrleans
(Joan of Arc)
Amerísk stórmynd í eðlilegum litum
frá RKO Radio Pictures, gerð undir
stjórn Victor Flemings. — Aðalhlut-
verkin leika: Ingrid Bergman, Jose
Ferrer, Francis L. Sullivan, J. Carol
Naish og Ward Bond.
Það má hiklaust telja það einn merk-
asta kvikmyndaviðburð vetrarins, þegar
Gamla Bíó byrjar sýningar á kvikmynd
þessari. Því „Mærin frá Orleans" er tal-
in marka tímamót í þróunarsögu kvik-
myndalistarinnar, og er aðeins hægt að
jafna henni við myndina „Á hverfanda
hveli“ hvað mikilfengleik og vandaða gerð
snertir. Söguna um frönsku bóndadóttur-
ina, sem varð frægasta kvenhetja ver-
aldarsögunnar, þekkir hvert mannsbarn.
Kvikmyndin er byggð á leikritinu „Joan
of Lorraine" eftir Maxwell Anderson,
hinn þekkta bandaríska rithöfund. Kvik-
myndin er gerð af kvikmyndaframleið-
andanum Walter Wanger, og undir stjórn
Victor Flemings, en hann sá einnig uin
töku myndarinnar „Á hverfanda hveli“ á
sinum tíma.
Hin ókrýnda drottning kvikmyndanna,
Ingrid Bergman, leikur aðalhlutverkið,
en áður hafði hún leikið það á Broadway
leikhúsi við mikla hrifningu. Þegar hún
hafði lokið leik sínum í myndinni, fór
hún í hina örlagaríku Italíuferð sína, sem
alkunn varð. Margir kunnir ágætisleikar-
ar leika með henni í myndinni, og enn-
fremur nýr leikari, Jose Ferrer, sem mik-
ið orð fer af.
TJARNARBlÓ:
KDN-TIKI
(Sjá og bls. 25—28 hér að framan).
Kvikmyndin Kon-Tiki fjallar um eitt
einstæðasta ferðalag, sem nokkurntíma
hefur verið farið.
Norðmaðurinn Thor Heyerdahl siglir,
ásamt félögum sínum, yfir Kyrrahafið á
fleka útbúnum úr balsatrjám, 8000 sjó-
mílna leið. — Þeir félagar lögðu af stað
frá Perú og tóku land á Pólynesku eyj-
unum eftir 101 dags siglingu, eða nánar
tiltekið frá 28. april 1947 til 7. ágúst s. á.
För þessi var farin til þess að færa
sönnur á, að slikar siglingar sem þessar
hefðu átt sér stað fyrrum, á milli megin-
lands Ameríku og eyjanna i Kyrrahafi.
— Leiðangurinn var skýrður Kon-Tiki
eftir sólguði Perúmanna.
Þeir félagar gáfu út bók um ferð sína
og hefur hún komið út á 19 tungumálum
og allsstaðar orðið metsölubók. Hér á landi
kom hún út s.l. haust og seldist upp á
einni vik.u.
Mikill vísindalegur árangur náðist með
þessari för, en þar að auki var ferðalag-
ið ákaflega spennandi, frá upphafi til
enda. -— Lýsir kvikmyndin því ákaflega
vel og hefur hún notið mikilla vinsælda
allsstaðar, þar sem hún hefur verið sýnd.
— Þeir félagar þurftu að yfirstíga erfið-
leika, barátta þeirra við storma og sjóa,
dýr hafsins, fellibylji og kóralrif, er ævin-
týri líkust, en þeir gengu um síðir með
sigur af hólmi — og urðu heimsfrægir
menn.
Tjarnarbíó mun sýna myndina á pásk-
unum, og er ekki að efa, að hún muni
verða vel sótt.