Stefnir - 01.02.1979, Síða 9

Stefnir - 01.02.1979, Síða 9
BIRGIR ÍSL. GUNNARSSON: Hugleiðing við lestur merkrar bókar * Ritstjóri Stefnis hefur farið þess á leit við mig, að ég ritaði umsögn um bók Ólafs Björnssonar „Frjáls- hyggja og alræðishyggja". Þess var óskað, að skrifað væri frá sjónarhóli þess, sem hefur verið þátttakandi í almennu stjórnmálastarfi um nokk- urt árabil og að umsögnin beindist þá ekki sízt að þeim köflum bókar- innar, sem fjalla um íslenzk stjórn- mál. Mér er það bæði ljúft og skylt að verða við þessum tilmælum, en tek fram, að greinarkorn þetta verð- ur fyrst og fremst nokkrar hugleið- ingar í tilefni af lestri bókarinnar. í formála að bókinni getur höf- undur þess, að það kynni að lyfta stjórnmálaumræðum hér á landi á nokkru hærra stig en nú tíðkast, að ræða nokkuð merkingu þeirra orða, sem mest eru notuð sem vígorð á vettvangi stjórnmálanna. I samræmi við það er nokkrum hluta bókar- innar varið til að gera grein fyrir ýmsum hugtökum, sem mikið ber á góma og hver hefur upp eftir öðrum í hinni daglegu stjórnmálaumræðu. Er mikill fengur að þessum skilgrein- ingum, sem settar eru fram á ljósan og skýran hátt. Sé litið á bókina í heild er það eitt megineinkenni hennar, hve glögg og skýr hún er. Það er mjög fáum gefið að fjalla í rituðu máli um hag- fræðileg efni á þann hátt, að auð- skilið er hverjum manni. Þetta tekst Ólafur Björnssyni í þessari bók sinni eins og reyndar oft áður. Þessi bók er því kærkomin á íslenzkan markað og er þess að vænta að almenningur notfæri sér það góða tækifæri, sem bókin gefur, til að fræðast um ýmis grundvallaratriði, sem stjórnmála- baráttan snýst um. Öllum þeim, sem við stjórnmál fást, ætti bókin að vera skyldulesning. Þó að höfundur sé prófessor í hag- fræði fjallar bókin um víðara svið en hagfræði í þrengri merkingu. Hún er skilgreining á stjórnmálastefnum, sem taka mið af fleiru en hagkerfinu einu saman. I formála segir höfund- ur: „Með því að leggja megináherzlu á ágreininginn um það, hvort hag- kerfið eigi að byggja á einkaframtaki eða opinberum áætlunarbúskap, þeg- ar mismunandi stjórnmálastefnur eru skilgreindar, er að mínum dómi ein- blínt of mikið á hina efnahagslegu hlið þjóðfélagsins og eignarréttar- skipulagið. Það sem meginmáli skipt- ir er það, hvort einstaklingurinn fái sjálfur að setja sér sín markmið, ekki eingöngu á sviði efnahagsmála, held- ur og á öðrum sviðum, og fram- fylgja þeim innan þeirra takmarka, sem setja verður athafnafrelsi manna vegna tillits til samborgara þeirra, eða hvort það er talið hlutverk ríkis- valdsins að ákveða þessi markmið og knýja borgarana til þess að fram- fylgja þeim“. Hér er hreyft mjög mikilvægu atriði, sem snertir mjög stefnumótun Sjálfstæðisflokksins og nánari skil- greiningu og útfærslu á því, sem við flokksmenn í daglegu tali nefnum Sjálfstæðisstefnuna. Allt er breyting- um háð og þess vegna er mikil nauð- syn á því að Sjálfstæðismenn endur- meti grundvallarstefnu sína með ofangreind sjónarmið að leiðarljósi. Eldri skilgreiningar á grundvallar- stefnu Sjálfstæðisflokksins mótast e. t. v. um of af því, hvernig hag- kerfið eigi að vera, en ekki er litið nægilega til annarra þátta þjóðlífs- ins, þar sem frelsi einstaklinganna 9

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.