Stefnir - 01.02.1979, Qupperneq 15

Stefnir - 01.02.1979, Qupperneq 15
HREINN LOFTSSON: Leitum nýrra lausna Auknar skattaálögur virðast vera óhjákvæmilegur fylgifiskur svo- nefndra „vinstri“ stjórna. Það fer því ekki hjá því, að ungt fólk spyrji sjálft sig hversvegna „vinstri“ menn ganga lengst í skattheimtu og öðrum þeim aðgerðum sem miða að því að skerða frelsi einstaklinganna? Svarið er vitaskuld fólgið í þeim vilja „vinstri" manna að leysa öll vanda- mál samfélagsins eftir „félagslegum" leiðum, en það þýðir að þeir vilja auka opinbera þjónustu. Aukin opin- ber þjónusta felur í sér aukið stofn- anaveldi sem aftur krefst aukinnar skattheimtu, en þar stendur einmitt hnífurinn í kúnni því ekki er enda- laust hægt að auka á skattheimtuna. Allir sjá hættuna sem lýðræðinu stafar af þessari þróun og spurningin um nýjar leiðir gerist æ áleitnari. Þegar svo er komið máli, að menn vilja draga úr útþenslu ríkisbáknsins, fer ekki hjá því að spurt sé um lausn- ir frjálshyggjunnar. En þar er ungu fólki ótal ljón í veginum um svör. Jarmið um „félagslegar“ úrbætur og lausnir er býsna lífseigt í þjóðfélagi okkar. „Vinstri“ sinnaðir kennarar eru ófeimnir í trúboði sínu fyrir sósíalisma, eða svokölluðu „forræði fólksins á öllum sviðum þjóðfélags- ins“. Róttækum bókmenntum er miskunnarlaust haldið að ungu fólki og skrif um þjóðfélags- og menning- armál, í blöðum og tímaritum, eru nær einokuð af „vinstri" sinnuðu menntafólki. Aðgengileg rit um frjálshyggju hefur skort mjög og talsmenn þeirrar stefnu hafa ekki verið nægilega ötul- ir í kynningarstarfi sínu. Bók Ólafs Björnssonar Frjálshyggja og alræðis- hyggja bætir þarna úr brýnni þörf og er útkoma hennar því ákaflega mikið gleðiefni öllum áhugamönnum um stjórnmál. Loksins er komið rit sem sýnir og sannar að fylgismenn frjálshyggjunnar eiga hugmynda- fræði, þótt sumt ungt fólk hafi raun- ar efast um það vegna tilrauna á- kveðinna kennara til að þagga hana niður. Framhjá hugmyndafræði frjáls- hyggjunnar verður ekki gengið í skólakerfinu í framtíðinni. Frjálshyggja og alræðishyggja er skrifuð á skýru og læsilegu máli, auk þess sem höfundi hefur vel tekist að aðlaga efnið íslenskum aðstæðum. í þessu er fólgið mesta gildi hennar sem fræðslurits fyrir almenning. Þó er í bókinni nokkuð um endurtekn- ingar, sem telja verður galla á henni. Þar á ég til dæmis við útskýringu á markaðnum sem forsendu lýðræðis- ins, sem rekja má til ákefðar höfund- arins við að koma öllum röksemdum sínum á framfæri. Það efni tel ég hinsvegar eitt hið þýðingarmesta í bókinni. I upphafi þessa greinarkorns er því haldið fram að ungt fólk, sem er orðið þreytt á útþenslu ríkis- báknsins og afskiptum þess af mál- efnum einstaklinganna, spyrji um leiðir frjálshyggjunnar. í bók Ólafs kemur fram það grundvallar svar, að stuðningsmenn frjálshyggjunnar (liberitarianism) telja einstaklings- frelsið bestu leiðina til framtíðarinn- ar, en stuðningsmenn alræðishyggj- unnar (totalitarianism) velja leið valdsins. Þeir vilja takmarka frelsi einstaklinganna og efla þess í stað vald ákveðinnar miðstjórnar. Ólafur skiptir andstæðum stjórn- málanna í þessar tvær höfuðstefnur, frjálshyggju og alræðishyggju. Hann telur að þau öfl hafi tekist á allt frá því í fornöld og átökin hafi síðan 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.