Stefnir - 01.02.1979, Page 19

Stefnir - 01.02.1979, Page 19
BALDUR GUÐLAUGSSON: Frjálshyggjumenn allra landa, sameinist! í hinni ágætu bók sinni „Frjáls- hyggja og alræðishyggja“ minnir pró- tessor Ólafur Björnsson lesendur sína á það, að mannkynið hafi lengst af sögu sinnar búið við alræði í einni eða annarri mynd. Hann áætlar að nú búi um helmingur mannkyns við alræðisstjórnarfar af einhverju tagi, þar af lúti flestir kommúnistastjórn- um, en einnig komi til aðskiljanlegar fasistastjórnir og herforingjastjórnir. Ólafur segir, að það hljóti því að vera einhver áleitnasta spurning sam- tímans hvort þau þjóðfélög, sem byggja á lýðræði og einstaklings- frelsi, þ. e. aðhyllast frjálshyggju, séu aðeins stundarfyrirbrigði í sögu mannkynsins, þannig að skuggar al- ræðisins komi á ný til með að teygja sig yfir gjörvallan heiminn og al- ræðisstjórn verði aftur ríkjandi svo sem verið hafi frá örófi alda og fram undir lok 18. aldar. í bókinni gerir Ólafur ítarlega og ágætlega grein fyrir frjálshyggju og alræðishyggju, en þar er um að ræða tvenns konar lífsskoðanir eða við- horf til þess, hvaða tilgangi líf ein- staklinga og félagsleg samskipti þeirra þjóni, sem tekist hafa á allt frá því sögur herma. Átökin milli frjálshyggju og al- ræðishyggju segja ekki aðeins til sín á innanlandsvettvangi einstakra ríkja, þau setja einnig svip sinn á sam- skipti og samvinnu ríkja. Ólafur bendir á, að hið breiða hugmynda- fræðilega bil milli alræðis- og lýð- ræðisríkja hafi útilokað að Samein- uðu þjóðirnar gætu tryggt öryggi og frið. Hann segir að það hafi umfram allt verið hinn hugmyndafræðilegi ágreiningur við sósíalísku alræðis- ríkin í Austur-Evrópu sem leitt hafi til stofnunar Atlantshafsbandalags- ins árið 1949. Ennfremur segir Ólaf- ur, að ef ekki væri hinum hugmynda- fræðilega ágreiningi til að dreifa, væri engin ástæða til þess að nú- verandi hernaðarbandalög væru starf- andi. Þrátt fyrir þetta telur Ólafur, að hina hugmyndafræðilegu hlið utanríkis- og varnarmála hafi fremur lítið borið á góma í umræðum hér á landi, þótt þessi mál hafi stöðugt verið á dagskrá frá því Island gerðist aðili að Atlantshafsbandalaginu fyrir 30 árum. Eg tel að vísu að Ólafur geri hlut hugmyndafræðinnar helsti stóran að því er varðar tildrögin að stofnun Atlantshafsbandalagsins. Mér virðist sem þar hafi ótti við útþenslu- og árásarstefnu hins sovézku stórveldis vegið þyngst, þ. e. ótti við að Sovét- ríkin legðu ríki Vestur-Evrópu undir sig eitt af öðru. Gegn slíkri innlim- unarstefnu og til varnar sjálfstæði sínu ákváðu stofnríki Atlantshafs- bandalagsins að snúast og hefði væntanlega engu skipt í því sam- bandi hvert þjóðskipulag ríkti í Sovétríkjunum. Það er svo önnur saga, að stefna Sovétríkjanna hefði væntanlega ekki verið sú sem raun bar vitni og viðbrögð vestrænna ríkja að sama skapi ekki jafn einörð og þau reyndust verða nema af því að í Sovétríkjunum réði sósíalísk al- ræðishyggja ríkjum. Því stofnríki At- lantshafsbandalagsins voru „stað- ráðin í því að varðveita frelsi þjóða sinna, sameiginlega arfleifð þeirra og menningu, er hvíla á meginreglum lýðræðis, einstaklingsfrelsis, lögum og rétti“, eins og í inngangsorðum Norður-Atlantshafssamningsins segir. Og á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun Atlantshafsbandalagsins hef- ur hinn hugmyndafræðilegi ágrein- 19 L

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.