Stefnir - 01.02.1979, Blaðsíða 26

Stefnir - 01.02.1979, Blaðsíða 26
ferðarhagfræði er spurningin um hvernig koma ætti hlutunum fyrir í efnahagskerfinu. Raunar er það þetta mat á því sem ætti að vera, sem gerir velferðarhagfræðina frábrugðna hefð- bundnari greinum hagfræðinnar þar sem fengist er við greiningu á því sem er eða verður við vissar breyt- ingar eða forsendur. Það er augljóst að við eitthvað ákveðið verður að miða, þegar metið er, hvernig tiltekin atriði ættu að vera. Gjarnan er miðað við mæli- kvarða ítalans Pareto í þessu sam- bandi, en hann kom fyrstur með þann mælikvarða á breytingar frá tilteknu ástandi að nýtt ástand tæki hinu eldra fram, ef hagur a. m. k. eins aðila hefði batnað frá fyrra á- standi án þess að hagur nokkurs annars hefði rýrnað. Þessi mæli- kvarði hefur sína galla, e. t. v. fyrst og fremst þann, að hann tekur ekki tillit til þess, hvort upphaflegt á- stand er til að byrja með til fyrir- myndar. En engu að síður er fróðlegt að vita á hvern hátt markaðskerfið stenst þessa viðmiðun. Bandaríski hagfræðingurinn Tjall- ing Koopmans, sem hlaut nóbels- verðlaunin í hagfræði árið 1975, hefur rannsakað sambandið milli svo- nefnds samkeppnisjafnvægis (compe- titive equilibrium) í markaðskerfinu og beztunar í skilningi Paretos. Koopmans hefur leitt rök fyrir því, að við vissar gefnar aðstæður sé jafn- vægi sem á er komið fyrir tilstilli samkeppni í markaðskerfinu jafnan bezt í skilningi Paretos. Hann hefur líka snúið þessu við og sannað að við vissar aðstæður megi ná öllum Pareto-beztu lausnum fyrir milli- göngu samkeppnisjafnvægis á mark- aði. Utfærsla Koopmans á þessum atr- iðum er vitaskuld háfræðileg og byggir á þróaðri stærðfræði, en hér er um mikilvægar uppgötvanir að ræða, sem renna fræðilegum stoðum undir það sem margra hefur lengi grunað. Og það styður auðvitað lausnir markaðarins, að þær skuli standast það próf, sem enn er skást af því, sem velferðarhagfræðin býður upp á, þótt ófullkomið sé að ýmsu leyti. Ekki er mér kunnugt um hvort miðstjórnarkerfið stenst þetta próf 26 en út af fyrir sig skiptir það minna máli, þar sem miðstjórn í skjóli al- ræðis, er af flestum talin óæskilegri vegna þess skorts á lýðræði, sem þar er, jafnvel þótt hún jafnaðist á við markaðskerfið að öllu öðru leyti. Annar vandi, sem við er að fást, þegar fjallað er um velferðarhag- fræði, og valdið hefur hagfræðingum miklum heilabrotum um langan ald- ur er á hvern hátt mæla megi þá fullnægingu eða hamingju, sem neyzla þess veldur sem framleitt er. Ólafur Björnsson kemur lítillega inn á þetta í bók sinni. Það gefur auga leið, að ef koma mætti máli á þessi atriði með ein- hverjum hætti, myndu skapast nýir möguleikar til þess að auka þarfa- fullnæginguna með breytingum á samsetningu framleiðslunnar, dreif- ingu hennar eða verðlagningu væri þess þörf. Við þetta hefðu því skap- ast nýjar forsendur fyrir skipulagn- ingu efnahagsstarfseminnar sem gera myndu alla hagstjórn ólíkt auðveld- ari. í stuttu máli sagt er ógerningur að búa til slíka velferðarvísitölu, eins og Ólafur segir frá í bók sinni. Jafnvel þótt hægt væri að koma upp mælikvarða á hamingju eða velferð eins einstaklings sem mældi ham- ingju hans á hlutlægan hátt líkt og hitamælir, væri óframkvæmanlegt að beita honum til að mæla velferð allrar þjóðarinnar nema farið væri á mis við nokkrar lýðræðislegar grund- vallarforsendur eins og þá að enginn einstaklingur væri einræðisherra og velferðarmælikvarði hans látinn gilda fyrir alla aðra. Þetta hefur Kenneth Arrow, bandaríski nóbelsverðlauna- hagfræðingurinn, sýnt fram á í riti. sem Ólafur Björnsson vitnar m. a. til. Hér hefur aðeins verið drepið á tvö þeirra atriða, sem Ólafur tekur til meðferðar og þó aðeins verið þreifað á yfirborði þeirra. Ástæðu- laust er að fjalla um fleira af því, sem kemur upp í hugann við lestur bókar Ólafs. Bókin er ákaflega auð- skilin og óþarft að rekja það sem í henni stendur heldur er rétt að hvetja alla þá, sem áhuga hafa á þessum málum, til þess að lesa sjálfa bókina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.