Stefnir - 01.02.1979, Blaðsíða 32

Stefnir - 01.02.1979, Blaðsíða 32
óstjórn þeirra er að koma í ljós og láta aðra um að leysa vandann. Læri- feðurnir í Alþýðubandalaginu leggja aukna skatta á þjóðina til að borga fyrir óstjórn sína, en vinstri menn- irnir í Háskólanum lærisveinarnir leita á náðir ríkisins með ósk um frekari fjárframlg. Munurinn er sá að óstjórn Alþýðubandalagsins í rík- isstjórn getur staðið lengur án þess að hún komi í ljós. Urræðaleysi, stöðnun og skaðleg áhrif vinstri manna á hagsmunamál stúdenta þarf að taka enda, það er brýnasta hagsmunamál stúdenta. Æskan á leikinn. Sjálfstæðismenn þurfa ekki kvíða því að þeir eigi ekki fylgi að fagna á meðal æskunnar. Sjálfstæðisstefnan hefur jafnan átt verulegan hljóm- grunn á meðal æskufólks. Það er fersk stefna, síung stefna, sem mótar afstöðu til vandamálanna á grund- velli frjálshyggjunnar í samræmi við þjóðfélagið eins og það er hverju sinni. í því er fólgin andstaðan við þær stjórnmálastefnur aðrar sem hljómgrunn hafa hlotið. Á meðal æskunnar þarf Sjálfstæð- isflokkurinn að sýna það í raun að hann sé reiðubúinn til að framfylgja stefnumálum sínum, hann sé reiðu- búinn til að endurskoða stefnu sína skipulag og forystumál, þegar nauð- syn krefur. En Sjálfstæðisflokkurinn verður líka að sýna æskunni trúnað og á það hefur skort í framkvæmd. í prófkjörum og á Landsfundum hafa ungir Sjálfstæðismenn unnið umtalsverða sigra, þar sem flokks- menn almennt skilja nauðsyn endur- nýjungar. En forystu flokksins í víð- tækasta skilningi þess orðs hefur ekki gert það og gengið hefur verið 32 framhjá ungum mönnum meira en nokkru hófi gegnir við mat á mönn- um í ýmsar trúnaðarstöður, nú ný- lega við kosningu í Öryggismála- nefnd, en í því tilviki var farið fram á að kjörinn yrði ungur maður, sem sérstaklega hefur kynnt sér þessi mál,mál, en það fékk ekki hljóm- grunn. Svo virðist líka sem það gleymist á köflum að verulegt atriði í Sjálfstæðisstefnunni er valddreif- ing. Því fyrr sem forystumenn Sjálf- stæðisflokksins gera sér grein fyrir því, að þeir verða að sýna æskunni nokkurn trúnað á móti, því betra. Því æskan er reiðubúin að fylkja sér um stefnu flokksins og þá verður hún að fá nauðsynlegt svigrúm inn- an hans. Reykjavík, 18. febrúar 1979, Jón Magnússon. Regnið buldi á bílrúðunni þar sem Helgi beið fyrir utan hjá Ás- laugu, beið þess að hún kæmi út í bíl svo hann gæti ekið henni vestur á Nes þar sem hún var í aukavinnu hjá Agnari listmálara. — Helgi leit áhyggjufullur í átt að húsinu, þar var allt uppljómað, en ekki sást Lauga koma út, þó hann hefði þegar þeytt bílhornið þrisvar sinnum. Það er best að bíða enn í fimm mínútur hugsaði Helgi, annars verð ég að fara út og banka á útidyrnar. Helgi var búinn að vera leigubíl- stjóri í tæp tíu ár, eða frá því hann var tvítugur. Áður hafði hann unnið við eitt og annað, verið á sjó og einnig tvö ár í vegavinnu. Þá hafði hann verið svo heppinn að fá leyfi fyrir leigubíl, og í þessu starfi var hann búinn að vera síðan, og hann hafði aldrei svo mikið sem leitt hugann að því að hætta akstr- inum og fá sér aðra vinnu. Helga hafði aldrei gengið sérlega vel í skóla, og hann hafði hætt strax eftir skyldunámið. Þá fór hann að vinna hjá frænda sínum á verkstæði, en það gekk ekki allt of vel þannig að hann hætti og fór á sjóinn. —- Bílar höfðu þó alltaf verið hans helsta áhugamál. Vini eða félaga átti hann nánast enga, og ef til vill var það ástæða þess að honum féll svo vel við aksturinn sem raun bar vitni. Þá stríddu vinnufélagar hans honum að minnsta kosti ekki a meðan, því oftast var hann einn í bílnum. — Annars var stríðni ná- ungans svo sem ekkert sem hann tók mjög nærri sér, því hafði hann van- ist frá barnæsku. Skólafélagar hans stríddu honum alla hans skólagöngu, honum gekk illa að læra, og hann var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.