Stefnir - 01.02.1979, Qupperneq 39

Stefnir - 01.02.1979, Qupperneq 39
RÓBERT T. ÁRNASON: Frumeining stjórnkerfisins — ríki eða sveitarfélag? í þessari grein er leitað svars við ofangreindri spurningu og er grein- inni skipt í tvo meginkafla. í þeim fyrri er rakin söguleg þróun sveitar- stjórna á íslandi en í þeim seinni verður spurningunni svarað. 1. Söguleg þróun sveitarstjórna á íslandi. Þessari þróun skipti ég í fimm tímabil og fjalla stuttlega um hvert fyrir sig. Ég tel að þrjú atriði gefi góða hugmynd um stöðu sveitarfé- laga á hverjum tíma og eru þau hlutverk sveitarfélaga, stjórn sveitar- félaga og tekjustofnar sveitarfélaga. Þessi þrjú atriði ásamt öðrum verða meginstoðirnar í fyrri hlutanum. Uppruni. Við lestur heimilda um sögu hreppa á íslandi koma fram margar og ólíkar kenningar um uppruna þeirra og hlutverk. Hreppa er fyrst getið í ákvæðum tíundarlaga um 1097. Hreppar eða hliðstæðar ein- ingar hafa verið og eru til á hinum Norðurlöndunum svo og í Englandi og á írlandi. Hér á landi voru hrepp- ar algerlega sjálfstæðar stjórneining- ar innan þjóðveldisins, fremur félags- skapur bænda en landfræðileg ein- ing. Ljóst er af heimildum að mikil- vægasta viðfangsefni hreppa hið forna var framfærsla fátækra og fjallskil og hafa þessi viðfangsefni verið að lögum eða skapast af venj- um. Einnig má leiða að því líkur að hreppurinn hafi verið hernaðarleg eining, varnarsamtök víkingaþjóð- félaga, sem hafi jafnframt því að vera varnarsamtök gegnt framfærslu- skyldu. Óþarft er að gera að megin- máH uppruna hreppanna. Ég mun því helga mig staðreyndinni um til- veru hreppsins og fjalla um mikil- vægustu viðfangsefni hans hér á landi. Pjóðveldisöldin. Af lögbókinni Grágás má ráða að nær eina viðfangsefnið, sem hrepp- um var falið að lögum á þjóðveldis- öld var framfærsla bjargarlausra og aðgerðir til að koma í veg fyrir bjarg- þrot með forðagæslu. Framfærsluskylda á ómögum hvíldi á þingfararkaupsbændum, en þing- fararkaup var gjald er hvíldi á bænd- um, sem áttu ákveðna lágmarkseign og goði kvaddi ekki til þingferða með sér. Löghrepp urðu minnst 20 slíkir þingfararkaupsbændur að byggja. Hlutverk hreppa á þjóðveldisöld voru þessi. 1) Framfærsla ómaga og ráðstöfun þeirra. 2) Aðstoð við þurfa, en svo voru nefndir allir þeir bændur og heimilisfeður, sem ekki guldu goða þingfararkaup en þeir töldust þó ekki vera ómagar. 3) Tryggingar, en þessi ákvæði voru þó ekki tekin upp í lögum en þau náðu til tjóns af völdum bruna og fjár- fellis. Síðar voru menn studdir með almennum samskotum, sem urðu fyrir slíku tjóni. Ætla má að þau róstur, sem hér voru á Sturlunga- öld hafi verið tilefni þessara trygg- inga. 4) Þinghald og eftirlit með fjallaskilum og réttahaldi. 5) Hof- rekstur, en í heiðnum sið kemur til greina að bændur hafi staðið saman að hofum í hreppum. Hofrekstur og þinghald kann að vera arfur frá Skandinavíu. 6) Aðsetursleyfi, en hreppsmenn veittu eða synjuðu mönnum um aðsetur innan hrepps- ins og urðu menn að uppfylla skil- yrði um ákveðinn efnahag til að 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.