Blik - 01.04.1955, Blaðsíða 36
34
B L I K
hroðvirkni. Hvað heldurðu, að
Kristján (útgerðarmaðurinn)
segi, ef allir önglarnir fara af
línunni ?
Friðrik: Það er víst ekki mikil
hætta á því, að þú slítir þá, ekki
sterkari en þú ert.
Kjartan: Ef þú hefðir 1/10
hluta af þeim kröftum, sem ég
hefi, mættirðu vera þakklátur
skaparanum.
Heyrið þið nú annars, strák-
ar, sjáið þið kallinn, þarna er
hann hálfsofandi og þarf ekkert
að gera. Hann tekur ekki einu
sinni fiskinn, sem ég missti.
Haukur: Mundu það, Bauni
sæll, að hvísla lægra næst.
Sigfús: Ég held það væri hið
mesta góðverk, sem ég gerði, að
skera úr Baunanum raddböndin.
Það er eins og hross sé að
hneggja, þegar hann er að hlæja.
Kjartan: Og gættu bara að
færinu. (Blautur vettlingur
flýgur beint á nasir Sigfúsi).
Sigfús: Bölvaður smælinginn,
ef þú finnur ekki salt í kaffinu
þínu eða grænsápu í súpunni, þá
er ég illa svikinn.
Kjartan: Hún hefur alltaf
verið óæt hvort eð er.
Gylfi: Ég held nú, að þið ætt-
uð að hugsa meira um þann
gula en bölva og ragna.
Haukur: Þar fékkst orð upp
úr prófessornum. Heyrðu, pró-
fessor, hvernig eru annars af-
kvæmi stærstu flugu jarðar?
Gylfi: Líttu í spegil, og þá
sérðu það.
Haukur: Já, en þá þyrfti að
vera mynd af þér framan á hon-
um. — Þarna fer einn!
Hann hleypur til og nær í
stærðar þorsk, sem flýtur aftur
með bátssíðunni. — Þarna sérðu
bróðir þinn, Sigfús!
Hér hefur verið sagt frá broti
úr samtali, sem er ekki ólíkt
þeim, er eiga sér stað, þegar
vel fiskast, en ekki nema þá.
Sjaldan er masið tekið alvar-
lega.
Ólafur Kristinsson. Landsprófsdeild.
Æskuminningar gamallar
konu
Margt er breytt frá því, sem
áður var. Og viðbúnaður barn-
anna betri nú en hjá ömmum
okkar og öfum, er þau voru
börn. En bömin nú á tímum
kunna ekki að meta það, sem
skyldi.
Ætla ég að segja söguna, sem
gömul kona sagði mér, er ég bað
hana að segja mér frá æskuár-
um sínum. En hún er svona:
„Ég var yngst 16 alsystkina
og 4 hálfsystkina. Þegar ég var
á tíunda ári, fengu bæði faðir
minn og móðir lungnabólgu. Og
vegna þess, að faðir minn var
brjóstþungur fyrir, þoldi hann