Blik - 01.04.1955, Page 49
B L I K
47
SIGFÚS J. JOHNSEN, kennari:
Vo.rþankar
Það er vor í lofti, ilmur gró-
andans leikur að vitunum.
Grænir frjóangar stritast við að
stinga upp kollunum og ná í
gegnum fölnaðan vef hinna
föllnu fylkinga, er fæddust og
lifðu til þess að búa í haginn
fyrir komandi líf.
Og nú er sólbjartur júnímorg-
unn. Sól rís í austri og sveipar
eyjarnar okkar gullskreyttum
hjúpi sínum. I dag er sannar-
lega ástæða til gleði og til bjartr-
ar trúar á glæsileik og gróanda
lífsins.
Fyrir hugskotssjónir okkar
flýgur hugsunin um sól og sum-
ar sævigirtra eyja. Hugur okk-
ar fyllist gleði og fögnuði yfir
tilhugsuninni um það, er að
höndum muni bera. á öllum þeim
glæstu dögum sólar, yls og
birtu, er komandi sumar muni
færa í skauti sínu.
Sá ótöluleiki hugsana, er á
slíkum dögum fæðast, verða
ekki taldar hér. En mér verður
hugsað til lítils fugls. Hvar er
hann núna? Ef til vill eru
nokkrir þeirra þegar komnir til
Eyjanna, en hvaðan komu þeir?
Sigfús J. Johnsen
Hvar hafa þeir verið og hvernig
hefur þeim farnazt í baráttu
sinni fyrir lífinu á dimmum og
éljóttum vetrarnóttum ? Ég
ígrunda þetta, en finn þegar
vanmátt minn til þess að svara
eigin hugsun.
Það eitt er mér ljóst og því
má ég treysta, að litli tápmikli
fuglinn kemur og vitjar sumar-
slóða sinna fyrr eða seinna. Ég
get verið öruggur og viss um að
,,þjóðarfuglinn“ okkar kemur.
Lundinn kemur heim.
Næstu dagar líða. Þeir víkja
á braut fyrir hækkandi sól.
Fjöllin fyllast lífi; á bekkjum
og syllum fæðist lífið á ný.
Mér kemur í hug Ijóð Árna
Árnasonar um líf og kynjagleði
úteyjalíf sins: