Blik - 01.04.1955, Qupperneq 65
B L I K
63
KVEÐJA
til Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum 1. des. 1954
frá TRAUSTA ÞORSTEINSSYNI
Leitar liugur óðfús einatt
ykkar tU, en þó í dag
flýtir hann sér hraðar, hraðar
heiman, þvi með gleðibrag
veit, að öll þið safnizt saman
til söngs og leikja, hver og einn;
gleðielda kveikja, kynda
kennari og lærisveinn.
veita gnægð af góðum ráðum,
göfga, þroska mey og svein,
Heill í dag og heill í framtíð,
heill á náms og gleðistund;
menntakyndill megi hjartur
mörgum lýsa á gæfufund.
Björk.
Áður fyrri ykkar meðal
átti ég náms- og gleðistund,
sakna nú að orka eigi
að eiga þátt í slíkum fund.
Bjarmar þó af björtum morgni
batans, senn mun eflast þor.
Feginn væri, ef gæti gengið
gleðinnar og námsins spor.
Sendi ég ykkur öllum, öllum
óska minna blómavönd;
lítU reynist orðsins angan
æskumanns, sem reyra bönd.
En þessi litli Ijóðavöndur
með lítinn ilm, — af skrúði fár,
þakkir flytur ykkur einnig
öllum fyrir liðin ár.
Megi þessi stofnun standa
styrkum fótum, björt og hrein,
Trausti Þorsteinsson Steinssonar
vélsmíðameistara hafði stundað nám
í skólanuin tvo vetur. Hugðist hann
ljúka 2. bekkjar prófi í fyrra vor.
í aprílmánuði í fyrra, er nemendur
fengu tóm til vinnu við framleiðslu-
störfin í bænum, slasaðist Trausti,
og hefir hann átt í þeim meiðslum
síðan.
Skólastjóri og kennarar Gagnfræða-
skólans senda Trausta alúðarfyllstu
þakkir fyrir hlýju kveðjuna og óska
þess jafnframt, að Trausti geti sem
fyrst setzt á námsbekk í skólanum
aftur.
Bezta eign hvers skóla eru góðir
nemendur. Trausti var einn af þeim,
hlýr og háttprúður.
X