Gisp! - 12.03.2005, Síða 107

Gisp! - 12.03.2005, Síða 107
verkum myndlistamanna sem vinna með hana í list sinni. Hún bendir á að myndasagan býr yfir sterkum táknheimi sem bæði endurspeglar samfélagið og kommenterar á það, auk þess sem hún höfðar til breiðari hóps en myndlistin og býður því uppá þann möguleika að opna listinni aðgang að fjöldanum. Það verður að segja að báðir aðilar hafa nokkuð til síns máls, vissulega er röksemdafærsla Sabins réttmæt, en á hinn bóginn má líka benda á að kannski gerir hann of miklar kröfurtil myndlistar- manna sem eru þegar allt kemur til alls að skapa myndlist undir ýmiskonar áhrifum, en ekkert endiiega aðfjalla um myndasöguna sem form. Ekki má heldur gleyma því að myndasöguhöfundar vísa oft og iðulega í myndlistá einhvern hátt, án heimildaskrár. Einnig verður að skoða þessa umræðu í samhengi við hið almennt komplexeraða samband sem ríkt hefur á milli myndlistar og myndasögunnar. Margir myndasöguhöfundar hafna myndlistarmenntun (oft sinni eigin), og eru ekki hrifnir af því að vera kallaðir listamenn, og hefur það bæði með sögu myndasög- unnar að gera og stöðu hennar innan myndlista- heimsins. Þetta kemur þó ekki í veg fyrir að oft er það þekkingarleysi sem Sabin vísartil áberandi og jafnvel pínlegt, og að það væri gaman að sjá markvissari og flottari tök myndlistarfólks á myndasögunni sem myndlistarmiðli, því nóg hefur hún uppá að bjóða. SKUGGALEGT VERK Dæmi um það sem myndasagan hefur uppá að bjóða birtist einmitt í nýjasta verki Arts Spiegelmans, eða réttara sagt, myndasögu hans númertvö. (Það kemur mörgum á óvart að uppgötva að þessi þekkti og áhrifamikli höfundur hefur ekki skrifað nema tvær heilar myndasögur. Allavega kom það mér á óvart.) Þetta er In the Shadow of No Towers og fjallar um það hvernig Spiegelman tókst á við lífið í kjölfar 11. september 2001. Sagan er því sjálfsævisöguleg líkt og Maus, og vísar reyndar mjög til hennarað því leyti sem Spiegelman veltir fyrir sér hvort þessi lífsreynsla sé einskonar útgáfa af upplifun föður hans í seinrii heimsstyrjöldinni. Líkt og í Maus er nálgunin á æviskrifin sérstök. Maus lítur út eins og hefðbundin bók, en No Towers bókin er stór, um það bil A3, harðspjalda með aðeins 10 síðum/opnum eftir Spiegelman, svo er viðauki með endurprentunum á eldgömlum myndasögum frá upphafsárunum. I ofanálag er bókin lesin á hlið og stækkar umfangið því enn við lestur. Það er hreinlega full vinna að hafa þetta verk í höndunum og síðan bætist við frásagnarmáti Spiegelmans sem er nú orðinn allt annar en í Maus - sem var þrátt fyrir allt frásögn, með þræði ogframhaldi. Þetta verk sver sig mun meira í ætt við eldri og styttri verk Spiegel- mans, tilraunir með formið eru áberandi og rammar og raðir iðulega í formi turna, og þá helst tveggja. Hér er líka áhugavert að skoða áhrif þessara klassísku brautryðjenda myndasögunnar á Spiegelmann, og lesanda verður Ijóst að það er ekki aðeins neðan- jarðarmyndasagan sem hefur mótað stíl höfundar. í No Towers er ekki beint verið að segja sögu, heldur birtast okkur brot af hinu og öðru, vangaveltur og hugleiðingar, minningarog umfjöllun um uppáhalds lesefnið, myndasögur. Því ‘sagan’ er öðrum þræði saga myndasögunnar, saga fyrstu ára hennar og helsta mótunarskeiðs, en Spiegelman lýsir þvf bæði innan og utan bókarinnar hvernig myndasagan leitaði á hann í því andlega róti sem hann upplifði á þessum tíma. I viðtölum segir hann að þegar hann hljóp af stað með konu sinni að leita barna þeirra, sem bæði sækja skóla ekki langtfrá turnunum, rétt hjá þar sem fjölskyldan býr, hafi hann hugsað með sér: Af hverju er ég búinn að eyða svona miklum tíma í að gera ekki myndasögur? (Ástæðan var sú að Maus tók 13 ár í vinnslu og hann var búinn á því eftir það.) Spiegelman notar myndmálið og formið til hins ýtrasta til að setja saman þessa bók og hikar ekki við að vera pólitískt ágengur í anda neðanjarðarmyndasögunnar. Afleiðingin var sú að hann átti erfitt með að koma myndasögunni á framfæri í Bandaríkjunum, en sú gagnrýni sem hann útbýtti til stjórnvalda og hryðjuverkamanna jöfnum höndum féll ekki í góðan jarðveg. Hans eigið blað, The New Yorker, neitaði að birta myndasöguna og í kjölfar þess sagði hann upp störfum þar. Á endanum fékkst sagan birt í vikublaði gyðinga, The Forward, sem gefið er út í New York. Hinsvegar var sögunni tekið fagnandi í Evrópu, og birtist þar til dæmis í þýska blaðinu DieZeitog í breska tímaritinu London Review of Books. Og árið 2004 var sagan svo gefin út á einni bók. Þó Ijóst megi vera að sem myndasöguhöfundur sé Art Spiegelman ekki beint afkastamikill, þá er óhætt að (treka að þessi tvö meginverk hans eru bæði áhrifarík - á margs konar hátt - og kraftmikil. Maus er þegar orðin sígild og þó In the Shadow of No Towers eigi varla eftir að ná til eins breiðs hóps á sú saga eftir að standa sem minnismerki um hin margvíslegu átök höfundarins við formið. ÚLFHILDUR DAGSDÓTTIR Heimildir: Scott McCloud, Understanding Comics, NewYork, Paradox 1999 (1993). Sigmund Freud, “Hið óhugnanlega”, í Listir og listamenn: ritgerðir, Sigurjón Björnsson þýddi, ritaði inngang og skýringar, Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag 2004 Heimasíða A. Waller Hastings, prófessors í ensku við Northern State University, Aberdeen, South Dakota, skoðað 20.1.2005 Umfjöllun um In the Shadow of No Towersá heimasíðu breska dagblaðsins Guardian:, skoðað 20.1.2005 Fréttasíðan NPR: ogskoðuð 20.1.2005 Sameiginlegn síða nokkurra bóksölusíðna, skoðuð 20.1.2005 Fréttasíða: skoðuð 20.1.2005 Síða hjá útgefanda Spiegelmans, hér eru nokkrir gagnlegir línkar: skoðuð 20.1.2005 Hollensk myndasögusíða, hér er fullt af gagnlegum línkum: skoðuð 20.1.2005 Heimasíða lan Johnston, við Malaspina University- College, Nanaimo, British Columbia, Canada: skoðuð 20.1.2005 I ms.st tHe sky isfallináith,y their eyes a.n<l tell ,t's on|J ro -Trau matic Stress DisorJ evesy- j THiMG'í 1 CHWtótP' ÞOOMED! Doomed to dra£ this demnfil albatross around my neck, ani compuí- sirely retell the calamities of September II*'1 to anyone who'll still listen! ART SPIEGELMANN 1 05
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208

x

Gisp!

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.