Fjarðarfréttir - 01.03.1985, Qupperneq 35
FJARÐARFRÉTTIR
35
FÉKK AÐSTOÐ MÆTRA
MANNA VIÐ GERÐ
„PRÓGRAMMA*.
Nú var ekki farið að setja islcnsk-
an texta við kvikmyndir á þessum
árum. Þurfti þá ekki að vanda til
„prógramma“?
Jú, ég reyndi að vanda til þeirra
eins og kostur var. Efnisþráðinn
varð að þýða og það gat verið
vandaverk. Ég gerði það stundum
sjálfur, en oftast leitaði ég þó til
annara með það og jafnframt gáfu
þeir myndunum íslenskt nafn. Það
gat stundum verið snúið og tókst
misjafnlega, en sem dæmi um vel
heppnaða þýðingu er nafnið á
mynd Bergmans, „Flísin í auga
kölska“. Það nafn fann Björn Th.
Björnsson út, að mig minnir, en
hann var ásamt Sigurði Grímssyni,
kvikmynda- og leiklistargagnrýn-
anda, meðal helstu aðstoðarmanna
minna á þessu sviði.
„Prógrömmin“ voru sannarlega
mikilvæg og flestir héldu þeim til
haga og lásu þau bæði fyrir og eftir
sýningar. Margir söfnuðu þeim og
sjálfsagt eru viða til merkileg söfn
„prógramma" frá þessum tíma.
AÐSÓKNIN SÍFELLT
AÐ DVÍNA
Hvenær lauk þessu blómaskeiði?
Þegar íslenska sjónvarpið hóf
útsendingar um miðjan 7. áratug-
inn dró talsvert úr aðsókn að kvik-
myndahúsunum. Hún átti þó eftir
að jafna sig nokkuð síðar, en ég sá
mér ekki fært að flytja inn myndir
lengur og hætti því 1967 að mig
minnir. Annars tel ég áhrif sjón-
varpsins á aðsóknina tiltölulega lítil
miðað við þá öldu myndbanda sem
nú flæðir yfir. Ég hef til dæmis
orðið var við að myndir sem ég hef
fengið til sýningar hafa verið
komnar á myndbandaleigur áður.
Hvað um framtíð Hafnarfjarð-
arbíós?
Aðsókn er orðin svo dræm að
endar ná tæpast saman lengur.
Eftir að stjúpsystir mín, Guðbjörg
Guðjónsdóttir lést fyrir þremur
mánuðum stend ég í þessu einn og
sé varla tilgang í því að halda því
áfram mikið lengur. Ég held meira
að segja að ég sé sáttur við að fara
að hætta.
RÓMANTÍSKT
RAFMAGNSLEYSI
Við spyrjum nú Níels hvort hann
hafi aldrei lent í einhverjum
vandræðum með bíógesti eða bil-
unum á tækjum, ruglingi á filmum
o.þ.h.
Ég man ekki eftir neinum meiri
háttar óhöppum, ef undan er skilið
rafmagnsleysið sem tiltölulega oft
hefur háð okkur Hafnfirðingum.
Þegar svo ber undir sæki ég venju-
lega Ijósastiku og kveiki á nokkrum
kertum. Áhorfendur láta sér það vel
líka og bíða þolinmóðir. Oft skap-
ast líka rómantískt andrúmsloft við
slíkar aðstæður og þá vilja sumir
helst ekki fá rafmagnsljósin aftur.
Ég man heldur ekki eftir alvar-
legum árekstrum við gestina. Meira
að segja börnin og unglingarnir
haga sér ætíð vel. Það er að vísu
stundum svolítill galsi í þeim, en
þau hafa alltaf sýnt mér „respekt“
og hlýtt mér ef ég hef þurft að hasta
á þau. Umgengni gesta hefur líka
verið góð og við höfum verið laus
við skemmdir á húsinu.
„HEF YNDI AF FALLEGUM
MÁLVERKUM“
Málverk þekja veggina í íbúð
Níelsar og mörg þeirra hefur hann
sjálfur málað. Við vendum því
okkar kvæði í kross og spyrjum
hann um þann þátt sem málverkin
hafa átt í lífi hans.
Ég hef yndi af fallegum mál-
verkum og hef frá barnæsku fengist
við að mála í tómstundum. Ef til
vill hef ég þetta að einhverju leyti
frá föður mínum sem var mjög list-
fengur. Hann teiknaði t.d. og skrif-
aði með fallegri rithönd auglýs-
ingar um kvikmyndirnar sem hann
sýndi. Þær voru síðan hengdar upp
á ákveðnum stöðum í bænum.
Þessi áhugi minn á málaralist
varð til þess að ég stundaði nám við
myndlistadeild handíðaskólans ár-
in 1946-7. Hins vegar hef ég ekki
kært mig um að flíka þessari tóm-
stundaiðju minni og aldrei sýnt mín
verk opinberlega nema hvað ég var
beðinn um nokkrar myndir á sýn-
ingu hafnfirskra myndlistamanna á
afmæli bæjarins vorið '83. Ég hef
gripið í þetta þegar ég hef átt stund
frá erli dagsins, en mér finnst
maður þurfa gott næði til að fást
við að mála, ef vel á að takast til.
Þegar ég hætti að reka bíóið langar
mig til að geta fengist við að mála
og ég kvíði ekki elliárunum ef heils-
an leyfir mér að halda á pensli.
Hér slíðrar skrifarinn stílvopnið
og við höldum í fylgd Níelsar niður
í kvikmyndasalinn, skoðum sýn-
ingarklefann og tækjakostinn.
M.a. skoðum við handsnúna sýn-
ingarvél frá bernskudögum biósins,
en hana hyggst Níels í fyllingu tím-
ans gefa kvikmyndasafni íslands.
Margt ber á góma meðan við göng-
um um sali þessa glæsilega húss,
sem á sínum tíma hefur borið vott
um stórhug og framsýni, en fleira
var ekki fest á blað að sinni. Níelsi
Árnasyni færum við þakkir fyrir
góðar móttökur og fróðlegt spjall.
I ,
iT'^w '' . í P r * rW l i f!
r , w m i i\
Bílastiling með nýjustu og
fullkomnustu stillitækjum
Vid yfirförum 15 atriöi í vélastillingu
1. Skipt um kerti og platinur
2. Mæld þjappa
3. Stilltir ventlar
4 Hreinsuö eda skipt um loftsiu
5. Hreinsuö eöa skipt um bensinsíu
6. Hreinsuö geymasambond
7 Hreinsaöur öndunarventill
8 Atnuguö og stillt viftureim
9. Mældir kertaþræöir
10 Mældur startari
11 Mæld hleösla
12. Mældur rafgeymir
13 Stilltur blondungur og kveikja.
14 Mæld nýtm á bensini
AUK ÞESS HJÓLA- OG
LJÓSASTILLING
VÉLASTILLING
SÍMI 43140
Auðbrekku 16, Kópavogi