Fjarðarfréttir - 01.03.1985, Page 38
38
FJARÐARFRETTIR
Hvers vegna eru konur mikill meirihluti stéttar þinnar?
Á undanförnum áratug hefur konum farið mjög fjölgandi á
vinnumarkaði. Bæði er það að atvinnutækifæri eru fleiri og svo að
tekjur eins nægja sjaldan til þess að „reka“ heimili.
Orðið „KVENNASTÖRF" er ekki gamalt í málinu í þeirri merk-
ingu að mikill meirihluti ákveðinnar stéttar eru konur.
Okkur lék nokkur forvitni á að komast að því hvers vegna konur
leituðu fremur í nokkur þessara starfa. Við ræddum við banka-
starfsmann, fóstru, kennara og hjúkrunarfræðinga og fengum þessa
aðila til þess að koma með sínar skýringar.
Edda Skarphéðinsdóttir
er bankastarfsmaður og
vinnur við Sparisjóðinn í
Norðurbœ:
Hér vinna 11 starfsmenn, allt
konur, og konur eru mikill meiri-
hluti bankastarfsmanna. Konur
sækjast fremur eftir þessu starfi en
ýmsum öðrum líklega vegna þess að
starfið er hreinlegt og krefst ekki
líkamlegrar áreynslu. Hér eru mjög
margar konur í hlutastarfi og það er
örugglega einn þáttur sem konur
verða að hafa í huga, því mjög
margar þeirra geta ekki tekið að sér
fullt starf vegna þess að þær þurfa
að annast heimili til viðbótar.
Umsjón með heimili kemur einnig
oft í veg fyrir að þær geti tekið að
sér yfirmannastörf sem krefjast
lengri vinnutíma. Laun banka-
manna hafa auðvitað áhrif á að
karlmenn eru í minnihluta í
almennum störfum innan banka-
Þuríður Ingimundar-
dóttir hjúkrunarforstjóri á
Sólvangi og Bessi Jóhanns-
son, einnig hjúkrunar-
frœðingur þar.
Þuríður: Lengi vel var litið á
hjúkrunarstarfið sem rómantískt
fórnarstarf og menn sáu fyrir sér
Florence Nightingale, konuna með
lampann. Þetta er erfitt starf og
nauðsynlegt að hafa karlmenn
einnig í starfinu, því oft er líkamlegt
erfiði mikið. Launin hafa fyrst og
fremst áhirf á það að karlmenn
koma ekki til starfa sem hjúkrunar-
fræðingar. Sú kona sem sinnir
starfi utan heimilis í hvaða stétt sem
hún annars er, vinnur tvöfalt starf.
Því eru langflestir í hlutastarfi.
kerfisins, en ég vil taka fram að
enginn greinarmunur er gerður á
launum karla og kvenna sem vinna
samskonar störf innan bankans.
Hins vegar veigra konur sér hjá því
að taka við störfum betur borguð-
um sem þeim oft býðst ef þau krefj-
ast meiri fráveru frá heimili því enn
er litið svo á að það sé konunnar að
annast heimilið, þó nokkur breyt-
ing hafi orðið þar á sl. ár.
Hjúkrunarstarfið er enn hefðbund-
ið kvennastarf og ég held að enn sé
langt í land að karlmenn flykkist í
stéttina meðan launakjörin eru
ekki betri en nú.
Bessi: Ég er 16. karlmaðurinn
sem útskrifast frá Hjúkrunarskól-
anum og sá eini sem vinn við
öldrun. Ég held að það sé ákaflega
nauðsynlegt að karlmenn komi í
auknum mæli í stéttina og ég veit að
margir hefðu áhuga á því, en ég er
sammála Sigríði að launakjörin
koma í veg fyrir það. Þó starfið sé
erfitt er það mjög fjölbreytt og
sjálfsagt ekki mörg störf þar sem
maður finnur eins mikið þakklæti
fyrir það sem gert er.
t
.ii£i
Hafdís Guðjónsdóttir er
kennari við Engidalsskóla:
Ástæðurnar eru sjálfsagt margar
fyrir því að konur eru í miklum
meirihluta kennara við grunnskóla.
Konur eru Iíklega um 90% kennar-
ar yngstu barnanna. Með breyttu
kennsluefni á grunnskólastigi þá
held ég nú að einn þátturinn sé sá að
karlmenn hafa einfaldlega ekki sett
sig eins inn í námsefnið og auðvitað
hafa launin mikið að segja, þegar
kennarinn jafnvel þarf að stunda
aðra vinnu með kennslunni. Konan
sinnir heimilinu og getur ekki tekið
að sér fullt starf og því hentar starf-
ið vel konum, sem þá geta sinnt
undirbúningi kennslunnar heima
og líta þá eftir börnum sínum um
leið. Kennslustarf er eins og eðlilegt
framhald af því uppeldisstarfi sem
konan hefur sinnt á heimilinu og
laðar því ef til vill frekar til sín
konur en ýmis önnur störf. Launin
hrekja þó sífellt fleiri úr starfi og þó
karlmenn hafi fremur horfið úr
starfi undanfarið þá má búast við
að konur hverfi einnig á braut.
Ég vil þó leggja áherslu á að
kennslan er oft ákaflega gefandi
starf og ég er viss um að kennurum
er mjög óljúft að leita til annarra
starfa þó ýmsir séu tilneyddir til
slíks til þess að sjá sér og sínum
farborða.
Hugrún Jóhannesdóttir er fóstra og forstöðu-
kona á skóladagheimilinu að Kirkjuvegi:
Ég álít að karlmenn séu alveg eins
hæfir til þess að gegna þessu starfi
en launin koma í veg fyrir það að
þeir fáist til starfa. Ég man eftir
einum sem hafði áhuga á að ráða
sig hingað en um leið og hann
heyrði um launakjörin þá sást hann
ekki meira. Uppeldi barna hefur
verið hefðbundið hlutverk konunn-
ar og talið sjálfsagt að væri í hennar
verkahring. Ég tel mjög æskilegt að
karlmenn komi einnig til starfa og í
þessu starfi þarf að ríkja jafnvægi.
Það er ekki eðlilegt að nær allir sem
sinna uppeldi utan heimilisins skuli sín uppvaxtarár. Ég held að margir
vera konur og stundum kynnist karlmenn gætu vel hugsað sér þesi
barnið ekki nema öðru kyninu öll störf ef þau væru betur borguð.
FISSLER stálpottar
0 Ódýrir © Orkusparandi © Faliegir
BÚ3ÁHÖLD OG LEIKFÖNG
Strandgötu 11 - S 50919