Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1967, Blaðsíða 102
1967
— 100 —
35. Reglugerð nr. 190 19. desember, um barnavernd á Þingeyri.
36. Reglugerð nr. 197 19. desember, fyrir Vatnsveitu Búlandshrepps
í Suður-Múlasýslu.
37. Reglugerð nr. 205 29. desember, um útbúnað sláturhúsa, kjöt-
frystihúsa, kjötverkunarstöðva og meðferð og flutning sláturaf-
urða.
38. Bréf dóms- og kirkjumálaráðuneytisins nr. 226 14. desember til
Tryggingastofnunar ríkisins, um daggjald opinberra sjúkrahúsa
og stundunargjald þeirra vegna utanhéraðssjúklinga.
Auglýsingar, birtar í C-deild Stjórnartíðinda:
1. Auglýsing nr. 1 26. janúar, um fullgildingu Evrópusamnings um
tímabundinn tollfrjálsan innflutning lækningatækja o. fl.
2. Auglýsing nr. 6 5. apríl, um breytingar á Norðurlandasamningi
um félagslegt öryggi frá 15. september 1955.
3. Auglýsing nr. 8 8. apríl, um fullgildingu Norðurlandasamnings um
flutning milli sjúkrasamlaga o. fl.
Forseti íslands staðfesti skipulagsskrár fyrir eftirtalda sjóði til
heilbrigðisnota:
1. Skipulagsskrá nr. 5 4. janúar, Utanfararsjóðs sjúkra, Skagafirði.
2. Skipulagsskrá nr. 154 15. september, fyrir Vistheimili Bláa bands-
ins í Víðinesi í Kjalarneshreppi, Kjósarsýslu.
X. Heilbrigðisstarfsmenn.
Tafla I.
Læknar.
Læknar, sem hafa lækningaleyfi á Islandi, voru í árslok taldir 381.
Búsettir í landinu voru 267 (sbr. töflu I), þar af 3 kandídatar, sem
gegndu héraðslæknisstörfum og höfðu lækningaleyfi aðeins á meðan.
Voru þá samkvæmt því 749 íbúar um hvern þann lækni, en 757 um
hvern búsettan lækni með fullgildu lækningaleyfi. Læknar búsettir í
Reykjavík voru 172, í öðrum kaupstöðum 51, utan kaupstaða 41, er-
lendis 13 og án fasts aðseturs 104. Læknakandídatar, sem eiga ófengið
lækningaleyfi, voru 71 (þar með taldir kandídatar með bráðabirgða-
lækningaleyfi).
Á læknaskipun landsins urðu eftirfarandi breytingar (ráðningar að-
stoðarlækna og setningar í héruð, þar sem skipaðir eða settir læknar
eru fyrir, eru ekki teknar með) :