Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1967, Page 127
— 125 —
1967
skiptið var um að kenna lélegri hirðingu á gerilsneyðingartækjum,
samtímis því að júgurbólga kom upp í kúm á tveimur bæjum. Tókst
að komast fyrir þetta mjög fljótlega. í síðara skiptið gjöreyðilagðist
mjólkin, svo að ódauninn lagði af henni, strax og hún var keypt út úr
mjólkursamlagi. Var því lokað að boði héraðslæknis einn sólarhring,
öll tæki, sem hægt var að taka sundur, tekin í sundur og skoðuð. Reynd-
ust þau vel hirt. Hins vegar kom í ljós, að sjálfvirkur hitastillir á geril-
sneyðingartækjunum var ónýtur, og þurfti að handstilla hitastigið á
mjólkinni í tækjunum. Fenginn var dýralæknir að rannsaka mjólkur-
framleiðslu, og fann hann júgurbólgu í kúm hjá sjö framleiðendum,
allt frá einni til fjögurra kúa í stað, en mjög svo athugaverða kæli-
tækni hjá þrem. Hjá einum var kælivatnið yfir 10 gráðu heitt, en annar
hafði ekkert kæliker, en geymdi sölumjólkina a. m. k. þennan dag í
fjóshaugnum. Eftir að mjólk úr sýktum kúm, svo og mjólk frá þeim
bæjum, sem ekki höfðu fullkomna framleiðsluaðstöðu, var tekin úr um-
ferð, batnaði mjólkin verulega, og gerlafjöldi hennar féll úr 8,8 millj.
í rúmcm ofan í eina milljón, og saurgerlar hurfu nær alveg. Engan
veginn stóðst hún þó þær kröfur, sem gera verður til neyzlumjólkur,
en þegar sjálfstillirinn var kominn á sinn stað, komst hún í gott lag og
hefur verið síðan. Eitthvert ólag er þó enn á smjörframleiðslu, þar sem
óbragð kemur að því eftir mjög stuttan tíma utan frystihólfs. Hefur
ekki tekizt að finna orsök þessa. Þá kom á markaðinn dag einn smjör,
sem að þessu leyti reyndist mun betra en það gamla, en sá var hængur-
inn á, að umbúðir um þetta smjör sneru allar öfugt, og gat að líta
mynd af fagurgrænni kú ásamt merki framleiðanda í öllum regnbogans
litum á smjörstykkinu sjálfu, bæði í bak og fyrir. Smjör þetta var þegar
í stað tekið úr umferð og sýnishorn send í rannsókn, en sala á því
bönnuð, þar til að rannsókn lokinni. Leiddi hún í ljós, að litamengunin
náði aðeins 3—5 mm inn í smjörið, og var því aftur leyfð sala á smjör-
inu, ef mengaði hlutinn væri skorinn utan af og smjörið pakkað aftur.
Hefur það ekki sézt síðan.
6. Áfengis- og tóbaksnotkun. Áfengisvarnir.
Rvík. Áfengisneyzla landsmanna árið 1967 varð 2,38 lítrar á mann
af 100% alkóhóli.
I fangageymslu lögreglunnar við Síðumúla gistu 6959 manns á árinu,
flestir vegna ölvunar. 13 þeirra banaslysa, sem talin eru undir lið
VII A (slys), má rekja beint til áfengisneyzlu.
7. Samkomustaðir og félagslíf.
Raufarhœfnar. Vígt var nýtt félagsheimili á árinu og hlaut nafnið
Hnitbjörg. Er hér um mikla framför að ræða, og hefur öll aðstaða til