Börn og menning - 01.02.1997, Page 27
BÖRN 06 AAENN|N6
Það væri óskandi að árið 2000 verði Reykjavík
búin að marka sér stefnu um menningarmál bama.
Er íslensk menning fyrir börn enn að berjast fyrir
tilverurétti sínum?
Já, þetta verður alltaf einhver barátta en fólk er nú
þrjóskt og heldur
áfram þótt það eigi
ekkert að geta það.
Þannig treystum við
því að geta rekið
Möguleikhúsið
áfram þótt við
höfurti ekkert sem
segir okkur það.
Barnabækur halda
alltaf áfram að koma út, stundum plötur og
bíómyndir, svo það vantar ekki viljann, áhugann og
kraftinn. Ég held að það sé sérstaklega mikilvægt
núna að rækta íslenska menningu þegar sjónvarpið
flæðir yfir með þvílík ógrynni af útlendum
teiknimyndum. Þótt þær séu talsettar á íslensku em
þær samt sem áður útlenskar. Krakkarnir sitja við
tækin og taka við og það er í lagi svo fremi sem við
sofnum ekki á verðinum og höldum áfram að
koma með nýtt íslenskt efni á markaðinn.
Þú meinar að við gefum börnunum möguleika á
að velja?
Já, útlenda efnið er komið til að vera — og það
erum við í Möguleikhúsinu lrka!
Kristín Birgisdóttir
Helstu verkefni Möguleikhússins frá upphafi
LEIKSÝNINGAR:
Grímur og galdramaðurinn....................... 1990
Fríðafitubolla ................................ 1991
Smiður jólasveinanna........................... 1992
Geiri lygari................................... 1993
Umferðarálfurinn Mókollur...................... 1994
Trítiltoppur................................... 1994
Astarsaga úrfjöllunum ......................... 1995
Ævintýrabókin ............................ 1995
Ekki svona! (I samvinnu við
Leikfélag Reykjavíkur) ........................ 1996
Einstök uppgötvun ........................ 1996
Hvar er Stekkjastaur? ......................... 1996
Snillingar í Snotraskógi....................... 1997
STYTTRI LEIKÞÆTTIR FYRIR SJÓNVARP:
Leiðindaskjóða stingur af ..................... 1990
Sorgmœdda myndastyttan ................... 1992
Einar og hafmeyjan ............................ 1992
Oskaskafmiðinn ........:.................. 1992
Mókollur í umferðinni —
4 sjónvarpsþættir ............................. 1995
FYRIR ÚTISKEMMTANIR O.FL.:
Bína blómálfur................................. 1992
Lubbi og leikföngin ........................... 1993
Hárflókasaga Viðgerðarsonar.................... 1994
Mókollur á þjóðhátíð........................... 1995
Kalli eignast vin.............................. 1996
Aslákur íÁlveri........................... 1997
HEIMSÓKNIR ERLENDRA BARNALEIKHÚSA:
Mariehönen Danmörku —
Den lille heks ........................... 1994
Mánefjes Noregi — Mánefjes (Sólstafir) ........ 1995
Bádteatret Danmörku -
manden i spanden (Sólstafir)..........'. . .. 1995
Sytkit Finnlandi — Aquariumplay/
Moomin (Sólstafir)............................. 1995
Tripicchio, Underland & co. Noregi —
Med ryggsekk og bananer ....................... 1996
Det lille turnéteater Danmörku —-
Odysseus....................................... 1997
... það vantar
ekki vi^ann,
áhugann og
kraftinn,
25