Börn og menning - 01.04.2013, Side 13
Inngangur
1 Þessari ritsmíð verður fjallað stuttlega um tvo af helstu frásagnarfræðingum atdarinnar, þá Vladimir Propp og Algirdas Greimas og
hugmyndir þeirra um formgerð frásagna (1. kafli). Einnig mun ég reyna gagnsemi þessara hugmynda á einu af þekktari ævmtýrunum
1 þjóðsagnasafni Einars Ólafs Sveinssonar, sögunni af Líneik og Laufey (2. kafli). Hvers vegna er það gert? Aðalástæðan er sú að þrátt
fyrir að aðferðir þessara frásagnarfræðinga hafi verið íslenskum bókmenntafræðingum mikill innblástur áratugum saman reynist ekki
auðvelt að finna á prenti stutta og aðgengilega kynningu á þeim. Verðugt rannsóknarefni væri einnig að bera hugmyndir þeirra Propps
°g Greimas við stærri verk og ekki sist barnabækur þar sem sjálf sögufléttan er grundvallaratriðið og frásagnarfræðm leiðir þanmg i Ijos
meginátök sögunnar. Rýmisins vegna gafst þó ekki kostur á því hér og bíður það verk þvi um sinn.
Fyri kafli: Kenningin
1-1 Vladimir Propp og Formgerð
aevintýrisins
Árið 1928 kom út í Leningrad lítil bók
sem átti eftir að bylta rannsóknum i
Pjóðfræði °9 'e9gja grunn að þeirri tegund
bokmenntarannsókna sem gjarnan er kölluð
rásagnarfræði (narratologi). Þessi bók var
Formgerð ævintýrisins (Morfológija skázki)
enir Vladimir Propp (1895-1970). Höfundur
hennar hefur gjarnan verið tengdur við
rússneska formalismann sem var reyndar að
líða undir lok um þetta leyti. Rannsóknir hans
vöktu því litla athygli fyrr en ensk þýðing
bókarinnar kom út í Bandaríkjunum árið
1958.1 Rússneski formalisminn var ekki langlff
stefna. Hans blómaskeið var í Rússlandi frá
1915-1930, áður en Stalínisminn batt enda
á slíka ævintýramennsku. Á hinn bóginn
átti hann sér framhaldslíf í Póllandi og
Tékkóslóvakíu en þangað héldu formalistar
á borð við Jakobson, Trúbetskoj og
Múkarovsky. Málvísindamenn stofnuðu félag
um þessa stefnu í Moskvu árið 1915 og ári
síðar var félag til rannsókna á skáldskaparmáli
(Opoyaz) stofnað í Pétursborg. Síðar runnu
þessi félög saman í eitt.
Undanfarar formalismans voru fjölmargir.
Þar ber að sjálfsögðu fyrst að nefna þau
1 propp, Morphology of the Folktale (formáli Alan
Dundes), xi.