Fréttablaðið - 13.03.2021, Síða 32

Fréttablaðið - 13.03.2021, Síða 32
Hannes S. Jónsson hóf ungur að árum að star fa innan körfuboltans en þegar hann var fimmtán ára gam- all settist hann í stjórn körfubolta- deildar Breiðabliks og sama ár, árið 1990, sat hann sitt fyrsta ársþing KKÍ. Fyrir þann tíma hafði Hannes ekki æft körfubolta og ekki haft mikinn áhuga á íþróttinni. „Litli bróðir pabba fór í skiptinám til Bandaríkjanna og kom til baka til Íslands með körfuboltabakteríu sem hann smitaði mig af. Ég varð strax heltekinn af körfuboltanum og sökkti mér í starfið hjá Blikum. Rétt eftir fermingu var ég kominn í stjórn körfuboltadeildar Breiða- bliks og mætti á mitt fyrsta ársþing KKÍ fimmtán ára gamall. Ég var ekki mikið að stunda félagslífið þegar ég var í menntaskóla þar sem körfuboltinn átti hug minn allan,“ segir Hannes um rót körfubolta- áhuga síns. Afi fékk hjartaáfall í kirkjunni „Það stakk smá í stúf að svona ungur maður væri kominn í stjórn deildar. Fjölskylduaðstæður höfðu mótað mig mikið en þegar ég var unglingur þurfti ég oft að hafa áhyggjur af því að það væri ekki til mjólk út á morgunkornið. Ég er elstur af þremur bræðrum og ég lét yngri bræður mína oft vera í for- gangi þegar kom að því að fá það sem þurfti,“ segir hann um upp- vaxtarár sín. „Við vorum bara venjuleg fjöl- skylda sem bjó í Kópavogi, á Flúðum og í Breiðholti. Pabbi og afi voru með fyrirtæki saman sem fór í gjaldþrot og þeir feðgar töluðust ekki við í kjölfar þess. Ég man það vel að fyrsta stóra ákvörðunin í líf- inu hjá mér var þegar það var lagt upp í hendurnar á mér að ákveða hvort að afa og ömmu yrði boðið í fermingarveisluna mína sem síðan var greidd að einhverju leyti af fermingarpeningunum mínum. Ég ákvað að bjóða þeim, og svo í fermingunni fær afi minn hjarta- áfall og er sóttur af sjúkrabíl í kirkj- una. Þetta hafði töluverð áhrif á mig og ég varð vanur því að taka mikla ábyrgð á unglingsaldri. Þegar ég er svo 27 ára gamall lést faðir minn langt fyrir aldur fram en hann var á svipuðum aldri og ég er núna. Þessi áföll hafa þjappað fjölskyldunni saman sem var mjög náin fyrir. Þrátt fyrir þær aðstæður sem ég rek hér að framan ríkti mikill kærleikur innan fjölskyldunnar og mamma og pabbi gerðu allt sem þau gátu til þess að láta okkur bræðrunum líða vel,“ segir þessi 45 ára gamli maður. Hrundi niður vegna mikils álags „Sonur minn, Jón Gautur, er skírður í höfuðið á afa sínum og ég passa upp á að halda minningu pabba í heiðri og þrátt fyrir að börnin mín tvö hafi ekki fengið að hitta afa sinn þá finnst þeim þau þekkja hann. Ég sakna hans og stundum verð ég reiður yfir að hann hafi farið frá okkur svona snemma. Ef ég er sem dæmi að dunda mér eitthvað heima fyrir og heyri lag sem við kunnum báðir að meta þá óska ég þess heitt að hann væri hér enn hjá okkur. Söknuðurinn hverfur aldrei og pabbi verður alltaf með mér,“ segir hann. Fyrir nokkrum árum tók síðan vinnan sinn toll hjá Hannesi þegar líkaminn hrundi og hann var lagður inn á sjúkrahús vegna of mikils líkamlegs og andlegs álags. „Við þurftum að taka á erfiðum málum innan KKÍ árin 2014 og 2015 og þar á eftir stækkaði sam- bandið vegna velgengni karla- landsliðsins og annarra landsliða. Samhliða því að við jukum starf- semi okkar komu hins vegar ekki tekjur frá afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, ÍSÍ, þar sem ríkissjóður lagði sjóðnum til mjög lítið framlag þar til bara fyrir örfáum árum. Engar tekjur komu heldur frá Alþjóðakörfuboltasam- bandinu, FIBA, á þessum tíma. Af þeim sökum var fjárhagsstaðan í lok árs 2017 orðin mjög slæm sem olli mér töluverðum áhyggjum og auknu álagi á andlegu og líkamlegu hliðina. Blóðþrýstingurinn var orðinn allt of hár og líkaminn hrundi á endan- um. Það tók nokkurn tíma að jafna mig og ég viðurkenni það alveg að mér var hugsað til skyndileg fráfalls pabba og Ólafs E. Rafnssonar vinar míns á þessum tíma. Það er búið að niðurgreiða vel skuldir undanfarin ár og koma því sem eftir er í réttan farveg, og er fjárhagur sambandsins í mun betra jafnvægi í dag,“ segir formaðurinn. „Þessi tími kenndi mér það að þrátt fyrir að ég hafi mjög mikla ástríðu fyrir körfubolta hef ég reynt að taka ekki inn á mig öll þau vandamál sem eru til staðar í körfu- boltasamfélaginu því ég verð að setja mér mörk. Það þykir sjálfsagt að maður sé til taks öllum stundum sólarhringsins og það er hið besta mál. Ég vil að allir sem koma nálægt íþróttinni okkar frábæru geti rætt málin við mig á opinskáan hátt og þannig er það áfram en ég reyni að passa betur upp á að hvíla mig á milli tarna. Jón Gautur hefur fengið sinn skerf af erfiðleikum vegna starfs míns. Sem dæmi má nefna að þegar hann var rúmlega tíu ára gamall vatt fullorðinn einstaklingur sér að honum og bað hann um að skila því til mín að ég væri fáviti fyrir mín störf fyrir KKÍ,“ segir þessi ástríðu- fulli körfuboltaáhugamaður. „Það skiptir mig líka mjög miklu máli að eiga góða að eins og fjöl- skylduna mína og samstarfsfélaga hjá KKÍ til að ræða málin á góðum nótum. Yndisleg fjölskylda, vinir og góðir samstarfsfélagar er dýrmætur demantur að eiga og þar datt ég svo sannarlega í lukkupottinn,“ segir þessi mikli fjölskyldumaður. Ofbeldi aldrei liðið innan KKÍ Snemma á þessu ári spratt upp umræða um kynferðislega áreitni innan vébanda KKÍ og hefur sam- bandið verið gagnrýnt fyrir að taka ekki nógu hart á þeim málum. „Um aldamótin, þegar ég var að koma inn í stjórnina, þá var tíðar- andinn allt annar og einstaklingar töldu sig geta leyft sér ýmislegt sem myndi aldrei líðast í dag. Það er mjög gott að tíðarandinn hefur breyst, við eigum aldrei að líða of beldi af nokkrum toga Þeim málum, sem hafa komið inn á borð hjá KKÍ þar sem talið er að einstaklingar á vegum sam- bandsins hafi gerst sekir um kyn- ferðislega áreitni eða óviðeigandi samskipti, hefur verið tekið á og engum málum sópað undir teppið. Okkur hjá KKÍ sárnar það afar mikið að heyra að við eigum að hafa sett mál til hliðar eða ekki tekið mark á þeim. Til þess að við getum tekið á málum þá verða þau hins vegar að koma formlega inn á borð til okkar, það er ekki hægt að taka jafn viðkvæm mál fyrir bara á sögusögnum. Ég hvet þá sem verða fyrir áreitni af einhverju tagi til að stíga fram og láta okkur vita. Þeim málum verður tekið alvarlega, í dag höfum við samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðshreyfingarinnar sem tók til starfa í fyrra. Til hans er hægt að vísa þessum málum,“ segir þessi reynslumikli maður. Fyrir komandi ársþing hafa verið lagðar nokkrar tillögur eins og gengur og gerist og hafa nokkrar þeirra fengið meiri umræðu en aðrar. Þar á meðal er tillaga Ung- mennafélags Kjalarness um að leyfa stúlknaliðum að leika á strákamót- um á ákveðnu aldursstigi. Brynjar Karl Sigurðsson er hugmynda- smiðurinn að tillögunni en heim- ildarmyndin þar sem hann og lið hans eru í aðalhlutverki, Hækkum rána, hefur vakið þó nokkra athygli í samfélaginu undanfarið. „Þessi tillaga mun fá efnislega meðferð á þinginu eins og allar aðrar. Hingað til hefur sú stefna orðið ofan á að hafa mótahald í grunninn kynjaskipt en ákveðin kynjablöndun hefur verið leyfð ef þjálfarar beggja liða hafa samþykkt það og það má örugglega skerpa á okkar regluverki. Ákvörðun um róttæka breytingu á mótahaldi er tekin á ársþingi en ekki innan stjórnar. Um þjálfunaraðferðir þjálfara almennt, er það ekki mitt sem formanns að hafa skoðun á þeim. Félögin í landinu hafa tækifæri til að ræða tillöguna á þinginu og ákveða hvað skal gera,“ segir Hann- es um tillögu Kjalnesinga. Kitlar að fara á kaf í rallý aftur Það sem kannski fáir vita er að Hannes var á sínum tíma í fremstu röð í rallýheiminum þar sem hann vann titla sem aðstoðarökumaður. „Ég hef verið mikið í kringum rallýbransann síðan ég var ungling- ur en árið 2002 ákvað ég að verða aðstoðarökumaður hjá Hlöðveri Baldurssyni og við náðum að landa Íslandsmeistaratitli í nýliðaf lokki sem þá hét og í f lokki einsdrifsbíla ásamt því að lenda í öðru sæti yfir heildina á Íslandsmótinu. Rallý er frábær íþrótt og ég hef mjög gaman af því að fylgjast með því. Báðir bræður mínir hafa einnig verið á fullu í rallinu og í dag er litli bróðir formaður BÍKR ásamt því að vera varaformaður körfuknattleiks- deildar Breiðabliks. Ég vil líka taka það skýrt fram að þrátt fyrir áhuga á sportinu þá er ég vita vonlaus þegar kemur að því að gera við bíla og get með engu móti hjálpað til í þeim efnum,“ segir ökuþórinn. Erfiðir tímar hafa mótað mig Hannes S. Jónsson verður sjálfkjörinn sem formaður Körfuknattleikssambands Íslands á ársþingi þess sem fram fer í dag. Hannes er á leið inn í sitt 16. starfsár sem formaður sambandsins en hann tók við keflinu árið 2006. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, hefur upplifað ýmislegt á æviskeiði sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI FJÖLSKYLDUAÐSTÆÐUR HÖFÐU MÓTAÐ MIG MIKIÐ EN ÞEGAR ÉG VAR UNG- LINGUR ÞURFTI ÉG OFT AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ ÞAÐ VÆRI EKKI TIL MJÓLK ÚT Á MORGUNKORNIÐ. Hjörvar Ólafsson hjorvaro@frettabladid.is 1 3 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.