Fréttablaðið - 13.03.2021, Qupperneq 36
Helen Svava, sem leggur stund á
mastersnám í myndlist, var 27 ára
gömul þegar hún áttaði sig heldur
óvænt á því að hún vildi leggja
fyrir sig listsköpun.
„Það telst líklega mjög seint
en þá ákvað ég hálf óvart að fara
í myndlistaskólann því ég vildi
fresta því að raungera minn innri
lögfræðing í eitt ár til viðbótar,“
segir Helen og hlær.
„Ég hefði líklega átt von á því
að finna mig í f lestu öðru. En mig
langaði að læra að teikna, því mér
fannst eins og því fylgdi eitthvert
óskilgreint frelsi.“
Skemmtileg YouTube-komment
Helen segir innblásturinn koma
víða að. „Innblástur er ekki beint
hlutur sem ég tengi við að komi og
fari. Ég get gert marga hluti sem mér
finnst frábærir alla daga ef ég vil – en
ég kýs að vera ekki alltaf að gera. Það
er svo hollt að leyfa sér bara vera.
En lífið er auðvitað einn stans-
laus innblástur. Mér finnst mjög
gaman að fara til Feneyja og sjá
hafið glitra betur þar en hér en mér
finnst líka bara mjög gaman að
vera heima og lesa YouTube-kom-
ment.“
Hvað ertu að fást við á sýning-
unni?
„Að búa til myndlist síðasta
árið hefur fyrir mig verið rosalega
mikið fólgið í því að loka bara
augunum og ímynda mér hluti og
tala um þá eins og ég tryði því að
á einhverjum tímapunkti myndi
ég gera þá. Ég trúði því ekki og
er virkilega hissa og ánægð með
að hafa náð að raungera það sem
hefur bara verið til á bak við augn-
lokin síðasta árið.
Það eru í raun þessir hlutir sem
ég hef náð að svona tengja við að
séu partur af því að vera í þessu
COVID-ástandi – þar sem maður
er extra fastur í líkamanum sínum
með hugsunum sínum. Að þeir
komi frá mínum svona hug-
myndafræðilega ysta parti, sem
er eitt tattú af rós sem ég er með
á innanverðum handleggnum og
svo frá kjarnanum sem væri þá
hjartað.
En hjartað er líka fyrsta háls-
menið sem ég keypti mér og
rósirnar eru úr Góða hirðinum
og hafa fylgt mér f lest síðustu ár.
Þannig að ég gæti farið með þetta
í margar áttir og af því hún hefur
verið svo lengi ekki til, eða að
segjast ætla að verða til, þá hafa
myndast mjög margar tengingar.
Svo er ég líklega mest að fást bara
við efni og vil tala heiðarlega um
það. Að sjóða stál, tálga við og
þess háttar.“
Helen segir gesti sýningarinnar
umfram allt eiga von á hefð-
bundinni skúlptúrsýningu.
„Tvær mannhæðarháar rósir, eitt
risastórt hjartahálsmen og einn
smáhlutur sem er örlítið meira
abstrakt, en ber titilnafn sýn-
ingarinnar.“
Djúpur sannleikur Lil Wayne
Helen skrifaði lokaritgerð um tón-
listarmanninn Lil Wayne.
Hvernig kom það til?
„Hann móðgaði mig svo mikið
í fyrsta skipti sem ég heyrði
lag eftir hann að það kannski
reyndist ekki erfitt einhvern
veginn að fá uppreist æru. Það fór
svo í taugarnar á mér að einhver
skyldi gera mikið verra lag en
upphaflega lagið af sömu tón-
listartegund. Mér fannst tilvist
þess því truflandi. En svo gerðist
eitthvað fyrir svona fimm árum.
Ég setti lagið á í gríni og fílaði það
betur en upphaflega Outkast-
lagið og skildi ekki hvernig það
gat gerst án þess að ég hefði heyrt
það allan þennan tíma,“ útskýrir
Helen.
Lagið sem um ræðir er lagið
Jazzy Belle með Outkast en endur-
hljóðblöndun Lil Wayne er hið
stórgóða Pussy, Money, Weed.
Helen segir margt heillandi við
textasmíðar Lil Wayne. „Það væri
þá einhver innsæ, ljóðræn dýpt
sem mér finnst svo oft vera til
staðar. Það er eitthvað við þessa
dagbókarlegu texta sem ná ein-
hverju fram sem er ekki oft sett
fram á þennan hátt.
Hálft lagið snýst kannski um
hvað hann er góður í kynlífi en
svo læðast inn setningar sem eru
einhver svona algildur djúpur
sannleikur um ást og tilfinn-
ingar. Þannig að kannski þegar
það kemur, kemur það á óvart og
nístir mig á annan hátt. Það er líka
þetta við að henda endalaust út
af efni þar sem leynast demantar
og drasl.
Mér finnst mjög skemmtilegt að
vera bombarderuð af alls konar
efni og þurfa sjálf að sjá um að sor-
tera og ákveða hvað það er sem mér
finnst gott og hvað ekki. Sérstak-
lega á vettvangi tónlistar sem ég er
ekkert sérstaklega vitur á. En fyrir
mér hefði hann alveg eins getað
verið Lana del Rey. Sem gerir texta
sem ég elska fyrir sömu hversdags-
legu ljóðrænuna, en hún er ekki
með sömu brestina og heildarkons-
eptið hennar er miklu skiljanlegra.
Gott lag, vont lag, dæmi.“
Hvernig er annars að vera lista-
kona á tímum COVID?
„Ég er á vernduðum stað í námi
þannig að reynsla mín í raun-
heimum er ekkert sérstaklega
víðtæk en hins vegar hefur þessi
almenni COVID-kvíði líklega
læðst inn hjá f lestum og hefur
auðvitað sett sitt mark á þessa
tíma. Maður er stanslaust að
takast á við mjög miklar and-
stæður um það sem skiptir máli í
lífinu. Þannig að tilfinningin við
að búa til list þegar það er heims-
faraldur verður ýkt tilgangslaus
en við það öðlast hún einhverja
ofsafegurð líka.“
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@
frettabladid.is
Ýkt, tilgangslaus ofsafegurð
Helen Svava
Helgadóttir
stendur nú fyrir
einkasýningu
í húsakynnum
Listaháskólans
á Laugarnesi.
Sýningin verður
uppi frá 12.-21.
mars. FRÉTT-
BLAÐIÐ/STEFÁN
Helen Svava Helgadóttir opnaði
nýverið einkasýninguna Augn-
lok. Helen fær innblástur víða,
hvort sem það er úr YouTube-
kommentum, glitrandi hafinu
í Feneyjum eða frá tónlistar-
manninum Lil Wayne.
4 kynningarblað A L LT 13. mars 2021 LAUGARDAGUR