Fréttablaðið - 13.03.2021, Qupperneq 39
Grænir skátar sérhæfa sig í að
sækja drykkjarumbúðir með
skilagjaldi í fyrirtæki, húsfélög
og veitingahús, sem síðan fá
hluta ágóðans til baka í formi
einfaldrar peningagreiðslu.
Torfi Jóhannsson hefur starfað hjá
Grænu skátunum í fimm ár. „Það
sem við erum að gera almennt
er að hjálpa fyrirtækjum, veit-
ingahúsum og húsfélögum með
hagkvæmar endurvinnslulausnir
á drykkjarumbúðum með skila-
gjaldi. Við komum og sækjum,
sköffum ílát ef þarf, og greiðum
til baka ákveðið skilagjald. Þá
er þetta ekki að safnast upp eða
enda í ruslinu,“ útskýrir hann.
Þrjú gildi að leiðarljósi
„Grænir skátar hafa boðið þessa
þjónustu í einhver tíu ár. Hug-
myndin kviknaði eins og margar
aðrar svipaðar hugmyndir þegar
það fréttist að við værum að sækja
í gáma og fyrirtæki fóru að biðja
okkur um að koma þegar mikil
hrúga hafði safnast upp. Við
höfum líka verið með dósagám-
ana okkar á grenndarstöðvum
og endurvinnslustöðvum núna í
einhver 32 ár.“
Starfsfólk Grænu skátanna
kemur úr ýmsum áttum. „Hjá
okkur starfa meðal annars yfir 20
einstaklingar sem eru með skerta
starfsgetu, eða þurfa vinnu með
stuðningi. Það hefur alltaf verið
rauði þráðurinn í okkar vinnu,
að geta boðið þeim upp á þennan
möguleika í vinnu.“
Torfi segir starfsemi Grænu
skátanna fyrst og fremst byggjast
á þremur gildum. „Við tölum alltaf
um að við séum að vinna eftir
þessum þremur gildum, það er þá
endurvinnslan sem snýr að því
að bæta hag umhverfisins, síðan
að bjóða þessum hópi sem þarf
stuðning í vinnu ákveðið tækifæri
á að vera í vinnu og svo að efla
æskulýðsstarfið með styrkjum til
skátanna. Grænir skátar eru í eigu
Bandalags skáta og allur ágóði
rennur til stuðnings æskulýðs-
starfi skátanna.“
Þægilegt og einfalt
Ferlið er afar einfalt og þægilegt.
„Fyrirtækið sér bara um að safna
í tunnuna eða pokann hjá sér og
við komum svo og sækjum og
skilum því í réttan farveg. Þetta er
hagur fyrir alla – það vinna allir
sem koma að þessu.“
Torfi segir þetta fyrirkomulag
hafa reynst afar vel auk þess sem
það endurspegli aukna áherslu
á umhverfisvitund. „Þessi lausn
sem við erum að bjóða í þessu
umhverfisátaki sem heimurinn
er í nýtur sífellt meiri vinsælda.
Við höfum orðið vör við töluverða
ásókn í að nýta þessa þjónustu.“
Þjónustan stendur öllum til
boða. „Allir geta nýtt sér þetta.
Svo er þetta bara eins og gengur og
gerist, við prófum bara og sjáum
hvernig þetta virkar. Flestallir eru
hjá okkur lengi og hætta ekkert,
þetta er að virka vel. Við tökum
við öllu með svokölluðu skila-
gjaldi. Alveg sama hvað það er og í
hvaða ljósi.“
Það er allur gangur á því hversu
oft er sótt. „Við erum að þjónusta
hátt í 120 aðila á einhverjum tíma-
punkti í hverjum mánuði. Það er
mismunandi tíðni eftir því hversu
mikið hefur safnast. Allt frá því að
fara tvisvar í viku í sum húsfélög
yfir í að fara einu sinni í mánuði í
önnur. Þá stillir maður tíðnina og
annað, bæði eftir því sem hentar
húsfélögunum og okkur.“
Aukning síðasta árið
Ólíkt mörgum öðrum fyrirtækjum
hefur verið óvenjumikið að gera
hjá Grænu skátunum undanfarið
ár. „Síðasta árið hefur verið gott á
marga vegu. Það er meira af fólki
heima fyrir og meiri neysla og
þessi mikla aukning hefur skilað
sér vel til okkar. Við erum eitt af
þeim fyrirtækjum sem hafa fundið
jákvæða breytingu á þessum
COVID-tímum,“ segir Torfi.
„Við höfum líka mikið verið að
þjónusta íþrótta- og skólahópa
síðustu tvö ár. Það er oft þannig að
þá er fólk frá íþróttafélögunum að
labba í hús og við sjáum um rest.
Þetta hefur gengið ákaflega vel og
það hefur verið meira að gera síðasta
árið. Við erum núna í samstarfi
við einhver 6-8 íþróttafélög og það
hefur gengið afskaplega vel fyrir sig.“
Einstaklingar geta einnig stutt
við Grænu skátana á einfaldan
hátt. „Einstaklingarnir skila í
gámana á grenndarstöðvum og á
Sorpustöðvunum á höfuðborgar-
svæðinu, þar tökum við svo við
umbúðunum. Allur ágóðinn
rennur svo sem fyrr segir beint í
æskulýðsstarf skátanna hringinn í
kringum landið.“
Hægt er nálgast frekari upp-
lýsingar í síma 550-9800 og á
graenirskatar.is
Við sækjum, þú færð greitt – eintóm hamingja
Torfi Jóhanns-
son í Grænum
Skátum segir
starfsemina
byggjast á
þremur gildum.
Þau snúi að um-
hverfinu, því að
veita hópi sem
þarf stuðning í
vinnu tækifæri
til að vinna og
síðan að styrkja
æskulýðsstarf
Skátanna. MYND/
KRISTINNÓLAFSSON
Fyrirtækjaþjónusta Grænu skátanna nýtur mikilla vinsælda. Flokkunartunnur Grænna skáta passa í allar geymslur, stórar sem smáar.
kynningarblað 3LAUGARDAGUR 13. mars 2021 NYTJAHLUTIR OG ENDURVINNSLA