Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 47
47
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
oft sézt við Ísland, en það hefir
sjaldan verið fært í letur nema á
17. öld, þegar menn töldu slíkt
fyrirboða merkilegra viðburða.
Blóðlitur þessi hefir eflaust kom-
ið af fjölgun smádýra eða jurta í
sjónum.“ Hann tekur upp frásögn
Hestsannáls af blóðsjó á Skagafirði
1712, og segir að þessa fyrirbæris
sé miklu oftar getið í annálum.11
[Heimildir um blóðsjó á 19. öld
getur víða verið að finna, svo
sem í fréttapistlum í gamla Skírni,
Almanaki Þjóðvinafélagsins og í bók-
inni Annáll 19. aldar I–VI eftir Pétur
Sigurðsson, en seinlegt er að leita
þeirra.]
Sigfús Sigfússon hefur smá-
kafla undir fyrirsögninni „Blóðsjór“
í þjóðsögum sínum, er hann ritaði
á tímabilinu 1900–1920, og getur
þar um blóðsjó í Reyðarfirði 1852.
Það er til að sjór og vatn sýnist
verða eins og blóð á litinn og
vita menn nú orðið að það
kemur af þarategundum, smá-
urtum. Sama getur orðið með
vatn. Fyrr meir trúðu menn því
að þessi litur vatns boðaði stríð
og blóðsúthellingar. Síðar meir
þótti það vita á mjög mikil
harðindi og það enda síðan
menn vissu af hverju liturinn
kom. Þessi furða segja menn að
oft hafi sést á Norður- og Austur-
landi. Hefir það þá þótt boða
harðan vetur. Halldór Jónsson,
nefndur af sumum kúði, sagði
að haustið 1852 hafi Reyðar-
fjörður eystra orðið rauður sem
blóð og óhreinn mjög, þ.e.
blandinn einlægum urtaflækjum.
Vetur hinn næsti var mjög
harður eystra, svo fjarðamenn
og útsveitungar ráku unnvörpum
á uppsveitir fénað sinn.12
Í Íslenskum sjávarháttum Lúðvíks
Kristjánssonar, I.–V. bindi, 1983–
1986, er aðeins minnst á blóðsjó á
einum stað, í II. bindi: „Oft er getið
um blóðöldu og blóðsjó í annálum,
einkum frá 18. öld, en liturinn talinn
stafa frá fjölda smádýra eða urta
í sjónum.“ (Vitnað er í þjóðsögur,
annála og Lýsingu Íslands).13
Blóðsjórinn rannsakaður
Á árunum 1903–1905 fór danska
rannsóknaskipið Thor nokkrar ferðir
til að kanna sjó og sjávarlíf kringum
Ísland og fékk Bjarni Sæmundsson
dýrafræðingur að vera með í þeim
ferðum þegar hann gat eða vildi.
Hann sagði frá þessum ferðum í
nokkrum greinum í blaðinu Ísafold.
Í grein sinni 1904 ritar hann um
blóðsjó í Seyðisfirði:
Þegar vér komum inn í Seyðis-
fjörð var sjór þar sótrauður á
stórum blettum; það var blóð-
sjór, sem kallað er. Vér námum
staðar og skutum út silkiháfun-
um. Í þann sem var allra þétt-
astur fekst dálítið af rauðu efni,
sem reyndist í smásjá vera
urmull af örsmáum frumdýrum,
líkum í laginu kringlóttum hatti
með uppbrettum börðum og
bifhárum hringinn í kring. Þessi
dýr eru svo smá að þau fara í
gegnum tálknagrind síldar-
innar; enda var engin síld með
þeim.144. mynd. Blóðsjór. Ljósm.: Alexis, 17. júlí 2005.