Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 49
49
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
blóðsjó og önnur óvenjuleg fyrir-
bæri í sjónum.
Samkvæmt ofangreindum rann-
sóknum virðist rauðlitun sjávar geta
stafað af ýmsum örsmáum þörung-
um eða frumdýrum í sambýli við
þörunga, sem gefa þeim lit.
Blóðsjór mun vera nokkuð algengt
fyrirbæri, a.m.k. á norðlægum haf-
svæðum, og gætir hans að jafnaði
mest við strendur og í fjörðum. Á
ensku kallast blóðsjórinn red tide
(rauðflæði), sem virðist alkunnugt
hugtak í Bretlandi og Norður-
Ameríku. Á alnetinu eru fleiri en
milljón færslur skráðar og við laus-
lega yfirsýn virðist red tide oftast
vera tengt eitruðum þörungum af
flokki skoruþörunga. Hins vegar
hafa ekki fundist samsvarandi orð
á öðrum Norðurlandamálum eða
þýsku. Í hinni norsku Aschehougs
Konversasionsleksikon finnst það
ekki og í Orðabók Blöndals er blóð-
sjór nefndur rødfarvet Havvand á
dönsku. Af því mætti ráða að fyrir-
bærið sé fátítt við strendur Norður-
landa og Þýskalands.
Rauðátuflekkir sem
blóðsjór
Í skýringum Eggerts Ólafssonar og
Ólafs Olaviusar, sem tilgreindar
voru hér að framan, nefna þeir
‚sjávarskordýr‘ sem hugsanlega
skýringu á blóðsjó, og eiga þá eflaust
við smákrabbadýr. Af ummælum
Bjarna Sæmundssonar í Ísafoldar-
grein hans 1904 er svo að skilja
að blóðsjór geti orsakast af rauðátu
(Calanus finmarchicus), sem er norð-
lægt krabbadýr, rautt á lit, allt að
0,5 cm langt, sem oft kemur að
ströndum landsins á vorin og er upp-
áhaldsfæða síldarinnar (7. mynd).
Bjarni ritar:
Stundum kemur blóðsjór af rauð-
um smákröbbum, sem eru risar
í samanburði við þessar agnir
[þ.e. frumdýrið M. rubrum]. Það
er meiri síldarvon þegar þess
konar blóðsjór er; þau eru
síldarfæða.21
Í bókinni Sjórinn og sævarbúar
(1943) segir hann um rauðátu: „Þar
sem hún er þétt lítur hún til-sýndar
út eins og rautt grugg.“ Hann segir
rauðátu koma fyrst að suðurströnd-
inni snemma vors en síðan berist hún
með hlýsjónum umhverfis landið.22
Árni Friðriksson segir í Síldarsögu
Íslands að rauðáta sé afar algeng „og
litar oft sjóinn rauðan á stórum svæð-
um. Náskyld tegund (C. hyperboreus)
er einnig mjög algeng.“23
Í Lesbók Morgunblaðsins 1952 er
smágrein um blóðlit á sjó, líklega
skrifuð af Árna Óla ritstjóra hennar.
Þar segir m.a.: „Nú er þess beðið
með óþreyju á hverju sumri að
blóðliturinn sjáist, því að honum
fylgir síldin. Þessi blóðlitur hefir
ekki verið annað en rauðátan.“
Síðan vitnar hann í Síldarsögu
Íslands.24
Jón Jónson (1994) virðist telja
blóðsjó til vitnis um gott ástand í
lífríki sjávar. Hann ritar:
Frekari dæmi um hagstætt
árferði til sjávar komu fram í frá-
sögnum annála af svonefndum
blóðsjó (þörungablóma) á Eyja-
firði haustið 1765. Blóðsjór sást
ennfremur víða við Norðurland
1767. Þetta haust gekk mikið af
smáþorski inn á firði og fjarðar-
botna norðanlands, svo að fáir
þóttust muna slíkt. (Höskulds-
staðaannáll, bls. 526, 527.)25
Samband blóðsjávar og fiskveiða
kemur líka fram í Ballarárannál 1650,
sem fyrr segir.
Jón Karl Úlfarsson á Eyri,
Fáskrúðsfirði, sem til fullorðinsára
átti heima á Vattarnesi við Reyðar-
fjörð og alla ævi stundaði sjósókn á
Austfjörðum, Vestmannaeyjum og
víðar, minnist þess ekki að hafa
séð blóðsjó eins og hér er lýst eftir
heimildum, en fyrr á árum gerð-
ist það stundum að sjórinn á mið-
um Vattarnesinga litaðist rauður
á flekkjum af rauðátu á vorin, en
hann segist ekki hafa séð rauðátu
við Austurland í seinni tíð (munnl.
heimild 27.03.07).
Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku
í Mjóafirði segist kannast við „átu-
flekkina“ rauða og gráa, og telur að
mikil rauðáta hafi stundum gefið
sjónum rauðan lit og það hafi líklega
verið nefnt blóðsjór. Einnig hafi
sumir sjómenn ráðið í síldargöngur
af lit sjávar.26
Af þessum dæmum virðist ljóst
að sjómenn og jafnvel fræðimenn
hafa kallað rauðátuflekkina blóð-
sjó. Hins vegar getur það varla gilt
sem almenn skýring á fyrirbærinu,
heldur verður að skoðast sem önnur
merking orðsins. Íslenskum sjómönn-
um verður varla ætlað annað en
að þeir hafi þekkt rauðátuna, sem
sést vel með berum augum og var
árviss á miðunum, svo naumast var
ástæða til að færa hana í annála eða
tengja við ógnvænlega atburði. Auk
þess stemma lýsingar annála ekki
við það.
7. mynd. Rauðáta (Calanus finmarchicus) og rauðátulirfa (Nauplius) til hægri.22