Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 84
B
ókin „Þegar karlar stranda – og
leiðin í land“ eftir Sigríði Arnar-
dóttur (Sirrý) kom út árið 2020.
Bókin er gefin út í samvinnu við
VIRK líkt og bókin „Þegar kona brotnar – og
leiðin út í lífið“ sem kom út árið áður.
Höfundurinn Sirrý segir að spurningar
hafi vaknað í kjölfar fyrri bókarinnar sem
hún vann í samstarfi við VIRK um hvernig
þessum málum sé háttað hjá karlmönnum.
Kulna þeir, örmagnast eða brotna þeir?
Sirrý lýsir bókinni sem viðtalsbók við sigur-
vegara, karla sem hafa strandað í lífinu en
rifið sig upp og náð landi í einkalífi og starfi.
Langvarandi streita, örmögnun og alvarleg
áföll virðast ýta undir það að æ fleiri, karlar
EYSTEINN EYJÓLFSSON verkefnastjóri hjá VIRK
BÓKARÝNI
ÞEGAR KARLAR STRANDA – OG LEIÐIN Í LAND
og konur, lenda í ógöngum og hrekjast
jafnvel af vinnumarkaði. Staðreyndin er sú
að við karlar tölum síður um líðan okkar.
Við veljum margir hverjir að bíta á jaxlinn
og bera harm okkar í hljóði.
Bókin samanstendur af viðtölum við karl-
menn á ólíkum aldri, úr ólíkum áttum og
með mismunandi stöðu í samfélaginu
sem veita einstaka innsýn í líf sitt og
líðan. Hópur viðmælenda er fjölbreyttur:
framkvæmdastjóri, starfsmaður á leikskóla,
vörustjórnunarfræðingur, sjómenn, grafísk-
ur hönnuður, leikari og húsasmiður.
Reynslusögur karlanna eru mismunandi
eins og þeir eru margir en þeir eiga það allir
sameiginlegt að hafa strandað og upplifað
verulega vanlíðan. Þeir gátu ekki unnið,
festust í óvirkni og voru við það að gefast
upp. Þeir segja frá ólíkri reynslu sinni,
allt frá því að detta úr skóla eða vinnu og
festast við tölvuna í ofsakvíða og óvirkni yfir
í að upplifa langvarandi streitu og ofurálag
í stjórnendastarfi og lenda í alvarlegri
kulnun. Allir eiga það sameiginlegt að grípa
til aðgerða, opna sig um líðan sína, fara að
vinna í sínum málum og komast í land.
Í bókinni er einnig fjallað um það hvernig
karlmenn fyrri tíma brugðust við örmögnun
og áföllum og rætt við sálfræðing og félags-
ráðgjafa um veruleika þeirra sem stranda í
lífinu sem gefur bókinni aukna dýpt og gildi.
Rúnar Helgi Andrason sálfræðingur segir að
84 virk.is