Fréttablaðið - 05.06.2021, Side 6

Fréttablaðið - 05.06.2021, Side 6
Samkvæmt svari Kópavogsbæjar var grindverkið sett upp að beiðni eins íbúa í götunni. Við ætlumst til að félögin taki til í þessum málum hjá sér. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir. Það þarf að taka til í kvenfyrirlitningu í karlaklefum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þögn ÍSÍ hefur vakið athygli í nýjustu #metoo bylgju, enda hafa sögur tengdar íþróttum verið allt annað en fallegar. Sambandið sendi loks frá sér bréf til allra sem tengjast íþróttastarfi á Íslandi og for- dæmir þar allt ofbeldi í starf- semi íþróttahreyfingarinnar. benediktboas@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Íþrótta- og Ólympíusam- band Íslands (ÍSÍ) ítrekar með bréfi til allra sem tengjast íþróttastarfi á Íslandi að sambandið fordæmi allt of beldi í starfsemi íþróttahreyf- ingarinnar, enda sé slík hegðun óásættanleg og ólíðandi með öllu. Á undanförnum vikum hefur umræða um kynbundið of beldi blossað upp á ný í tengslum við #metoo. Margar frásagnir hafa birst þar sem íþróttamenn koma við sögu og kynferðisbrot í íþróttastarfi og einnig hefur verið bent á að kven- fyrirlitningu megi finna alltof víða í karlaklefum landsins. Margir hafa undrast þögn ÍSÍ í þessari bylgju enda hægt að túlka þögn sem afstöðu. Ástæðan var ársþing sambandsins svo það náðist ekki að koma stjórninni saman fyrr. „Mér finnst mjög mikilvægt að við sýnum að okkur er ekki sama og við ætlumst til að félögin taki til í þessum málum hjá sér,“ segir Kol- brún Hrund Sigurgeirsdóttir, sem situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ. Um miðjan maí sýndi knatt- spyrnukappinn Garðar Gunnlaugs- son stuðning sinn í verki í viðtali í útvarpsþættinum Lestinni á RÚV og ræddi um hversu karllæg umræðan í knattspyrnuklefum getur verið. „Þar hallar oft á konur og minni- hlutahópa. Þetta eru oft umræður sem stjórnað er af tveimur til þrem- ur í klefanum og hinir humma og fylgja með og eru meðvirkir. Ég er ekkert saklaus, búinn að vera í þess- um heimi í 20-30 ár,“ sagði Garðar meðal annars. Hann skoraði í kjöl- farið á íþróttamenn og sérstaklega fótboltamenn að stíga fram og sýna stuðning. Enginn hlýddi kallinu. Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs ÍSÍ  tekur á móti tilkynningum um atvik sem upp koma og veitir þolendum ráðgjöf, stuðning og fræðslu. Á heimasíð- unni samskiptaradgjafi.is er hægt að tilkynna um atvik sem verða í íþróttum, fá ráðgjöf og finna fræðsluefni tengt málaflokknum. „Einnig leggjum við ríka áherslu á að við öll sem að íþróttahreyfing- unni stöndum tökum skýra afstöðu gegn hvers kyns kvenfyrirlitningu, áreitni og of beldi og tökum öllum málum sem upp koma þess efnis alvarlega. Þjálfarar og stjórnarfólk er hvatt sérstaklega til að vinna markvisst að því að byggja upp heil- brigða klefamenningu sem laus er við kvenfyrirlitningu og of beldi,“ segir í bréfi ÍSÍ. Kolbrún bendir á að það sé gríðar- lega mikilvægt að koma skýrum skilaboðum út varðandi afstöðu til kynferðisof beldis, kynbundins of beldis og kvenfyrirlitningu. „Okkur þykir vont að finna og heyra nú í kjölfar annarrar bylgju #metoo að innan íþróttahreyfingarinnar hafi ekki alls staðar verið tekið á þessum málum,“ segir Kolbrún. n Kvenfyrirlitningin í karlaklefunum fordæmd af ÍSÍ eftir skelfilegar sögur arib@frettabladid.is MENNING Menningarfélag Akur- eyrar skorar á Akureyrarbæ, Sam- tök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og menntamálaráðuneytið, að stefna á að Akureyri verði Menn- ingarhöfuðborg Evrópu. Samhliða því skorar Menning- arfélagið á stjórnvöld að Þjóðar- óperan verði með aðsetur í Hofi, sýningar verði þó f lestar áfram í Reykjavík. „Þetta eru mjög háleit markmið,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfé- lagsins. „Við sjáum þetta sem tæki- færi til að horfa heildstætt á menn- ingarstarf á Akureyri, fá aukin tækifæri til erlends samstarfs og efla þekkingu hérna á erlendu styrkja- kerfi. Umsóknarferlið sjálft stuðlar að framþróun í menningarmálum.“ Þreifingar hafa átt sér stað við bæjaryfirvöld og á Þuríður ekki von á öðru en að bærinn og nágranna- Vilja verða Menningarhöfuðborg og fá óperuna Þuríður Helga Kristjánsdóttir segir að mark- miðin séu háleit en allar for- sendur séu fyrir hendi. HVAÐ VILTU LÆRA? Umsóknarfrestur til 5. júní. Skoðaðu nánar á endurmenntun.is Opið er fyrir umsóknir í nám samhliða starfi. Persónulegt og metnaðarfullt nám með framúrskarandi kennurum, góðum tengslum milli nemenda og raunhæfum verkefnum úr atvinnulífinu. sveitarfélög fylki sér að baki umsókninni. Næsta skref er síðan að senda formlegt erindi til ráðu- neytisins. Í kjölfarið yrði þá send umsókn til Evrópusambandsins. „Þetta er langt ferli, við værum að stefna á að verða Menningarhöfuð- borg Evrópu árið 2028 eða 2030,“ segir Þuríður. Varðandi Þjóðaróperuna þá segir Þuríður að hægt sé að nýta sam- legðaráhrifin af annarri starfsemi Menningarfélagsins. n thorgrimur@frettabladid.is SKIPULAGSMÁL „Þessi girðing kom bara upp,“ segir Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, um grindverk sem reis nýlega við enda Fagrahjalla og veldur deilum meðal bæjarbúa. Gagnrýnisraddir segja girðinguna torvelda gönguleið um hverfið. Sigurbjörg hefur efasemdir um að staðið hafi verið að framkvæmdinni með réttum hætti. „Ég er í skipulagsráði og við erum með fulltrúa í umhverfis- og sam- göngunefnd líka, en þetta kom fyrir hvoruga nefndina. Íbúar í hverfinu vissu ekki af þessu fyrr en girðingin var hálfrisin,“ segir Sigurbjörg. Girðingin er við enda botnlanga sem liggur af Fagrahjalla út á Fífu- hjalla og lokar um hann göngu- umferð. „Ég veit ekki hver hagurinn er í þessu fyrir vegfarendur, þar sem þeir þurfa núna að fara tvisvar yfir götuna og alveg jafn nálægt gatna- mótum. Öruggast hefði verið að gera ráð fyrir vegfarendunum og setja gangbraut.“ Sigurbjörg bendir á að börn séu líklegust til að fara fótgangandi um hverfið. Ámælisvert sé að staðið hafi verið að verkinu með þessum hætti þar sem sveitarfélagið fékk nýlega viðurkenningu frá UNICEF fyrir framkvæmd sína á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt svari Kópavogsbæjar við fyrirspurn Sigurbjargar var girð- ingin reist að beiðni eins íbúa botn- langans. „Mér finnst það sérstakt, að það sé nóg að einn íbúi biðji um þetta,“ segir Sigurbjörg. Málið er á dagskrá skipulagsráðs á mánudag. n Grindverk veldur deilu í Kópavogi Gönguleið í botnlanga í Fagrahjalla er nú lokuð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 6 Fréttir 5. júní 2021 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.