Fréttablaðið - 05.06.2021, Qupperneq 16
Arnar Helgi Lárusson, for-
maður SEM samtakanna,
ætlar að hjóla 400 kílómetra
á einum sólarhring í lok júní.
Með þessu vill hann minna
á mikilvægi hreyfingar fyrir
hreyfihamlaða og hvetja fólk
til að leggja samtökunum lið.
HJÓLREIÐAR Handahjólreiðamað-
urinn Arnar Helgi Lárusson lenti
í mótorhjólaslysi í september árið
2002, þá 26 ára gamall, en í því slysi
lamaðist hann frá brjósti og niður.
Arnar Helgi lét þó heldur betur
ekki deigan síga þrátt fyrir hreyfi-
hömlunina en hann snéri sér f ljót-
lega að íþróttum, fyrst lyftingum,
svo hjólastóla-race og nú handa-
hjólreiðum. Þessa dagana undirbýr
Arnar Helgi, sem er formaður SEM
samtakanna, en það eru Samtök
endurhæfðra mænuskaddaðra,
sig undir að hjóla 400 kílómetra á
einum sólarhring í lok júní.
Arnar Helgi, í samvinnu við
SEM og Íþróttasamband fatlaðra,
vill með þessu vekja athygli á því
að hreyfihamlaðir geta vel haldið
áfram að stunda hreyfingu þrátt
fyrir skerðingu á hreyfigetu og að
það séu mikil lífsgæði fólgin í því að
njóta aðgangs að tækjum og tólum
til þess að hreyfa sig.
Þá er Arnar Helgi um leið að biðla
til fólks um aðstoð við að fjármagna
kaup á fjórum hjólum sem sérhönn-
uð eru fyrir hreyfihamlaða. Hug-
myndin sé að þau geti verið til láns
fyrir áhugasama án endurgjalds.
„Undirbúningur fyrir þennan
langa hjólatúr gengur mjög vel og ég
hef síðustu daga verið að hjóla allt
upp í rúma 200 kílómetra í einum
legg og er að nálgast 8.000 kílómetra
á þessu ári.
Ég hef fulla trú á að ég geti þetta,
en um leið er ég meðvitaður um að
líkaminn gæti hafnað þessu uppá-
tæki mínu og þá bara fer það svo.
Það er allt í góðu,“ segir Arnar Helgi,
um stöðu mála í undirbúningnum
fyrir tilraun sína.
Ekki mörgum tekist að gera
þetta
„Það eru ekki margir sem hafa leikið
þetta eftir í heiminum, þannig að
þetta er þónokkuð afrek ef mér
tekst þetta. Með þessu vil ég vekja
athygli á mikilvægi þess fyrir þá
sem verða fyrir mænuskaða að
stunda áfram hreyfingu, bæði fyrir
andlega og líkamlega líðan.
Fólk þarf alls ekki að vera í jafn
miklu formi og ég er að gera, það
er bara hreyfingin sem skiptir
máli. Þetta er hreyfing sem hentar
mér þar sem ég er mjög aktífur að
Ætlar að hjóla 400 kílómetra í einum legg
Um leið og Arnar
Helgi er að vekja
athygli á mikil-
vægi hreyfingar
hefur hann sett
af stað söfnun
SEM-sam-
takanna fyrir
fjórum sérút-
búnum hjólum
sem til stendur
að lána endur-
gjaldslaust.
Arnar Helgi
Lárusson hefur
búið til glæsi-
lega aðstöðu
til æfinga í
bílskúrnum
á heimili
sinu í Njarð-
vík. Þar æfir
hann af kappi
fyrir hjóla túrinn
þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Hjörvar
Ólafsson
hjorvaro
@frettabladid.is
eðlisfari. En ég fæ líka mikið út úr
því að að hjóla bara í rólegheitum
úti í náttúrunni með fjölskyldu og
vinum,“ segir hann enn fremur.
Vilja eiga hjól svo fólk geti prófað
„Um leið og ég er að benda á mikil-
vægi hreyfingar hef ég sett af stað
söfnun fyrir kaupum SEM-sam-
takanna á f jórum sérútbúnum
hjólum. Þetta eru hjól sem kosta um
2,5 milljónir og við myndum lána
hreyfihömluðu fólki þau endur-
gjaldslaust til þess að hvetja það til
að fara út að hjóla.
Hjólin eru með mismunandi still-
ingum á erfiðleikastigi og henta því
bæði í rólega hjólatúra og svo meira
krefjandi hreyfingu.
Ódýrustu hjólin fyrir hreyfi-
hamlaða kosta rúma milljón og það
segir sig sjálft að það er ekki farið
út í slíkja fjárfestingu fyrir nokkra
hjóla túra í mánuði. Auk þess sem
það eru ekki allir af lögufærir um
að borga slíka upphæð fyrir afþrey-
ingu sína,“ segir Arnar Helgi.
„Ég fékk sjálfur veglega gjöf frá
Lions í Njarðvík eftir að ég varð
fyrir slysinu, en á þeim tíma hefði
ég ekki haft tök á því að borga fyrir
slíkt hjól. Ég verð Lions ævinlega
þakklátur fyrir þá gjöf, sem hefur
verið mér algerlega ómetanleg,“
segir þessi frábæri íþróttamaður.
Hafa hug á að byggja upp aðstöðu
„Stefnan er að hjóla á góðviðrisdegi
í lok júní og ég mun byrja austarlega
á landinu og vinna mig suður en ég
enda á Selfossi þar sem verður tekið
á móti mér og við verðum búin að
raka saman þeim búnaði sem til er á
Íslandi sem nýtist hreyfihömluðum
til hreyfingar til að hafa til sýnis.
Ég er mjög spenntur fyrir þessu
og vona að fólk taki vel í þetta. Ég
og Jóhann gjaldkeri í stjórn SEM
höfum sent út nokkuð hundruð
tölvupósta og erum að vonast eftir
því að fá sem flesta með okkur í lið
því það er samfélaginu öllu til góðs
að þetta verði að veruleika.
Planið er auk þess að fjárfesta í
hjólum og að kaupa einnig kajaka
sem dæmi, og annan búnað sem
hentar hreyfihömluðum vel til
hreyfingar.
Þá er langtímamarkmiðið að
byggja upp aðstöðu þar sem hreyfi-
hamlaðir geta komið saman og æft
þannig að þeir þurfi ekki að vera
hver í sínu horninu í bílskúrnum
sínum að æfa það sem þeir vilja
æfa,“ segir formaðurinn um fram-
haldið. n
Með þessu
vil ég vekja
athygli á
mikilvægi
þess fyrir
þá sem
verða fyrir
mænu
skaða að
stunda
áfram
hreyfingu.
hjorvaro@frettabladid.is
HANDBOLTI KA/Þór á möguleika á
því að verða Íslandsmeistari í hand-
bolta kvenna í fyrsta skipti í sögu
félagsins, þegar liðið sækir Val heim
í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíg-
inu um titilinn, sem fram fer í Origo-
höllinni að Hlíðarenda á morgun.
Norðankonur fóru með sigur af
hólmi, 24-21, í fyrsta leik liðanna
norðan heiða á fimmtudagskvöldið.
KA/Þór hefur nú þegar brotið blað í
sögu félagsins fyrr á þessari leiktíð
með því að verða deildarmeistari.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir skoraði
átta mörk í leiknum á fimmtudag-
inn og hafa Ágúst Þór Jóhannsson
og Óskar Bjarni Óskarsson líklega
varið drjúgum tíma í undirbún-
ingnum milli leikja í að fara yfir
leiðir til þess stöðva hana.
Auk þess að leggja mest í púkkið
við markaskorun býr Rut til afar
mikið fyrir leikmennina í kringum
sig. Þá gekk herbragð Andra Snæs
Stefánssonar, þjálfara Þórs/KA, að
spila sjö á sex í uppstilltum sóknar-
leik seinni hluta seinni hálf leiks,
afar vel upp.
Hjá Val var Lovísa Thompson
atkvæðamest með átta mörk sömu-
leiðis en þessir tveir leikmenn
mættust sitt hvorum megin á vell-
inum í leiknum á Akureyri.
Í gær var tilkynnt að stór hluti
leikmannahóps KA/Þórs muni leika
áfram með liðinu næstu árin, en níu
leikmenn hafa framlengt samning
sinn við félagið.
Þannig hafa Rakel Sara Elvars-
dóttir, Hulda Bryndís Tryggvadóttir,
Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir,
Arna Valgerður Erlingsdóttir, Anna
Marý Jónsdóttir, Telma Lísa Elmars-
dóttir, Júlía Sóley Björnsdóttir, Hild-
ur Lilja Jónsdóttir og Sunna Katrín
Hreinsdóttir, fest sig til framtíðar
hjá KA/Þór.
Forsvarsmenn K A/Þórs ætla
að bjóða upp á fría rútuferð fyrir
stuðningsmenn liðsins en farið
verður í fyrramálið suður og til baka
eftir leik.
Valur er öllu vanari því að fagna
titlum í kvennaflokki í handbolta
en liðið er ríkjandi Íslandsmeistari
eftir að hafa haft betur gegn Fram
í rimmunni um titilinn vorið 2019.
Þar varð Valur Íslandsmeistari í 17.
skipti í sögu félagsins.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir,
sem hefur orðið Íslandsmeistari
sjö sinnum á ferli sínum, var öflug
að vanda í varnarleiknum hjá Val í
fyrsta leiknum en hún komst ekki á
blað í þeim leik og Valskonur þurfa
að ná að nýta hana betur í sóknar-
leiknum. n
Titillinn getur farið norður í fyrsta skipti í sögu félagsins
Hulda Bryndís Tryggvadóttir handsalar hér samning sinn. MYND/KA/ÞÓR
ÍÞRÓTTIR 5. júní 2021 LAUGARDAGUR