Fréttablaðið - 05.06.2021, Síða 30

Fréttablaðið - 05.06.2021, Síða 30
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Hilmar við skólaskipið Sæbjörgu sem er gamla Akraborgin. Hann segir Herjólf III vera tilvalið til að leysa gamla skólaskipið af hólmi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI einhvers staðar verða menn að fá að byrja og við leggjum áherslu á að vel sé tekið á móti nýliðum og þeim kennd störfin um borð, því þegar skipstjóri fær ungan og óharðnaðan ungling til sín í dag þarf að hafa hugfast að ungmenni nú hafa allt aðra lífssýn en við þegar við vorum á þeirra aldri. Þau eru af kynslóð sem hefur vanist því að vera keyrð á milli staða og dúllað sé í kringum hana. Því er mikilvægt þegar verið er að fóstra unga menn til sjós að ekki sé komið illa fram við þá vegna þess að þeir kunna ekki til verka eða gert grín að þeim. Það er það versta sem getur gerst og að láta sér detta í hug að beita einelti með því að láta unga, óreynda og óslípaða menn gera það sem þeir kunna ekki er ótækt. Þar verðum við eldri sjómenn að horfast í augu við að við erum að fá annan efnivið til sjós í dag en við fengum fyrir tuttugu árum, því samfélagið hefur breyst. Við eigum frekar að taka þeim fagnandi, styðja þá og styrkja.“ Í þessu samhengi minnist Hilmar þess þegar hann vantaði matsvein á skip. „Þá hringdi síminn: „Ég elda sko engan sjoppumat, pitsur eða ham- borgara!“ sagði matsveinn sem hafði verið á togara þar sem ungu strákarnir snæddu hvorki fisk né annan heimilismat. Tíðarandinn hefur hins vegar breyst, ungt fólk er vant meiri skyndibita en áður var og við þurfum að mæta því að einhverju leyti.“ Flest slys á skuttogurum Hilmar á sér draum fyrir hönd sjómanna. „Ég á mér draum um engin slys á sjó. Margir segja það óraun- hæft en ég er sannfærður um hið gagnstæða. Það kostar samstillt átak einnar starfsstéttar sem telur um 8.000 manns og það er ekki stór hópur til að ná svo verðugu takmarki fyrir sjálfan sig. Við höfum þegar náð að vinna bug á banaslysum og nú er það næsta verkefni, slysalaus sjómennska, en menn þurfa að fara varlega,“ segir Hilmar. Hann segir hafið ekki hættu- legra en bílaumferð í landi. „Hér áður var litið á sjómennsku sem ákveðinn fórnarkostnað. Það vissu allir sjómenn og stundum sagt að þegar fjórir bátar voru farnir í hafið með manni og mús á vetrarvertíð væru aðrir senni- lega sloppnir. Í dag eru skip stærri og öflugri, og veðurspár miklum mun nákvæmari. Það kemur í veg fyrir að sjómenn fari út í óvissuna. Menn eru ekki eins áfjáðir í dag að vera á hafi úti í snarvitlausu veðri og koma sér fyrr í var. Það köllum við góða sjómennsku, að fara vel með skip og áhöfn.“ Hilmar hefur verið í rannsókn- arnefnd sjóslysa og samgönguslysa frá árinu 1995. „Þar höfum við séð að flest slys verða hjá hásetum sem er jú lang- stærsti hópur sjómanna og að skut- togarar hafa reynst hættulegastir skipa. Slysahættur fyrirfinnast svo alls staðar en mér finnst verst þegar ég sé að skipstjóri hafi slasast því hann á að vera yfirmaður öryggismála um borð og öðrum fyrirmynd, sjá til þess að allir vinni af miklu öryggi, noti persónu- legan öryggisbúnað, tileinki sér öryggisatriði og byggi upp öruggt samfélag,“ segir Hilmar. Hann bendir á að í hverju skipi sé gerð krafa um framkvæmd áhættumats. „Með áhættumati, sem er lagaleg skylda, leita menn uppi hættur um borð og gera fyrirbyggjandi ráðstafanir. Við heyrum suma skipstjórnendur segja að áhættu- matið sé bara rugl en menn þurfa að horfa á þá staðreynd að vinnu- staður verður aldrei öruggari en  við gerum hann sjálf. Slys um borð eru engan veginn ásættanleg og menn þurfa að leggja vinnu í að koma í veg fyrir þau.“ Á 30 starfsárum hjá Slysavarna- skólanum hefur Hilmar séð miklar breytingar til batnaðar. „Sífellt f leiri átta sig á að öryggis- mál um borð skipta öllu máli því líf einstaklings sem verður fyrir slysi á sjó verður aldrei í líkingu við það ef hann væri heill og í launuðu starfi. Það vill enginn verða örkumla og bætur duga skammt til frambúðar. Því er sameiginlegt átak allra um borð að vinna að for- vörnum og ef menn vinna að þeim samviskusamlega fækkar slysum enn meir.“ Enginn verður fullnuma Á þrjátíu árum í Slysavarnaskóla sjómanna hefur Hilmar aldrei útskrifað einn einasta sjómann. „Það er vegna þess að það verður enginn fullnuma í slysavörnum og við getum alltaf gert betur. Hættulegast er að sofna á verð- inum, þegar við förum að gera lítið úr umhverfinu sem við vinnum í og menn tala okkur niður,“ segir Hilmar. Með Slysavarnaskólanum varð Ísland langt á undan öðrum þjóðum í forvörnum á sjó. „Það sýnir þor og vilja íslenskra stjórnvalda sem settu lög um öryggisvörslu, grunnfræðslu og endurmenntun allra íslenskra sjó- manna. Allt tók það stakkaskipt- um þegar þingmannanefnd undir stjórn Matthíasar Bjarnasonar, þingmanns og þáverandi ráðherra, var sett á laggirnar árið 1983 en Slysavarnaskólinn var stofnaður að tillögu þeirrar nefndar. Við höfum notið góðs af stuðningi stjórnvalda alla tíð og erum nú á öðru skólaskipinu sem þau hafa fært okkur; reyndar voru greiddar þúsund krónur fyrir fyrri Sæbjörg- ina, en núverandi Sæbjörgu fengum við frítt. Kannski þeim hafi þótt verðmiðinn of dýr á fyrra skipinu,“ gantast Hilmar með. Hann segir marga sjómenn kalla eftir kröfu um að þeir komi oftar til náms í Slysavarnaskólanum en á fimm ára fresti. „Þá finnst þeim ekki nóg að gert í þeirra skipum hvað varðar öryggi og forvarnir. Menn þurfa eðlilega að æfa sig í millitíðinni og í gegnum árin hef ég bent á að fái útgerðarmaður nýtt skip í hendur, sem kostar fjóra til sex milljarða, verður að gera kröfur um að öryggismálin séu í lagi. Skipstjóri má ekki hafa áhyggjur af því að áhöfnin kunni ekki að bregðast við ef eldur kviknar í skipinu eða slasi sig um borð í nýju skipi því þegar komið er af gömlum skipum þarf að breyta um vinnubrögð og fara sérstaklega varlega á meðan lært er á nýja skipið. Því hlýtur að vera krafa þegar menn fá nýtt skip beint úr skipasmíðastöð að þeir leggi mikla vinnu við öryggismál, læri á skipið og haldi þeim þannig að þau séu eftirsóknarverður vinnustaður þar sem engin vá gerist um borð, þegar kemur að slysum og áhöfn. Öryggið þarf að vera í lagi og þann- ig sjáum við breytingar verða til góðs.“ Andleg vellíðan í fyrirrúmi Í Slysavarnaskóla sjómanna er einnig hlúð að andlegri hlið sjó- manna. „Andleg og félagsleg vellíðan sjómanna er forsenda fyrir góðum árangri því nýliði sem er hræddur í vinnunni er dæmdur til að lenda í slysi. Sjómenn eru jú ímynd karl- mennskunnar; við erum harðir og stöndum þetta af okkur, en undir niðri eru menn líka mjúkir,“ segir Hilmar og heldur áfram: „Einelti á ekki að þekkjast til sjós en því miður eimir enn af því. Oft og tíðum gera menn sér ekki grein fyrir að þeir standi fyrir einelti og kalla það stríðni, en stríðni er einelti ef hún beinist að sama aðila, aftur og aftur. Einelti á ekki að líð- ast á meðal fullorðinna manna því það er mannskemmandi og slysa- valdandi og ef við getum ekki verið eins og ein fjölskylda um borð þarf einhvers staðar að taka til.“ Hilmar bendir á einmanaleik- ann og segir sjómenn þurfa að eiga sér áhugamál sem þeir taka með sér um borð. „Með tilkomu Covid-19 fóru í hönd tímar sem bitnuðu illa á mörgum sjómönnum. Íslenskir sjómenn erlendis hafa ákveðin frí- kerfi en þau hafa riðlast og túrarnir lengst. Sumir hafa verið upp undir fimm mánuði að heiman og ekki einu sinni getað ferðast frá borði. Það er meira en að segja það að vera tíu til ellefu mánuði í burtu og komast ekki heim, en mörg ríki hleyptu skipum ekki í höfn og við því var ekkert að gera.“ Á heimsvísu hefur verið vakin athygli á auknum sjálfsvígstilfell- um sjómanna á tímum Covid-19. „Við þurfum að passa upp á hvert annað. Það er ekki eins manns verk heldur hópverkefni að láta öllum um borð líða vel. Í gamla daga var sagt að kokkurinn væri sálfræðingurinn um borð, því hann var miðpunkturinn þar sem allir komu saman og léttu á sér, og við eigum að hafa getu til að tala saman um okkar hjartans mál.“ Tími kominn á nýtt skólaskip Frá árinu 1986 hefur Slysavarna- skóli sjómanna haft aðsetur í gömlu Akraborginni, en fyrsta skólaskipið var í varðskipinu Þór. „Nafn skólaskipsins, Sæbjörg, er til heiðurs eldklerknum Oddvari Gíslasyni í Grindavík. Hann var frumkvöðull sem var mjög umhug- að um öryggi sjómanna og gaf út blaðið Sæbjörgu. Nafnið Sæbjörg á vel við; björg úr sæ,“ upplýsir Hilmar um borð í Sæbjörgu. „Gamla Akraborgin var smíðuð 1974. Hún er í góðu ásigkomulagi en við getum ekki siglt henni. Við höfum því lýst yfir áhuga okkar á að Herjólfur III leysi núverandi skólaskip af hólmi og með slíku skipi væri hægt að gera margt. Nú er til dæmis krafa um að sjómenn komist í starfsnám og í Herjólfi væri hægt að kenna vélstjórum og verðandi skipstjórnendum að sigla og vinna í vélarúmi. Skipið gæti því orðið samstarfsvettvangur tveggja skóla en í núverandi Sæbjörgu höfum við ekki lengur aflögufært rými.“ Varkárar hetjur hafsins Í gömlum sjómannaslagara segir: „Sjómannslíf, sjómannslíf, draumur hins djarfa manns“, en Hilmar segir enga djörfung þurfa til í sjómennsku nú. „Þótt hetjur hafsins hafi verið yrkisefni sjómannavísna þurfa sjó- menn í dag fyrst og fremst að vera varkárir. Við fögnum vitaskuld öllum sem komist hafa úr sjávar- háska með hetjudáð, en viljum einfaldlega ekki að menn lendi í þeirri stöðu,“ segir Hilmar. „Hetjudáð felst í fórnum sjó- manna sem leggja á sig að vera fjarri fjölskyldu sinni til að skapa þjóðarverðmæti, en því miður er of lítið gert úr vinnu sjómanna og fjarverunni sem þeir búa við. Við missum af uppeldi barna okkar, veislum og lífsins tilefnum, og menn hafa meira að segja misst af eigin brúðkaupi vegna sjósóknar.“ Uppáhaldssjómannalag Hilmars er Stolt siglir fleyið mitt eftir Gylfa Ægisson. „Mér finnst það fallegt lag. Það minnir mig á skipið Gullfoss sem ég sigldi á sem háseti 1973, en Gullfoss var gjarnan kallað stolt íslenska flotans,“ segir Hilmar. Honum þykir vænt um öll skip sem hann hefur siglt. „Maður binst öllum sínum skipum sterkum tilfinninga- böndum. Fyrir sjómenn er skipið sem þeir eru á þá stundina hjart- fólgnast enda geymir það líf þeirra og limi. Hjá mér er það klárlega Sæbjörgin núna. Hún er líka mjög gott skip og notalegt.“ n Við leggjum áherslu á að vel sé tekið á móti nýliðum og þeim kennd störfin um borð. Það er ótækt að fullorðnir menn láti sér detta í hug að beita einelti með því að láta unga, óreynda og óslíp- aða menn gera það sem þeir kunna ekki. Við höfum lýst yfir áhuga okkar á að Herjólfur III leysi núver- andi skólaskip af hólmi. Skipið gæti orðið sam- starfsvettvangur tveggja skóla þar sem líka væri hægt að kenna vélstjór- um og verðandi skip- stjórnendum að sigla og vinna í vélarúmi. Nánar á frettabladid.is 2 kynningarblað 5. júní 2021 LAUGARDAGURSJÓMANNADAGURINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.