Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 36
VM - Félag vélstjóra og
málmtæknimanna hefur
starfað í núverandi mynd
frá árinu 2006 en þá varð
stéttarfélagið til úr samein-
ingu Vélstjórafélags Íslands
og Félags járniðnaðarmanna
í Reykjavík. Bæði eiga yfir
100 ára sögu.
johannamaria@frettabladid.is
Félagatal VM telur tæplega 4.000
manns. „Við vinnum í mörgum
geirum í íslensku atvinnulífi og
erum með eina sextán kjarasamn-
inga, meðal annars við vélstjóra
á fragt- og fiskiskipum, iðnaðar-
menn í raforkugeiranum, starfs-
menn nýsköpunarfyrirtækja eins
og Össur, Marel og marga fleiri.
Þá erum við með lausan kjara-
samning við fiskiskipasjómenn
og svo losnuðu samningar við Ísal
í Hafnarfirði um mánaðamótin,“
segir Guðmundur Helgi Þórarins-
son, formaður VM.
Baráttumál um lífeyrissjóð
Að sögn Guðmundar stendur Félag
vélstjóra og málmtæknimanna í
erfiðri kjaradeilu við SFS, Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi. „Nú er
komið að því að okkar fólk sitji við
sama borð og aðrir landsmenn í
lífeyrismálum. Aðalkrafan er að
fá 11,5% frá atvinnurekendum
í lífeyrissjóð, en núna fáum við
eingöngu 8%. Við erum jú á hluta-
skiptum eins og SFS segir og vilja
meina að ekki sé hægt hækka
lífeyrissjóðinn nema að taka þetta
annars staðar af okkar kaupi. En
útgerðin hefur sýnt fram á góðan
hagnað síðustu 10–12 árin, að
meðaltali um 20 milljarða á ári.
Fyrirtæki sem hagnast á því að
nýta auðlindir þjóðarinnar eiga
að okkar mati að borga góð laun.
Sjómenn eru mjög útsettir fyrir
mikilli örorkubyrði, þetta er erfið
vinna við erfiðar aðstæður og það
er ótrúlegt að menn vilji ekki leyfa
okkur að sitja við sama lífeyris-
sjóðsborð og aðrir.
Sjálfur var ég til sjós í rúm
fjörutíu ár og það veit enginn fyrr
en á reynir hvað það tekur á að
vera kannski 40 daga í burtu frá
fjölskyldunni, endurtekið, svo
árum skiptir. Oft og tíðum eru
menn langt í burtu, á Rússasjó,
fyrir norðan Noreg eða annað.
Vinnuaðstaða er mjög erfið sem
veldur því að menn eru oftar en
ekki orðnir slitnari fyrir aldur
fram heldur en þeir sem vinna í
landi. Útgerðarmenn myndu aldr-
ei ná þeim góða árangri sem þeir
hafa náð nema vegna góðs mann-
skapar,“ segir Guðmundur.
Samstaða lykilatriði
Guðmundur segir að samstaða
sé lykilatriði í kjarabaráttu. „Það
hefur háð stéttarfélögunum í
landinu að menn vinna alltaf hver
í sínu horninu við að finna upp
hjólið. Ég kem í starfið sem for-
maður fyrir þremur árum og hef
barist fyrir aukinni samvinnu. Þar
má nefna samstarf iðnaðarfélaga
eins og Samiðnar og Rafiðnaðar-
sambandsins sem hefur gengið
mjög vel.
Aftur á móti hefur óeining
meðal sjómanna orðið til þess
að það hefur hallað á okkar hlut
í gegnum tíðina. Nú erum við
í kjarasamningum með Sjó-
mannafélagi Íslands og Sjó-
mannafélagi Grindavíkur, en Félag
skipstjórnarmanna og Sjómanna-
samband Íslands eru saman. Þó
það sé mikill samhljómur með
þessum félögum núna tel ég að
menn séu alltaf sterkari saman.
Við græðum meira á því að standa
saman og öðlumst sterkari samn-
ingsstöðu fyrir vikið.
Ástæðan fyrir óeiningunni getur
verið vegna ólíkrar uppbyggingar
hásetafélaganna sem eru ekki
landsfélag heldur samband margra
lítilla félaga. Nú hafa þeir skipst
í þrjú félög sem kannski lýsir því
best hvar óánægjan er mest. Aftur
á móti er mun meiri samstaða
innan Félags skipstjórnarmanna
og VM sem eru landssamtök, en
þar eru 90% starfsmanna í okkar
félögum.
Óeining stafar einnig af ólíkum
áherslum í því hvort menn séu
á línu, trolli, netum, uppsjávar-
miðum eða annað og það hefur
verið kúnst að gera einn samning
sem passar fyrir alla þessa ólíku
flokka. Það hefur tekist í gegnum
tíðina, en það gerist þó alltaf
þegar unnið er eftir meðaltali,
að sumum verður kalt en öðrum
mjög heitt.“
Þjóðin öll tapar
„Við vonumst til að fá meiri með-
byr í pólitíkinni. Mönnum verður
tíðrætt um auðlindagjaldið en það
þarf líka að gera upp á réttu fisk-
verði. Ef fiskverð hækkar þá hækk-
ar í kjölfarið auðlindagjaldið, laun
sjómanna, hafnargjöld, skattar og
útsvar og það myndu allir græða
á því. VM hefur verið duglegt að
benda á mikinn mun á fiskverði á
uppsjávarveiðum, sem fer eftir því
hvort menn eru að borga Íslend-
ingum eða erlendum aðilum. Þetta
kom vel í ljós í loðnuvertíðinni.
Íslensk fyrirtæki keyptu loðnu af
norskum skipum á næstum tvöfalt
hærra verði en af íslenskum. Við
höfum aldrei fengið nein rök fyrir
þessu sem halda vatni og við erum
mjög óánægð með að stjórnvöld
hafi ekki gripið inn í þetta ástand
eða krafist skýringa. Ef menn fá
ódýrari fisk hér heima þýðir það
líka að sjómenn tapa launum,
sveitarfélög útsvari, hafnir hafnar-
gjöldum og ríkið tapar tekjuskatti
og auðlindagjöldum. Allir tapa.
Annað mál sem við höfum
verið að djöflast í er í farmanna-
geiranum. Þó það séu starfræktar
ferjur hér á landi þá eru engin
farskip skráð hér. Eimskip og Sam-
skip skrá sín farskip í Færeyjum og
réttarstaða starfsmanna á þessum
skipum hefur verið óljós varðandi
fæðingarorlof og atvinnuleysis-
bætur o.f l. Fyrirtækin hafa borgað
hingað til, en menn hafa ekki beint
rétt hérna heima og síður en svo
í Færeyjum, þrátt fyrir að borga
sína skatta þar. Þetta er náttúrlega
mjög óþægileg staða að vera í. Við
viljum því að farskip á Íslandi séu
skráð hér.“
Miklar breytingar
Guðmundur segir mikið hafa
breyst í bransanum undanfarin ár.
„Hér áður voru nokkrir útgerðar-
menn í hverjum bæ. Í Vestmanna-
eyjum og Grindavík voru stórar
verstöðvar með marga báta. Með
mikilli samþjöppun á kvóta,
fækkun skipa og auknum afköst-
um hefur starfsgildunum fækkað
mikið. Núna eru þetta örfáir
bátar. Vertíðarlífið og stemningin
hefur mikið breyst. Þá hefur líka
fækkað í frystihúsunum því það
sem mannshöndin gerði áður, það
gera vélar í dag. Við erum alltaf að
gera þetta á færri höndum. Það er
ákveðin hugsun hjá sjómönnum
hjá mörgum útgerðum að það sé
best að halda kjafti, hlýða og vera
góður og þá er maður ekki rekinn á
meðan. En við vonum að útgerðar-
menn fari að ná sátt við þjóðina
alla um afla og aflaverðmæti.“
Stórt spor í rétta átt
Það hefur þó ýmislegt batnað til
sjós á undanförnum árum. „Eitt
af því eru öryggismál, en það eru
orðin meira en fjögur ár síðan
það varð banaslys á sjó. Þegar ég
byrjaði að fara til sjós var algengt
að um 15–20 manns létust árlega
af slysförum á sjó en sem betur fer
er það liðin tíð. Alla jafna má það
þakka stærri og betri skipum en
ég vil líka þakka Sæbjörgu, Slysa-
varnaskóla sjómanna, sem hefur
verið starfræktur síðan 1985, en
frá þeim tíma fer banaslysum að
fækka. Sjómenn eru nú skyldaðir
á fimm ára fresti á námskeið og
hefur það leitt til þess að menn
spá meira í hætturnar sem eru
til staðar og eru meðvitaðri um
það sem þarf að gera t.d. úti á sjó í
vondu veðri.“
Stórskrítið ár
Síðastliðið ár hefur að sögn Guð-
mundar verið mjög sérstakt. „Það
var þó jákvætt að menn tóku
höndum saman og settu reglur
til að koma í veg fyrir Covid-smit
eftir fremsta megni. Það tókst í
flestum tilfellum mjög vel en því
miður var frægt dæmi vestur á
fjörðum á Júlíusi Geirmundssyni,
sem sýndi vel að þegar menn eru
margir saman lokaðir á einu skipi
getur reynst strembið að halda
fjarlægðarmörkum. Eitt af því sem
menn gerðu til að takmarka smit
var að fara nokkra túra í röð. Þá
fóru menn ekki frá borði á meðan
verið var að landa og höfðu ekki
beint samneyti við fólk í landi til að
tryggja það að fá ekki smit um borð.
Þetta var auðvitað frekar skrítið
og í minni þorpum horfðu menn
jafnvel inn um eldhúsgluggann hjá
fjölskyldunni. Það ríkti almenn sátt
um að þetta væri rétt leið og menn
fengu svo lengri frí á móti. Það tókst
vel að halda smitum frá og við erum
mjög ánægð með þetta samstarf.
Vegna samkomutakmarkana
hefur ekki verið haldið hátíðlega
upp á sjómannadaginn núna annað
árið í röð en við vonum að á næsta
ári fái dagurinn aftur sinn sess hjá
þjóðinni, því það veit þjóðin öll að
það er komin þörf á gott teiti,“ segir
Guðmundur. n
Við erum sterkari saman
Guðmundur Helgi Þórarinsson tók við formannstarfi VM - Félagi vélstjóra og málmtæknimanna fyrir þremur árum.
Sjálfur byrjaði hann að fara til sjós fyrir fjörutíu árum. Fréttablaðið/anton brink
VELKOMIN Í SUÐURNESJABÆ
HVALUR hf.
Til hamingju með daginn sjómenn!
8 kynningarblað 5. júní 2021 LAUGARDAGURsjómannadagurinn