Fréttablaðið - 05.06.2021, Qupperneq 49
Aðstoðarmaður tannlæknis
Tannlæknastofa í Reykjavík óskar eftir aðstoðarmanni eða
tanntækni í 95-100 prósent starf.
Kostur er að viðkomandi hafi lokið tanntæknanámi, en
starfsreynsla þar sem reynir á þjónustulund, frumkvæðni,
mannleg samskipti og vönduð vinnubrögð eru mikils metin.
Æskilegt er að geta hafið störf eftir miðjan ágúst en annars
eftir nánara samkomulagi.
Þau sem hafa áhuga á þessu starfi eru vinsamlegast beðin
um að senda upplýsingar um sig og meðmæli á netfangið
flottartennur@gmail.com fyrir 18. júní nk.
Fullum trúnaði er heitið.
Skjalastjóri mun:
• samræma og hafa með höndum skipulag, ábyrgð og umsjón
með skjalamálum
• hafa umsjón með skjalavistun og verklagi við rafræna
skjalastjórnun
• hafa umsjón með skjalasafni, málaskrá, málalykli og geymsluskrá
• taka þátt í verkefnum sem snúa að stafrænni þróun
• fræða samstarfsfólk um upplýsinga- og skjalamál
• veita stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf og stuðning við
skjalavistun
• samræma og innleiða verklag við vistun gagna
• sjá um frágang og skil á skjalasafni
• taka þátt í umbótaverkefnum
Hæfniskröfur:
• háskólagráða í bókasafns- og upplýsingafræði eða sambærileg menntun á sviði skjalastjórnunar
• þekking og reynsla í notkun rafrænna skjalalausna
• tölvuþekking og skilningur á upplýsingatækni eru nauðsynleg
• þekking og reynsla af skjalakerfinu GoPro
• sjálfstæð vinnubrögð
• heiðarleiki og jákvæðni
• almenn tölvukunnátta
• gott viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna fyrirtækisins er að
vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á
sviði samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn
sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti
einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
ÁTVR óskar eftir öflugum, þjónustuliprum, ábyrgum og
áhugasömum einstaklingi til þess að leiða skjalastjórnun
á eftirsóknarverðum vinnustað.
Skjalastjóri
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 14. júní nk.
Óskað er eftir því að umsóknir séu fylltar út á vinbudin.is
Nánari upplýsingar veitir: Guðrún Símonardóttir mannauðsstjóri ÁTVR,
starf@vinbudin.is, 560 7700
Gildin okkar eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ
og taka ráðningar mið af þeim.
Aðstoðarmaður dómara í Landsrétti
Landsréttur auglýsir laust til umsóknar starf löglærðs aðstoðarmanns dómara við Landsrétt.
Löglærðir aðstoðarmenn dómara sinna lögfræðilegum verkefnum og aðstoða dómara réttarins í
störfum þeirra í samræmi við ákvörðun forseta réttarins, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga nr. 50/2016.
Meðal helstu verkefna er auk aðstoðar við dómara, vinna við dómareifanir, úrvinnsla kærumála
sem og lögfræðileg greining mála sem til úrlausnar eru fyrir réttinum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættispróf í lögfræði eða grunnnám ásamt meistaraprófi í lögum.
• Góð íslenskukunnátta og færni í rituðu máli er nauðsynleg.
• Góðir skipulagshæfileikar, hæfni til að vinna sjálfstætt og færni í mannlegum samskiptum.
• Þekking og reynsla á sviði réttarfars er æskileg.
• Reynsla af greiningu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna er æskileg.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Þeir sem áhuga hafa á starfinu eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Með umsókn skal fylgja
ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og
hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur.
Áskilið er að umsóknir og fylgigögn berist rafrænt á netfangið landsrettur@landsrettur.is.
Umsóknir gilda í allt að sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
í starfið liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Viðar, skrifstofustjóri Landsréttar, gunnar.vidar@landsrettur.is
eða í síma 432-5300.
intellecta.is
RÁÐNINGAR