Fréttablaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 55
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi
ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir eru beðnir að
sækja um störfin á
www.vegagerdin.is
Sérfræðingur/verkefna-
stjóri vetrarþjónustu
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum
einstaklingi til að taka við starfi sér-
fræðings/verkefnisstjóra vetrarþjónustu
Vegagerðarinnar á þjónustudeild Vega-
gerðarinnar í Reykjavík. Um er að ræða fullt
starf við stjórnun, umsjón, rekstur og þróun
vetrarþjónustuverkefna á landsvísu þ.a.
vetrarþjónustan uppfylli markmið
Vegagerðarinnar um öruggar og greiðar
samgöngur á sem hagkvæmastan hátt.
Starfssvið deildar
Vegaþjónustudeild skipuleggur og hefur m.a.
umsjón með stefnumörkun og úthlutun fjár-
magns til þjónustuverkefna Vegagerðarinnar
á landsvísu, samræmingu og faglegri þróun.
Forstöðumaður
- Vöktun og upplýsingar
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum
einstaklingi sem leitt getur starfsemi í
krefjandi deild og tekið þátt í mótun
framtíðarskipulags viðfangsefna á sviði
vöktunar og upplýsingagjafar.
Starfssvið deildar
Deildin er rekin á tveimur starfsstöðum,
Reykjavík og Ísafirði. Forstöðumaður getur
verið staðsettur í Reykjavíð eða á Ísafirði en
þarf að geta starfað á báðum landsvæðum.
Í deildinni starfa 24 starfsmenn.
Starfsemin er rekin allan sólarhringinn
allt árið um kring. Þar fer fram vöktun á veðri
og færð, vöktun á almennu ástandi vega og
öryggi í jarðgöngum, boðun viðbragðs- og
þjónustuaðila, samræming aðgerða, miðlun
upplýsinga og þjónustusíminn 1777.
Framundan er mikil þróun í starfsemi
deildarinnar með auknum kröfum um meiri
og betri upplýsingar til vegfarenda ma. með
nýrri tækni.
Umsóknarfrestur fyrir störfin er til og með 8. júní 2021.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Bergþóra Kristinsdóttir framkvæmdastjóri þjónustusviðs,
í síma 522 1000 og tölvupósti, netfang bek@vegagerdin.is
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfssvið
→ Áætlunargerð vetrarþjónustuverkefna
→ Eftirfylgni með að vetrarþjónustan
uppfylli markmið Vegagerðarinnar
um öruggar og greiðar samgöngur
samkvæmt gildandi reglum, gæða- og
þjónustuviðmiðum
→ Fagleg og verkefnaleg ábyrgð á og
yfirumsjón með daglegri starfsemi
vetrarþjónustu á landsvísu
→ Leiða samræmingu við stjórnun vetrar-
þjónustu og faglegt hlutverk vakt-
stöðva og þjónustustöðva
→ Fylgjast með nýjungum og þróun á við-
komandi sviði, þátttaka í rannsóknum
sem og að leita hagkvæmra leiða til að
bæta þjónustu, draga úr kostnaði og
leiða umbótaverkefni
→ Erindrekstur og samskipti við hagaðila
vegna vetrarþjónustuverkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
→ Meistarapróf í verkfræði eða sambærileg
menntun sem nýtist í starfi
→ Reynsla af stjórnun æskileg
→ Þekking og reynsla í upplýsingatækni
→ Þekking og reynsla á sviði vetrarþjónustu
er kostur
→ Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
í starfi
→ Hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og að
vinna sjálfstætt,
→ Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
→ Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu
og töluðu máli
Helstu verkefni og ábyrgð
→ Þátttaka í uppbyggingu og mótun stefnu
og starfsemi deildar
→ Ábyrgð á vöktun og stjórnun vöktunar og
upplýsingagjafar
→ Samræming aðgerða og mótun verklags
milli vaktstöðvar, umferðarþjónustu og
þjónustustöðva Vegagerðarinnar
→ Þátttaka í þróun og mótun framtíðar-
sýnar um aukna tæknivæðingu í
upplýsingagjöf og vöktun umferðar
→ Stjórnunarleg ábyrgð á starfsmönnum
deildarinnar og góðu starfsumhverfi
→ Ábyrgð á uppsetningu og framkvæmd
vaktaplans
→ Ábyrgð á áætlanagerð, kostnaðareftirliti
og frávikagreiningu í rekstri deildar
Menntunar- og hæfniskröfur
→ Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
meistarapróf æskilegt
→ Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
→ Reynsla af stjórnun vaktavinnu æskileg
→ Reynsla af verkefnastjórnun
→ Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
→ Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur
metnaður
→ Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í
teymisvinnu
→ Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu
og töluðu máli
→ Hæfni til að fylgja málum eftir og til að
finna bestu lausnir hverju sinni
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Tvö störf á þjónustusviði
Vegagerðarinnar
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár