Fréttablaðið - 05.06.2021, Side 58
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Þverholti 2 | 270 Mosfellsbær | Sími 525 6700 | mos.is
Leikskólastjóri Hlíð
Ungbarnaleikskóli
• Leyfisbréf kennara og kennslureynsla skilyrði
• Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða á sviði
uppeldis- og menntunarfræða
• Þekking á stjórnsýslu, fjármálastjórnun og
stefnumótunarvinnu
• Reynsla á sviði stjórnunar í mennta- og
menningarstofnunum
• Þekking á sviði upplýsingatækni
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar
• Lipurð og færni í samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu
og riti
• Almenn tungumálakunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2021.
Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir
frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar veitir Linda Udengård framkvæmdastjóri
fræðslu- og frístundasviðs í síma 525-6700 eða á linda@mos.is. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Mosfellsbær er í fararbroddi í nýbreytni í skólastarfi.
Leikskólinn Hlíð er ungbarnaleikskóli þar sem meðal annars
er lögð áhersla á tilfinningalegt öryggi, umhyggju og nám í
gegnum leik. Skólinn starfar í anda skóla fjölbreytileikans.
Skólastjóri leikskólans Hlíð ber ábyrgð á starfsemi skólans og
er í fararbroddi í skólaþróun. Hann gegnir lykilhlutverki í leiða
skapandi leikskólastarf og samstarf við skóla og foreldra.
Skólastjóri ber ábyrgð á að starfið sé í samræmi við lög,
reglugerðir, aðalnámskrá leikskóla og stefnumörkun
Mosfellsbæjar.
Mosfellsbær leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi sem hefur
víðtæka þekkingu á skólastarfi, býr yfir áræðni og leiðtogafærni
til að byggja upp öflugt skólasamfélag inn í framtíðina.
Menntunar- og hæfniskröfur:
22 ATVINNUBLAÐIÐ 5. júní 2021 LAUGARDAGUR