Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 70
Skipstjórinn Lára Hrönn
Pétursdóttir er með breið-
firsk sjómannsgen í æðum.
Í heimsfaraldrinum ákvað
hún að setja Óskalög sjó-
manna aftur á dagskrá á
Facebook, með harmónikk-
una sína að vopni.
thordisg@frettabladid.is
„Mér hefur alltaf liðið vel á sjó
og aldrei orðið sjóveik. Ætli það
sé ekki ættgengur genagalli,“
segir Lára og hlær. Hún er stödd
í Bjarnareyjum á Breiðafirði, þar
sem áar hennar bjuggu.
„Pabbi er fæddur í Flatey en
amma mín og afi, langamma og
langafi í föðurætt, bjuggu hér. Ég
hef því sjómannsgenin úr Breiða-
firðinum og er vön því frá blautu
barnsbeini að velkjast um á sjó.“
Lára er með þriðja stigs skip-
stjórnarréttindi sem eru stærstu
réttindin til að stýra skipum, utan
herskipa og varðskipa.
„Ég sigldi stórum bátum áður en
ég flutti til Bandaríkjanna fyrir sjö
árum. Ég var til dæmis skipstjóri á
150 manna farþegabátum og leysti
af sem stýrimaður á Baldri, en
foreldrar mínir stofnuðu Sæferðir
1986 og seldu það Eimskipi fyrir
um sex árum síðan. Þá fengum við
okkur aftur fiskibát og stundum
nú strandveiðar, þar sem ég leysi
eldri bróður minn af í sumar,“
upplýsir Lára, en til fróðleiks eru
strandveiðar stundaðar af smá-
bátum í maí, júní, júlí og ágúst og
má veiða 770 kíló fisks á dag, tólf
daga í mánuði, án þess að eiga
kvóta.
Vel giftur lífskúnstner
Lára er ekki bara menntaður
skipstjóri, heldur einnig sjávarút-
vegsfræðingur, einkaþjálfari og
klassískur söngvari.
„Ég tók pungaprófið í kvöldskóla
á námsárunum í Verzló og fór
þaðan beint í Stýrimannaskólann
því ég vildi tryggja mér góð laun til
að geta borgað nám mitt í klass-
ískum söng. Ég ætlaði nefnilega að
verða heimsfræg óperusöngkona,
söng í Óperukórnum og þar kynnt-
ist ég manninum mínum. Nú er ég
að dusta rykið af söngnum aftur
og það er mjög gaman að vera góð
í þessu þótt ég stefni ekki lengur á
heimsfrægð,“ segir Lára kát.
Hún segist fyrst og fremst vera
vel giftur lífskúnstner sem vílar nú
og dílar með hlutabréf á milli þess
sem hún byggir nýtt hús handa
fjölskyldunni, sem flutti aftur
heim til Íslands í fyrra.
„Ég er þessi óákveðna týpa sem
veit ekki hvað hún vill gera þegar
hún er orðin stór. Maðurinn minn,
Eiríkur Sveinn Hrafnsson, er
alinn upp á malbikinu og starfar í
tölvubransanum. Hann stofnaði
fyrirtækið GreenQloud og saman
fórum við vestur um haf til að færa
út kvíarnar með fyrirtækið og
seldum það bandaríska fyrirtæk-
inu NetApp fyrir þremur árum.
Þegar Eiríkur barðist í bökkum
í frumkvöðlaheiminum fór ég á
sjóinn til að veiða fisk til að hafa í
okkur og á, og þegar gekk vel hjá
honum varð meira frelsi hjá mér.“
Í Bandaríkjunum vann Lára
fyrir Vulcan, fyrirtæki Paul Allen,
meðstofnanda Microsoft.
„Paul stofnaði Vulcan til að leysa
vandamál heimsins en græða svo-
lítið á því líka. Ég kom inn í verk-
efnið með mína skipstjórnar- og
tölvuþekkingu til að greina ólög-
legar túnfiskveiðar á alþjóðahafs-
svæðum með hjálp gervitungla
og ýmissa tækninýjunga,“ segir
Lára, sem vann líka rannsóknir
fyrir Vulcan í Brasilíu og gerði alls
konar tilraunir með fiskveiðar í
árósum Amazon í samstarfi við
bróður sinn sem er skipstjóri og
saman ráku þau fiskvinnslu þar í
landi.
„Það er mikið af skipstjórum og
vélstjórum í fjölskyldunni minni,
sem og frumkvöðlum í sjávarút-
vegi. Þannig stofnuðu foreldrar
mínir eitt fyrsta ferðaþjónustu-
fyrirtækið á Íslandi en til að hafa
eitthvað að gera yfir vetrartímann
fóru þau að veiða beitukónga og
ígulker.“
Lára stofnaði einnig systraklasa
Sjávarklasans, Pacific North West
Ocean Cluster, ásamt Þóri Sigfús-
syni í Seattle, Washington.
„Þar vorum við að tengja inn
nýjungar og uppfæra sjávarút-
veginn, allt frá Washington til
Kaliforníu. Áður en allt komst
á almennilegt skrið fluttum við
aftur heim. Við störfum þó enn
vestra, aðallega við að koma
íslenskum frumkvöðlafyrirtækj-
um í samband við aðila á vestur-
strönd Bandaríkjanna,“ upplýsir
Lára.
Vildi verða partífær á nikkuna
Lára segist vera alls konar, en hún
er líka mjög flinkur harmónikku-
leikari.
„Pabbi spilar á harmónikku
og þegar ég var krakki vorum
við mikið í Flatey þar sem allir á
eyjunni komu í húsið til okkar þar
sem haldin voru harmónikku-
partí og harmónikkudansleikir í
samkomuhúsinu. Mér fannst það
allt svo gaman og ákvað níu ára að
læra á nikkuna til að verða partí-
fær. Þegar ég flutti til Reykjavíkur
vann ég fyrir mér með því að spila
á nikkuna, spilaði með Greif-
unum, dinnertónlist og fleira, og
fékk borgað fyrir,“ segir Lára.
Þegar kórónaveiran setti
heiminn á hliðina í fyrra setti Lára
á laggirnar Facebook-síðuna Óska-
lög sjómanna.
„Þegar bandarísk stjórnvöld
settu á æ strangari útgöngubönn
varð maður alveg fastur heima. Ég
hafði þá lítið gripið í nikkuna en
ákvað að dusta af henni rykið til
að halda mér við og setti upp síð-
una þar sem ég bauð upp á óskalög
sem ég spilaði á harmónikkuna og
taggaði viðtakendur kveðjanna
við. Heimilisfólk á elliheimilinu í
Stykkishólmi tók strax við sér og
var duglegt að senda kveðjur og
svo var hlustað á sal og myndaðist
skemmtileg stemning.“
Nikkunni hennar Láru var
pakkað í gám þegar fjölskyldan
flutti aftur til Íslands en þegar
nýja húsið verður tilbúið í sumar
stefnir Lára á að taka upp þráðinn
með Óskalög sjómanna.
„Já, það sitja nokkur lög á
hakanum, til dæmis situr Let it go
úr Frozen á sálinni vegna þess að
ég hef ekki komist í að spila það á
nikkuna fyrir litla frænku. Annars
þurfa óskalögin ekkert endilega
að vera sjómannalög, þau er allt
frá Bítlunum og Elvis yfir í Pulp,
Metallica og þaðan af nýrra. Það er
áskorun fyrir mig að útfæra lögin
fyrir harmónikkuna og þegar ég
flutti í bæinn rak ég mig á, þar var
allt annar kúltúr og enginn þekkti
sjómannalögin sem allir sungu
hástöfum með í Flatey. Ég fagna
því tækifærinu að spila allt mögu-
legt annað á nikkuna.“
Lára fékk útvarpskonuna góð-
kunnu, Gerði G. Bjarklind, til að
lesa inn kynningu fyrir síðuna.
„Gerður er í miklu uppáhaldi.
Hún var lengi með óskalagaþátt
sem ég hlustaði á en ég er svo hipp
og kúl að hlusta á Gufuna. Þegar ég
leysti af á línu- og netabátum með
skóla hljómaði Gufan í útvarpinu í
brúnni og þá hlustaði maður á alla
áhugaverðu þættina og auðvitað
ítarlegu veðurspána sem þarf að
hlusta eftir á sjó.“ n
Endurvakti Óskalög sjómanna á fésbókinni
Lára með vænan þorsk sem hún veiddi um daginn á Breiðafirði. MYND/AÐSEND
Suðurhraun 4 • 210 Garðabæ • Furuvöllum 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
P
R
EN
TU
N
.IS
L Í M M I ÐA P R E N T U NUMBÚÐALAUSNIR
UMBÚÐIR & PÖKKUN ERU OKKAR FAG
FERSKFISKKASSAR SEM ERU
100 % ENDURVINNANLEGIR .1
00
%
RECYCLABLE.100% RECYCL
AB
LE
CoolSeal kassinn er umhverfisvænn og því
góður valkostur í stað frauðplastkassa
Gámakassi, vélreistur
með styrkingu í hornum
skýr og góð prentun.
Nýr flugkassi, tvöföld langhlið
sem tryggir meiri styrk og
betri einangrun.
Suðurhraun 4 • 210 Garðabæ • Furuvöllum 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
L Í M M I ÐA P R E N T U NUMBÚÐALAUSNIR
UMBÚÐIR & PÖKK ERU OKKAR FAG
FERSKFISK SAR SEM ERU
100 % END INNANLEGIR .1
00
%
RECYCLABLE.100% RECYCL
AB
LE
CoolSeal kassinn er u hverfisvænn og því
góður valkostur í stað frauðplastkassa
Gámakassi, vélreistur
með styrkingu í hornu
skýr og góð prentun.
Nýr flugkassi, tvöföld langhlið
sem tryggir eiri styrk og
betri einangrun.
Suðurhraun 4 • 210 Garðabæ • Furuvöllum 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
P
R
EN
TU
N
.IS
L Í M M I ÐA P R E N T U NUMBÚÐALAUSNIR
I
FERSKFISKKASSAR SE ER
100 E RVI A LE IR .1
00
%
RECYCLABLE.100% RECYCL
AB
LE
CoolSeal kassinn er umhverfisvænn og því
góður valkostur í stað frauðplastkassa
Gámakassi, vélreistur
með styrkingu í hornum
skýr og góð prentun.
Nýr flugkassi, tvöföld langhlið
sem tryggir meiri styrk og
betri einangrun.
Suðurhraun 4 • 210 Garðabæ • Furuvöllu 3 • 6 0 Akur ri • Sí i: 57 8000 • Fax: 575 8001 • www.sa hentir.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
L Í M M I ÐA P R E N T U NUMBÚÐALAUSNIR
I
I
I I .1
00
%
RECYCLABLE.100% RECYCL
AB
LE
CoolSeal kassi n er u verfisv nn og því
góður valkostur í sta auðplastkassa
Gá kassi, vélrei r
eð styrkingu í hor
skýr o góð pre .
Nýr flug si, tvöföld langhlið
se tryg eiri styrk og
betri ein run.
10 kynningarblað 5. júní 2021 LAUGARDAGURSJÓMANNADAGURINN