Fréttablaðið - 05.06.2021, Síða 78
Elín
Albertsdóttir
elin
@frettabladid.is
Á sjómannadag er til siðs
að elda eitthvað gott enda
hátíðardagur. Ekkert er
ljúffengara en íslenska
lambalærið og ekki verður
það verra hægeldað. Margir
staðir á landinu verða með
minni háttar hátíðardagskrá
við höfnina á morgun en þó
með óhefðbundnum hætti.
Það er alltaf viss stemning á sjó-
mannadaginn. Hafnir víða um
land fyllast af lífi og fjöri. Að vísu
var öllum hátíðarhöldum aflýst í
fyrra vegna samkomutakmarkana.
Stærstu hátíðarnar eins og Hátíð
hafsins og Sjóarinn síkáti verða
ekki heldur í ár. Sjóminjasafn
Reykjavíkur verður opið á morgun
og ókeypis er inn. Búast má við
að eitthvað smálegt verði gert í
sjávarþorpum landsins. Sjómenn
verða heiðraðir eins og venja er á
þessum degi. Sömuleiðis verður
sjómannamessa tileinkuð sjó-
mannadeginum og minningu sjó-
manna í Dómkirkjunni á morgun.
Messunni verður útvarpað á Rás 1
og hefst kl. 11.
Hér er hugmynd að góðum
kvöldverði á sjómannadag sem
hefst á ljúffengri blómkálssúpu.
Blómkálssúpa með beikoni
150 g beikon
Ólífuolía
1 msk. smjör
1 laukur, skorinn smátt
3 hvítlauksrif, skorin smátt
3 gulrætur, skornar smátt
2 blómkálshöfuð, skorin í grófa
bita
1 lítri kjúklingasoð
250 ml mjólk
Salt og pipar
Smátt skorin fersk steinselja
Þessi uppskrift er mjög góð og þótt
súpan sé í raun grænmetissúpa má
gjarnan gera hana örlítið öðruvísi
með chilli og beikoni en því má
sleppa.
Steikið beikonið þar til það
Veisla á sjómannadaginn
Hægeldað
lambalæri með
tilheyrandi er
afar ljúffengt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Blómkálssúpa
með beikoni og
chilli er svolítið
öðruvísi en við
þekkjum.
Tiramisu er einn vinsælasti eftirréttur á Ítalíu. Hann á alltaf vel við.
verður stökkt í smávegis ólífuolíu.
Takið af pönnunni og setjið á eld-
húspappír.
Setjið smjör í pott og steikið lauk
og hvítlauk. Bætið síðan gulrótum
og blómkáli út í. Takið frá nokkra
bita af blómkáli til að skreyta súp-
una á diskunum. Setjið kjúklinga-
kraftinn saman við ásamt mjólk og
látið suðuna koma upp. Látið síðan
malla áfram í 20 mínútur. Maukið
súpuna með töfrasprota og bragð-
bætið með salti og pipar.
Setjið í skálar og puntið með
beikon- og blómkálsbitum. Stráið
steinselju yfir og smávegis chilli
fyrir þá sem vilja meira bragð.
Hægeldað lambalæri
1 lambalæri (um það bil 2½ kg)
2 tsk. salt
1 tsk. nýmalaður pipar
3 hvítlauksrif
4 kvistar ferskt rósmarín
3 dl vatn
3 gulrætur
500 g sellerírót
2 laukar
2 msk. ólífuolía
Stillið grillið á 250 °C.
Hægeldað lambalæri er ein-
staklega bragðgott og bráðnar í
munni. Passa verður þó að kjötið
verði ekki ofsteikt. Nauðsynlegt er
að hafa kjöthitamæli við höndina
þar sem hitastig er misjafnt í
ofnum.
Nuddið ólífuolíu á kjötið og
bragðbætið með salti og pipar.
Setjið lærið inn í heitan ofninn
og grillið í 8 mínútur. Takið út
og stillið á blástur og 90 °C. Látið
hurðina á ofninum standa opna á
meðan hann kælir sig niður.
Skerið hvítlaukinn í báta, gerið
gat á kjötið og stingið þeim inn
hér og þar. Gerið það sama með
rósmarín.
Skerið allt grænmetið gróft og
leggið í ofnfat. Gott er að hafa
auka hvítlauk og rósmarín með.
Setjið kjötið ofan á grænmetið.
Setjið 3 dl af vatni í botninn en þá
fæst soð í sósuna.
Þegar kjötið hefur náð 65 °C
hita eftir um það bil 5–6 tíma er
það orðið miðlungs steikt. Þegar
kjötið nær 70 °C er það rúmlega
miðlungs en gegnumsteikt þegar
það hefur náð 75 °C.
Með kjötinu er gott að hafa
sykurbrúnaðar kartöflur, sósu,
baunir, rauðkál og hrásalat.
Hugmynd að einfaldri sósu.
Steikið sveppi á pönnu með hvít-
lauk. Bragðbætið með salti og
pipar. Þegar sveppirnir eru vel
steiktir er smávegis sojasósa sett
yfir þá og síðan smávegis vatn.
Setjið í pott með kjötsoðinu. Því
næst er rjómi og piparostur settur
út í. Bragðbætið með salti og pipar
ásamt smávegis paprikudufti eftir
smekk. Þykkið sósuna með sósu-
jafnara.
Tiramisu
3 eggjarauður
3 msk. sykur
250 g mascarpone
3 eggjahvítur
0,25 tsk. salt
20 stk. Lady finger (kex)
3 dl. kalt espresso kaffi
2 msk. koníak eða amaretto líkjör
4 msk. suðusúkkulaði
Þessi frægi ítalski eftirréttur er
í miklu uppáhaldi hjá mörgum.
Hægt er að útbúa hann degi fyrr
sem er þægilegt.
Þeytið saman eggjarauður og
sykur þar til blandan verður létt
og ljós. Hrærið mascarpone var-
lega saman við.
Stíf þeytið eggjahvítur með
örlitlu salti. Blandið varlega
saman við eggjahræruna.
Setjið smávegis krem í botninn
á fallegri ferhyrndri skál. Dýfið
fingurkökunum í kaffið sem hefur
verið blandað með koníaki eða
amaretto. Leggið kökurnar yfir
allt kremið. Þá kemur önnur röð
af kremi og síðan kökurnar aftur. Í
lokin er sett krem. Rífið súkkulaði
og dreifið yfir. Geymið í ísskáp
þar til borið er fram. n
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460
Líttu við á
belladonna.is
Verslunin Belladonna
ZE-ZE Kjóll/pils
Stærðir 38-48
Verð kr 9.990
ZE-ZE kjóll
Fæst líka í bláu
Stærðir 38-46
Verð kr. 9.990
ZE-ZE skyrtukjóll
Fæst líka í bláu
Stærðir 40-48
Verð kr. 10.990
6 kynningarblað A L LT 5. júní 2021 LAUGARDAGUR