Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 22
20 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
Laun á Íslandi hafa hækkað þrefalt meira
en annars staðar Norðurlöndunum á sama
tímabili. Þrátt fyrir miklu meiri launahækkanir
hefur kaup máttur launa aukist álíka mikið og
þar, en fórnarkostnaðurinn var mikill vegna
verðbólgu, óstöðugleika og hárra vaxta.
Undanfarin ár hafa þó verið einstök í þessu
samhengi því þrátt fyrir miklar launahækkanir
á íslenskum vinnumarkaði hefur ríkt verð-
stöðugleiki. Þannig eru laun nú um 35%
hærri en í ársbyrjun 2015. Á sama tíma
hækkaði verðlag um 10% og kaupmáttur
jókst um 25%.
Mikill uppgangur í ferðaþjónustu jók
verðmætasköpun og styrkti krónuna
sem dró úr verðbólgu. Bætt viðskiptakjör,
einkum lækkun olíuverðs, skapaði aukið
rými til launahækkana. Oft vill gleymast að
á tímabilinu lækkuðu stjórnvöld verðlag
með afnámi vörugjalda og tolla. Tollar og
vörugjöld verða bara afnumin einu sinni, eðli
máls samkvæmt. Nú hafa gerólíkar aðstæður
skapast, þar sem dregið hefur hratt úr fjölgun
ferðamanna, krónan veikst og viðskiptakjör
versnað. Forsendur hins mikla lífskjarabata
undanfarinna ára hafa veikst og þau hljóta að
hluta til að ganga til baka.
1990 20021994 1998 20172006 2010 2014
Ísland og Norðurlöndin: Nafnlaunaþróun
- frá 1990-2017
Ísland
Heimildir: Hagstofa Íslands, Macrobond
Noregur Finnland DanmörkSvíþjóð
430%
6%
2%
0%
4%
8%
10%
Ísland Danmörk NoregurFinnland Svíþjóð
+6,5%
Ísland og Norðurlöndin: Verðbólga, kaupmáttur og vextir
- frá 1990-2017
Verðbólga Kaupmáttur Stýrivextir (2001-2018)
Laun á Íslandi hafa frá árinu 1990 hækkað þrefalt meira en á hinum Norðurlöndunum. Þrátt fyrir miklu meiri launa
hækkanir hefur kaupmáttur launa aukist álíka mikið og á hinum Norðurlöndunum, en fórnarkostnaðurinn var mikill
vegna mikillar verðbólgu, óstöðugleika og hárra vaxta.
90
100
110
120
130
140
201720162015 2018
Þróun launa, verðlags og kaupmáttar launa
- Vísitala = 100 í janúar 2015
Heimild: Hagstofa Íslands
Laun Kaupmáttur launa Verðlag