Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 62

Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 62
60 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Þeir notuðu tækifærið til að reka Ingva Hrafn af Sjónvarpinu ekki löngu síðar út af öðru máli. Aðförin að mér hófst með áminningarbréfi en áður en stund hefndarinnar rann upp hafði ég stokkið yfir á Stöð 2 enda hafði Páll Magnús- son beðið mig að koma yfir. SÍS vildi Útvegsbankann en gaf upp öndina Í ágúst 1987 gerðu SÍS og nokkur dóttur- félög tilboð í hinn fallna Útvegsbanka, sem átti að sameina Samvinnubankanum. Strax myndaðist mikil andstaða við að SÍS yfirtæki Útvegsbankann, svo að allt ætlaði vitlaust að verða. Síðar kom á daginn að SÍS var að sökkva og fjölmörg dótturfélög, líkt og Hafskip. SÍS hafði virst óhagganlegt í íslensku samfélagi, líkt og hið gerska heimsveldi. Það var boðað til blaðamannafundar þar sem þeir Valur Arnþórsson stjórnarformaður og Guðjón B. Ólafsson tilkynntu tilboð SÍS. Ekki varð af kaupunum og sannarlega veit enginn ævina fyrr en öll er. Valur lést í hörmulegu flugslysi árið 1990, aðeins 55 ára. Guðjón lést þremur árum síðar aðeins 58 ára gamall. SÍS fór á hliðina. Landsbankinn kom til bjargar, keypti Samvinnubankann og sameinaði rekstri sínum. Skuldastaða SÍS var slík að bankinn neyddist til að taka félagið yfir og afskrifaði helming skulda, þá í kringum 700 milljónir króna. Það þykja ekki háar upphæðir í dag, en voru að sönnu stórar tölur fyrir aldarfjórðungi. Öllu starfsfólki SÍS var sagt upp í kjölfarið og reksturinn heyrði sögunni til. Útvegsbankinn sameinaðist Iðnaðarbankanum, Verslunarbankanum og Alþýðubankanum og varð að Íslandsbanka, sem síðar varð Glitnir. Forseti Alþingis ákærður Jóhann Einvarðsson, forseti Alþingis, var sviptur þinghelgi og ákærður vegna Útvegs- bankans. Á laugardegi hafði krafan um sviptingu þinghelgi verið kynnt forsætisnefnd, og það mátti heyra saumnál detta þegar ég gekk inn um dyr Alþingis þennan laugardag. Ég fengið ábendingu frá heimildar manni. Frétt mín um þann einstæða atburð var sem pólitískur landskjálfti upp á tíu. Ísland nötraði. Sérstakur saksóknari hafði ákært Jóhann og félaga í bankaráði. Jónatan Þórmundsson hafði verið skipaður sérstakur saksóknari eftir að bróðir Jóhanns, Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari, hafði verið dæmdur vanhæfur og frá Hafskipsmálinu. Aðeins einu sinni áður hafði þingmaður verið sviptur þinghelgi. Það var 1932 þegar Magnús Guðmundsson sagði af sér en Hæsti- réttur sýknaði dómsmálaráðherrann stuttu síðar. Myndin til vinstri er tekin árið 1987 þegar Hallur var fréttamaður á Sjónvarpinu. Myndin til hægri er tekin árið 2016, í tilefni af 30 ára afmælis Stöðvar 2 – hvar Hallur starfaði um árabil.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.