Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 40
38 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
Heimild: Vinnumálastofnun
Með inngöngu í EFTA og EES- samningnum
má segja að heimurinn hafi minnkað - og
Ísland var statt í miðri alþjóðavæðingunni.
Markmið með aðild okkar að þessum
alþjóðasamningum var, og er, að tryggja
aðgang að erlendum mörkuðum fyrir okkar
framleiðsluvörur til að afla gjaldeyris en jafn-
framt að stuðla að aukinni samkeppnishæfni
okkar og Evrópu gagnvart öðrum efnahags-
svæðum. Ef Íslenskt fyrirtæki kemur með betri
lausnir stuðlar það að bættri samkeppnis stöðu
evrópska efnahagssvæðisins. Við höfum e.t.v.
ekki alveg fundið taktinn í þessari þróun,
við viljum auka kaupmátt, hækka laun en
jafnframt lækka verðlag. Þessi vandi sést best
á fréttum undanfarið þar sem sagt var frá að
leigufélag verkalýðshreyfingarinnar hyggst
byggja hagkvæmar leiguíbúðir með því að
kaupa einingahús frá Lettlandi og innréttingar
frá IKEA, því það er ódýrara, en á sama tíma
fara fram á mikla hækkun lægstu launa
hér á landi svo íslenskur iðnaður verði ekki
samkeppnisfær. Þeir útlendingar sem hingað
koma starfa oft á þeim sviðum þar sem lægstu
launin voru greidd. Erlent vinnuafl hefur
hefur í miklu mæli sótt til Íslands í hærri
laun en því býðst í sínu heima landi. EES-
samningur inn heimilaði frjálsa för launafólks
og er erlent vinnuafl nú yfir 13% af vinnu-
markaði. Lágmarkslaun í Lettlandi eru 60
þúsund á mánuði, á Spáni um 107 þúsund
og í Bretlandi um 205 þúsund. Verkalýðs-
hreyfingin horfði þá í auknu mæli til þessarar
staðreynda við mótun kröfugerða.
Á þessum tíma urðu einnig miklar tækni-
breytingar. Með upptöku strikamerka og
nýrra verslunarhátta varð um 20% fækkun
starfa í verslun. Mikil fækkun starfsfólks varð
einnig í sjávarútvegi og fiskvinnslu með
tilkomu kvótakerfisins og nýrrar tækni svo
einhver dæmi séu nefnd. Menntunarstig
þjóðarinnar hefur einnig breyst hratt. Árið
1990 voru háskólamenntaðir um 11% af
vinnu markaði á Íslandi en eru nú um 37%
og á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem
einungis hafa grunnmenntun fækkað í um
26%. Menntunarmál hafa orðið æ fyrirferðar-
meiri í starfsemi stéttarfélaga sem leið til
bættra kjara og til að tryggja samkeppnis-
hæfni um störfin með alþjóðavæðingunni.