Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 63
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 61
Drama á Stöð 2
Ég hafði hafið umfjöllun um fimmtugsafmæli
Bryndísar Schram á Sjónvarpinu og tvíefldist
á Stöð 2 með áfengisnótur sem hafði verið
lekið til mín úr Ríkinu. Þar var rækilega
tíunduð hver einasta flaska sem hafði farið úr
Borgartúni í veisluna á Hótel Íslandi. Afmælis-
veislan var sumsé í boði skattborgara. Jón
Baldvin hafði boðið gestum upp á ráðherra-
vín, svo sem tíðkast hafði um áratugaskeið.
Jóni mislíkaði mjög myndir sem við sýndum
þegar gestir komu til veislunnar.
Jón Baldvin og félagar í nýrri ríkisstjórn vildu
reka mig og Pál Magnússon af Stöð 2. Það var
eftir að þeir höfðu sparkað Þorsteini Pálssyni
úr ríkisstjórn og tekið Ólaf Ragnar inn í
stjórnina. Jón Baldvin kom í viðtal við okkur
Pál og var heitt í hamsi og sló til mín í beinni
útsendingu.
Jón Óttar Ragnarsson var auðvitað og
skiljanlega reiðubúinn að fórna okkar aumu
persónum fyrir 500 milljón króna ríkisábyrgð
til þess að halda völdum á Krókhálsi en féll
á tíma og missti Stöð 2. Nýir eigendur tóku
við keflinu. Páll varð sjónvarpsstjóri og Ingvi
Hrafn fréttastjóri að mínu frumkvæði. Davíð
Oddsson felldi Þorstein í formannsslag 1991
og allar götur síðan hefur Þorsteinn Pálsson
glefsað í hæla sinna gömlu félaga.
Bílskúr af áfengi og Bermúdaskál
Brennivín hefur alltaf verið stórmál á Íslandi.
Magnús Thoroddsen, forseti Hæstaréttar,
var gómaður með fullan bílskúr af áfengi og
dæmdur frá embætti. Svo var það fyrrnefnt
ráðherravín Jóns Baldvins. Ríkisendurskoðun
„sýknaði“ Jón Baldvin enda gæslumaður
kerfisins sem sér um sína blýantanagara.
Svo var það Bermúdaskál Davíðs Oddssonar.
Við höfðum setið saman til borðs í veislu
Skáksambands Íslands í veislusölum ríkisins í
Borgartúni. Davíð var þá með slæm útbrot á
enni eftir erfið veikindi og á sterkum fúkka-
lyfjum. Davíð hélt úr veislunni til þess að taka
á móti heimsmeisturum okkar færandi heim
Bermúdaskálina; HM-bikar bridgeheimsins.
Ótrúlegt afrek og mikil gleði í Leifsstöð.
Þar var skálað. „Við segjum ekki bara skál,
heldur Bermúdaskál,“ sagði Davíð. Þar var
með hljóðnema Bjarni vinur minn Felixson.
Bjarni Fel fylgdi Davíð líkt og skugginn þó að
athyglin hefði átt að beinast að sigursælum
heimsmeisturum. RÚV-arar töldu sig finna
keim af áfengi og í fréttatíma eftir fréttatíma
sóttu hart að Davíð. Það lá vel á ráðherra en
hann var fráleitt fullur. Um það get ég vitnað
eftir að hafa setið með honum í veislu Skák-
sambandsins.
Í þætti á Stöð 2 tók ég fyrir Bermúdaskálina.
Davíð Oddsson mætti í Krókhálsinn til þess
að ræða almennt um pólitíkina við mig og
Kristján Má Unnarsson, þann flotta frétta-
mann.
Þessi teikning eftir Sigmund birtist í Morgunblaðinu
eftir að Hallur Hallsson hafði fjallað um áfengiskaup
Jóns Baldvins Hannibalssonar.
Boðað var til blaðamannafundar þar sem tilkkynnt var
um tilboð SÍS í Útvegsbankann. Hallur er lengst til vinstri á
myndinni.