Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 11
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 9
staðinn að því, að vinna gegn meginmark-
miðum og hagsmunum Flokks fólksins,
skal hann sviptur félagsaðild og skal það
gert á stjórnarfundi með auknum meiri-
hluta atkvæða og félagsmanni tilkynnt það
formlega“.
Stjórnin harmar þá rýrð sem þeir hafa
kastað á Flokk fólksins, með óafsakanlegri
þátttöku sinni á fundi með þingmönnum
Miðflokksins á Klaustur-bar þann 20. nóv. sl.
[Séra] Halldór Gunnarsson hefur sagt sig
úr stjórn flokksins ásamt öðrum trúnaðar-
störfum er hann gegndi.“
Karl Gauti og Ólafur voru ósáttir við brott-
reksturinn. Þeir sögðust ætla að starfa utan
flokka á þingi. Halldór Gunnarsson sagði sig
úr stjórn flokksins af því að hann vildi ekki
reka þá félaga sína úr honum. Þeir hefðu ekki
gerst sekir um óviðurkvæmilegt tal.
Inga Sæland sá hins vegar að Karl Gauti talaði
niður til hennar. Hún áttaði sig einnig á því
að þeir sátu þennan fund til að leggja á ráðin
um andóf gegn henni, ef ekki beina uppreisn
í samvinnu við Miðflokksmenn.
Lítið er spunnið í flokksformann sem bregst
ekki við slíkum samblæstri.
IV.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Miðflokksins, sendi flokkssystkinum sínum
bréf föstudaginn 30. nóvember. Þar tilkynnti
hann að Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór
Ólason hefðu verið sendir í leyfi. Hann sagði
þingmenn flokksins „miður sín yfir mörgum
þeirra orða sem féllu í einkasamtölum sem
gerð hafa verið opinber undanfarna daga“.
Vanlíðan viðkomandi þingmanna hefði verið
mikil. Hann „hefði átt að stöðva“ fundinn í
Klaustri.
Þá sagði flokksformaðurinn:
„Ég skammast mín fyrir að hafa ekki gert
það en sök mín hvað þetta varðar er því
miður miklu meiri en nemur þessum eina
fundi. [...] Ég hef setið ótalsinnum með full-
trúum ólíkra flokka þar sem sambærilegar
umræður hafa átt sér stað án þess að ég
eða aðrir höfum stöðvað þær.“
Hafi Sigmundur Davíð setið marga fundi
um menn og málefni þar sem orðbragð og
hugarfar er á borð við það sem upptökurnar
af kráarfundinum í Klaustri sýna ber það vott
um stjórnmálastarf á fúnum grunni.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.