Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 64

Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 64
62 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Það dæmdist á mig að taka fyrir skál Davíðs og gekk allmikið á fyrir þáttinn. Davíð hafði neitað að ræða málið og krafist þess í gegnum ritara sinn að Bermúdaskálina bæri ekki á góma í þættinum. Ég þvertók fyrir það. Sagði ritara ráðherra að spurningar um Bermúda- skálina yrðu bornar fram og hann hefði valið um að mæta. Það var gert. Eftir þáttinn sagði Davíð: „Þú hafðir á réttu að standa. Þetta voru eðlilegar spurningar. Það hefði ekki gengið að ræða pólitíkina og sleppa Bermúdaskálinni.“ Með Bermúdaskálinni hófst fyrsta einelti RÚV á hendur Davíð Oddssyni. Árásirnar áttu eftir að magnast eftir því sem leið á feril Davíðs í Stjórnarráðinu og náðu hámarki í kjölfar Hrunsins. Svart á hvítu og rassvasabókhald Bókaútgáfan Svart á hvítu fór í þrot þó að Ólafur Ragnar Grímsson samþykkti 25 milljón króna skuldabréf vegna rimlagjalda með veði í gagnagrunni sem fór á 100 þúsund krónur á nauðungaruppboði fáum misserum síðar. Ég átti magnað viðtal við Ólaf Ragnar um Svart á hvítu þar sem hann vék sér fimlega undan spurningum en margir hringdu upp á Stöð 2 í kjölfar viðtalsins. Þá var það rassvasabókhald Steingríms Hermannssonar í gjaldþroti Tímans, málgagni Framsóknarflokksins. Málaferli voru í gangi þar sem hluthafar í útgáfufélagi Tímans töldu sig hlunnfarna og blekkta og höfðuðu mál til þess að endurheimta fé sitt. Stein grímur kom í viðtal og það varð allstormasamt þar sem ég sagði: „Þetta er bara rassvasabókhald, Stein- grímur.“ Hann varð hissa og eilítið brugðið og svaraði: „Nei, nei. Hvaða vitleysa er þetta ... ég verð að segja það.“ Óli í Olís og „...vitleysan í Halli“ Frétt mín um að Sverrir Hermannsson í Landsbankanum vildi sparka Óla Kr. Sigurðs- syni út úr Olís vakti gríðarlega athygli. Að sönnu mikil frétt en Óli Kr. hafði keypt Olís í nóvember 1986. Óli barði í borðið og boðaði til blaðamannafundar í Héðinsgötu til þess að „reka vitleysuna ofan í Hall Hallsson“. En auðvitað var það rétt; Landsbankinn vildi bola Óla út úr eigin fyrirtæki. Rimma Sverris og Óla var hörð og Óli náði að halda Olís með innkomu Texaco haustið 1989. Síðar skrifaði ég sögu Olíuverzlunar Íslands, Þeir létu dæluna ganga, sem kom út árið 2002 á 75 ára afmæli félagsins. Dramatískt barnsrán í Hollywood­stíl Og ég nefni dramatískasta barnsrán Íslands- sögunnar þegar tveir Bandaríkjamenn voru handteknir um borð í Flugleiðaþotu með tvær dætur íslenskrar konu sem hafði strokið með börnin frá Bandaríkjunum til Íslands. Feðurnir höfðu ráðið mann að nafni Donald Feeney sem hafði sérhæft sig í að bjarga bandarískum ríkisborgurum. Annar mannanna, James Grayson, var faðir yngri dótturinnar. Feeney villti á sér heimildir sem Mario Kassar, frægur leikstjóri í Hollywood, í því augnamiði að vinna traust móður stúlknanna í aðdraganda ránsins. Þeir Feeney og Grayson voru dæmdir á Litla-Hraun en Icelandair, sem þá hét Flugleiðir, var dæmt til að greiða milljarð í skaðabætur fyrir að hjálpa móðurinni að „ræna“ stúlkunum frá Ameríku. Sex mánuðum eftir tveggja ára dóm strauk Donald Feeney af Litla-Hrauni og reyndi að komast úr landi en var stöðvaður í Vestmanna eyjum. „Á bak við þessar luktu dyr ...“ Og svo vann Jóhann Hjartarson Kortsnoj í Saint John en féll fyrir Karpov í Seattle. Ég átti því ótrúlega láni að fagna að flytja þjóðinni fréttir af skák, kannski vegna þess að við Friðrik Ólafsson, stórmeistari og öflugasti skákmaður sem Ísland hefur alið, erum systkina börn; hann er sonur þeirra sómahjóna Sigríðar Símonardóttur systur Halls Símonarsonar og Ólafs Friðriks sonar. Mér þótti vænt um þegar Jakinn kom með blómvönd á Stöð 2 eftir umfjöllun um atvinnulaust fólk. Þó að lúaleg atlagan að Jakanum hafi hafist í kjölfar samtals okkar á Sjónvarpinu sumarið 1986 var vinátta okkar sterk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.