Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 58

Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 58
56 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Umhverfissinnar í afneitun Talandi um meðferð á tölulegum upplýsingum. Þú dróst fram þær upplýsingar fyrir nokkrum árum að ekki væri allt sem sýndist varðandi losun gróðurhúsalofttegunda af manna völdum hér á landi. Um hvað fjallaði það mál? „Þannig var að Össur Skarphéðinsson hafði árið 2014 spurt umhverfisráðherra um losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi og fengið skýr svör um hver losunin væri. Þegar ég rak augun í þetta svar sá ég að losunin frá framræsta landinu var að minnsta kosti tvöfalt meiri en losunin sem gefin var upp sem losun Íslands samkvæmt loftslags- bókhaldi í tengslum við Kyoto bókunina,“ segir Sigríður. „Ég lagði því fram fyrirspurn til umhverfis- ráðherra árið 2015 um hver raunveruleg losun væri frá öllum þáttum en þá bar svo við að losunin frá framræsta landinu var ekki talin með í svarinu. Ég lagði þá fram tvær fyrirspurnir til viðbótar og fékk á endanum það svar að losunin frá framræsta landinu væri 72% en frá fólksbílum 4% en nær allar aðgerðir gegn losun höfðu fram til þess snúið að fólksbílum sem er auðvitað undarlegt þegar lítill hlutur þeirra er skoðaður. Það var áhugavert að fylgjast með viðbrögðunum við þessu því sumir svonefndir umhverfis- sinnar fóru í hálfgerða afneitun og neituðu að trúa mati íslenskra vísindamanna og vísindanefndar loftslagssáttmála Sameinuðu þjóðanna um þessi efni. Þeir hafa hins vegar snúið við blaðinu á undanförnum árum og eru jafnvel komnir með ágæt verkefni um endurheimt votlendis af stað.“ Sigríður segir að ástæðan fyrir því að þessi losun frá framræsta landinu sé ekki talin með í svokölluðu loftslagsbókhaldi Íslands er að framræslan fór að mestu leyti fram fyrir árið 1990 sem er viðmiðunarár Kyoto. Losunin heldur engu að síður áfram frá framræsta landinu. „Við erum því annars vegar með raunveru- lega losun og hins vegar bókhaldslosun og á þeim er mikill munur í okkar tilfelli sem er mjög bagalegt,“ segir Sigríður. „Endurheimt votlendis er heldur ekki bara loftslagsmál heldur eykur votlendi á náttúru gæði á svo margan hátt. Votlendi er stuðpúði fyrir vatnsbúskap í ám og vötnum og þar með mikilvægt lífríki fiska. Votlendi er sömuleiðis griðarstaður fuglalífs og fjöl- breyttrar flóru.“ „Ég skil þó vel að fólk hafi skoðanir á mínum störfum en ég finn það líka að fólk kann að meta að sumir hlutir séu sagðir hreint út og að fólk þarf ekki að velkjast í vafa um það hvaða skoðanir maður hefur," segir Sigríður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.