Þjóðmál - 01.12.2018, Side 55
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 53
Jafnréttisbaráttan er
ekki stemningsmál
Þá að öðru. Það vakti athygli þegar Sigríður
gerði launamun kynjanna að umtalsefni
á fésbókarsíðu sinni á Kvennafrídaginn í
október sl. Þar fjallaði hún um tölfræði Hag-
stofunnar um það mál eftir að hún varð þess
áskynja að aðstandendur kvennafri.is höfðu
dregið rangar ályktanir af þeim upplýsingum.
Aðstandendur dagsins slógu því föstu að
launamunur kynjanna markaðist af mun á
meðalatvinnutekjum kvenna samanborið
við tekjur karla þar sem ekki er tekið tillit til
vinnu manna, vinnutíma, menntunar, reynslu,
mannaforráða og annarra mælanlegra þátta
og næmi því 26%. Sigríður benti á að þegar
leiðrétt væri fyrir þessum mælanlegum
þáttum væri launamunur kynjanna aðeins
um 5% eins og fram kom í skýrslu Hag-
stofunnar. Þá væru ungar konur með hærri
laun en ungir karlar í dag.
Þessi skrif Sigríðar ollu miklu fjaðrafoki á
meðal aðstandenda kvennafri.is og annarra
sem töldu að með þessu væri verið að vega
að jafnréttisbaráttu kvenna. Þeir voru einnig
margir, þar á meðal þingmenn, sem töldu
að skrif Sigríðar um tölfræðigreiningu Hag-
stofunnar um launamun kynjanna væru
óviðeigandi á sjálfum kvennafrídeginum.
„Ef það er einhver dagur þar sem þetta ætti
að vera rætt opinskátt þá er það einmitt á
þessum degi og konan sem ég er ætlar nú
bara að leyfa sér að taka til máls sérstaklega á
þessum degi. Menn hljóta að vilja fá fram það
sem er tæknilega rétt inn í þessa mikilvægu
umræðu,“ segir Sigríður.
„Ég hafði lítið kynnt mér dagskrá eða skipu-
lag kvennafrídagsins fyrr en ég fékk senda
ábendingu um þessa skýrslu Hagstofunnar
sem ég vitnaði svo til í skrifum mínum. Þegar
ég skoðaði vef kvennafrídagsins sá ég að þar
voru dregnar allt aðrar ályktanir en lesa mátti
úr skýrslu Hagstofunnar.
„Það er vissulega munur á launum kynjanna, en ég hef ítrekað bent á að það stafar ekki af skipulögðu misrétti, aðför eða
samsæri gegn konum, heldur út af öðrum mælanlegum og ómælanlegum þáttum. Það eru aðrir samfélagslegir þættir sem
hafa áhrif og við eigum að verja tíma okkar í ræða þá til að komast að rót vandans," segir Sigríður um jafnréttismál.