Þjóðmál - 01.12.2018, Side 55

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 55
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 53 Jafnréttisbaráttan er ekki stemningsmál Þá að öðru. Það vakti athygli þegar Sigríður gerði launamun kynjanna að umtalsefni á fésbókarsíðu sinni á Kvennafrídaginn í október sl. Þar fjallaði hún um tölfræði Hag- stofunnar um það mál eftir að hún varð þess áskynja að aðstandendur kvennafri.is höfðu dregið rangar ályktanir af þeim upplýsingum. Aðstandendur dagsins slógu því föstu að launamunur kynjanna markaðist af mun á meðalatvinnutekjum kvenna samanborið við tekjur karla þar sem ekki er tekið tillit til vinnu manna, vinnutíma, menntunar, reynslu, mannaforráða og annarra mælanlegra þátta og næmi því 26%. Sigríður benti á að þegar leiðrétt væri fyrir þessum mælanlegum þáttum væri launamunur kynjanna aðeins um 5% eins og fram kom í skýrslu Hag- stofunnar. Þá væru ungar konur með hærri laun en ungir karlar í dag. Þessi skrif Sigríðar ollu miklu fjaðrafoki á meðal aðstandenda kvennafri.is og annarra sem töldu að með þessu væri verið að vega að jafnréttisbaráttu kvenna. Þeir voru einnig margir, þar á meðal þingmenn, sem töldu að skrif Sigríðar um tölfræðigreiningu Hag- stofunnar um launamun kynjanna væru óviðeigandi á sjálfum kvennafrídeginum. „Ef það er einhver dagur þar sem þetta ætti að vera rætt opinskátt þá er það einmitt á þessum degi og konan sem ég er ætlar nú bara að leyfa sér að taka til máls sérstaklega á þessum degi. Menn hljóta að vilja fá fram það sem er tæknilega rétt inn í þessa mikilvægu umræðu,“ segir Sigríður. „Ég hafði lítið kynnt mér dagskrá eða skipu- lag kvennafrídagsins fyrr en ég fékk senda ábendingu um þessa skýrslu Hagstofunnar sem ég vitnaði svo til í skrifum mínum. Þegar ég skoðaði vef kvennafrídagsins sá ég að þar voru dregnar allt aðrar ályktanir en lesa mátti úr skýrslu Hagstofunnar. „Það er vissulega munur á launum kynjanna, en ég hef ítrekað bent á að það stafar ekki af skipulögðu misrétti, aðför eða samsæri gegn konum, heldur út af öðrum mælanlegum og ómælanlegum þáttum. Það eru aðrir samfélagslegir þættir sem hafa áhrif og við eigum að verja tíma okkar í ræða þá til að komast að rót vandans," segir Sigríður um jafnréttismál.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.