Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 10
8 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
Í fyrsta lagi vildu Miðflokksmenn reyna að fá
Karl Gauta og Ólaf til að ganga til liðs við sig.
Virtist Ólafi standa til boða að verða þing-
flokksformaður Miðflokksins í stað Gunnars
Braga.
Í öðru lagi minnti Gunnar Bragi á að hann
hefði skipað Árna Þór Sigurðsson, þáv.
þingmann VG, sendiherra samtímis Geir H.
Haarde, fyrrv. forsætisráðherra og formanni
Sjálfstæðisflokksins. Þetta hefði hann gert til
að skapa frið um skipun Geirs og tekist það.
Hann hefði rætt málið við Bjarna Benedikts-
son, formann Sjálfstæðisflokksins. Gunnar
Bragi gaf til kynna að hann ætti inni hjá
sjálfstæðismönnum að þeir skipuðu sig
sendi herra. Sigmundur Davíð tók undir
þau orð. Bjarni Benediktsson og Guðlaugur
Þórðarson utanríkisráðherra hafa afdráttar-
laust hafnað því að Gunnar Bragi eigi
eitthvað inni hjá sjálfstæðismönnum
varðandi stöðuveitingar.
Birting á samtölum þingmannanna og
einkum niðrandi ummæli þeirra um konur
vöktu hneykslun og reiði fimmtudaginn 29.
nóvember. Steingrímur J. Sigfússon, forseti
alþingis, sagði á ruv.is:
„Mér líður mjög illa. Mér finnst þetta
hrylli legur atburður [...] Þannig að þetta er
óskaplega dapur dagur.“
III.
Að kvöldi fimmtudagsins 29. nóvember var
árlegt kvöldverðarboð forseta Íslands fyrir
alþingismenn. Hvorki Gunnar Bragi Sveinsson
né Bergþór Ólason, orðljótustu mennirnir á
fundi sexmenninganna, sóttu veisluna. Vildu
þeir hlífa samstarfsmönnum við návist sinni.
Föstudaginn 30. desember boðuðu þeir tveir
fjarveru á nefndarfundum.
Bar þetta vott um að í hópi samstarfsmanna
á þingi væru þeir illa séðir. Sama viðhorf var
innan þeirra eigin flokka.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, birti
eftirfarandi yfirlýsingu á vefsíðu flokksins
föstudaginn 30. nóvember:
„Í ljósi alvarlegs trúnaðarbrests sem upp er
kominn í þingflokki Flokks fólksins ákvað
stjórn flokksins á nýafstöðnum fundi sínum
í dag, að vísa þingmönnum flokksins þeim
Karli Gauta Hjaltasyni og Ólafi Ísleifssyni
úr Flokki fólksins, sbr. samþykktir flokksins
grein 2.6 en þar segir: „Sé félagsmaður
Ólafur Ísleifsson þingflokksformaður Flokks fólksins. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.