Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 52

Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 52
50 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Landsdómsmálið hefði alltaf orðið umdeilt Eins og áður sagði hafa ýmis álitaefni, bæði stór og smá, skotið upp kollinum í ráðherratíð Sigríðar. Skipun dómara við Landsrétt stendur þar mögulega hæst. Hún varð til þess að borin var upp vantrauststillaga á Sigríði á Alþingi, sem þó var felld. Það má halda því fram að með því að samþykkja ekki óbreyttan lista hæfisnefndar, sem innihélt 15 nöfn fyrir þau 15 embætti dómara sem skipa átti við Landsrétt, hafi Sigríður farið gegn ríkjandi öflum í dómskerfinu. Hún tekur ekki sjálf svo sterkt til orða þegar hún er spurð um þessa þætti en er þó meira en tilbúin til þess að fara yfir þetta mál. „Vilji löggjafans um það hvernig skipa átti í fyrsta sinn alla dómara við Landsrétt var skýr. Löggjafinn hafði tekið sérstaka ákvörðun með breytingu á lögum um dómstóla um að Alþingi skyldi koma að skipuninni með þeim hætti að samþykkja eða hafna tillögum ráðherra um umsækjendur um dómara- embætti,“ segir Sigríður. „Ég þurfti því að vera í góðu samstarfi við þingið varðandi þetta, þar sem lögin lögðu nú í fyrsta sinn skyldu á ráðherra að leggja tillögu að skipun dómara við Landsrétt fyrir Alþingi til samþykktar eða synjunar. Þegar ég fékk tillögu hæfnisnefndar til skoðunar ásamt vinnugögnum nefndarinnar og andmæli annarra umsækjenda gegn tillögunni fannst mér blasa við að niðurstaða nefndarinnar, um að telja 15 umsækjendur um 15 embætti það mikið hæfari en aðra umsækjendur að það verðskuldaði að telja þá hæfasta í þeim skilningi að aðrir kæmu hreinlega ekki til greina, blasti við mér óeðlileg niðurstaða og í hæsta máta ósanngjörn gagnvart þeim umsækjendum sem bjuggu yfir langri og farsælli dómarareynslu. Það lá svo fyrir um leið og listi dómnefndarinnar var gerður opinber að hann yrði ekki samþykktur á Alþingi. Þetta fékk ég staðfest hjá formönnum flokka bæði í stjórn og stjórnarandstöðu á þeim tíma og nefndu menn þar helst kynja- sjónarmiðin sem ástæðu. Um þetta hefur nú verið borið fyrir dómi. Ég rannsakaði málið á grundvelli sömu gagna og nefndin hafði til verksins sem og niðurstöðu hennar ásamt vel rökstuddum andmælum sumra umsækjenda. Ég lagði áherslu á dómara reynslu umsækjenda en nefndin hafði við sína vinnu í raun sleppt því að meta suma þætti dómarareynslunnar sem þó er kveðið á um í reglum að skuli gert.“ Við það bættust níu dómarar í hóp þeirra 15 umsækjenda sem nefndin hafði metið hæfasta. En við heildsætt mat tók Sigríður einnig mið af lögum um jafna stöðu karla og kvenna eins og henni bar að gera við þessar aðstæður eftir að búið var að afmarka þá sem töldust jafnhæfir til starfans. Að lokinni ítar- legri rannsókn gerði hún tillögu til Alþingis sem var samþykkt þar. „Ég nefndi þetta með dómarareynsluna við nefndina en þá var mér gert ljóst að hún hefði ekki í hyggju að kvika frá sinni niðurstöðu um að akkúrat fimmtán teldust hæfastir af þeim sem höfðu sótt um, margir með reynslu sem kom á óvart að í raun litið var framhjá,“ segir Sigríður. Ég lagði þær tillögur mínar fyrir þingið og það ríkti mikil ánægja með þær í næstum sólarhring enda stefndi í að í fyrsta sinn væri jafn mikilvæg stofnun og dómstóll sett á laggirnar hér á landi með jöfnu hlutfalli kynja í viðeigandi embættum. En svo fóru þingmenn að fá símtölin þar sem í þá var togað og málið fór í hefðbundnar skotgrafir stjórnmálanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.