Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 66
64 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
brotið gegn útgöngubanni og farið í utan-
ríkisráðuneytið þar sem þeir voru.
Í ágúst 1991 klifraði Jeltsín upp á skrið-
drekann í Moskvu og Sovétríkin hrundu eins
og spilaborg. Þjóðirnar fyrir botni Eystrasalts
fengu langþráð frelsi.
Á DB og Mogga
Ég hafði lært til verka á „óháðu og frjálsu“
Dagblaði Jónasar og Morgunblaði Matthíasar
og Styrmis. Ég var fréttamaður í tæpan
áratug í sjónvarpi; á Sjónvarpinu áður en RÚV
fór í tötra og á Stöð 2 fyrir tíð Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, sem rústaði frjálsri og óháðri
blaða- og fréttamennsku á Íslandi.
Ég var svo heppinn að starfa hvorki á Stöð
2 né RÚV á nýrri öld. Það voru komnir
nýir eigendur að Íslandi. Jón Ásgeir gerir
að sönnu tilkall til að vera nefndur helsti
skugga baldur Íslandssögunnar. Þegar
ofsóknir fjölmiðla hans mögnuðust á nýrri
öld tók ég afstöðu gegn ofbeldi Jóns Ásgeirs.
Það varð til þess að ofsóknir hófust gegn mér
á nokkrum vígstöðvum og útskúfun viðskipta
og fjölmiðla. Ég tel það eitt mesta gæfuspor
lífs míns að hafa dregið þá línu í sandinn þó
að það hafi að sönnu verið dýrt.
Og á þessum árum var ég formaður Víkings
(1989-1996) og er nú heiðursfélagi. Við
reistum Víkina. Davíð Oddsson borgarstjóri
tók fyrstu skóflustunguna að nýju íþróttahúsi
Víkings sem tekið var í notkun haustið 1991.
Áður hafði ég verið formaður handknattleiks-
deildar Víkings.
Seinna kom Keikó en það er önnur saga og á
nýrri öld Váfugl þegar Sjálfstæðis flokkurinn
tók að gæla við að svíkja uppruna sinn,
tilgang og stefnu og selja þjóðina undir
erlent vald í kompaní við guðlausa glóbalista.
Atlagan að íslensku fullveldi stendur yfir;
atlaga að ættjörðinni sem kynslóðir hafa í yfir
þúsund ár ort lofgerðarljóð.
Ísland ögrum skorið,
ég vil nefna þig,
sem á brjóstum borið
og blessað hefur mig
fyrir skikkan skaparans.
Vertu blessað, blessi þig
blessað nafnið hans.
- Eggert Ólafsson.
Höfundur er fjölmiðlamaður
Hallur Hallson var um árabil formaður Víkins. Hér sést hann
halda ávarp þegar að Davíð Oddsson, þá borgarstjóri, tók
fyrstu skóflustunguna að nýju íþrótta húsi Víkings sem tekið
var í notkun haustið 1991.
Árið 1991 var kvikmynd Friðrik Þórs Friðrikssonar, Börn
náttúrunnar, frumsýnd í Stjörnubíói á Laugavegi. Þau Gísli
Halldórssonar og Sigríður Hagalín fór á kostum í aðalhlut
verkum. Hallur lék fréttamann sem skýrði frá dularfullu
hvarfi þeirra af elliheimili.