Þjóðmál - 01.12.2018, Side 66

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 66
64 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 brotið gegn útgöngubanni og farið í utan- ríkisráðuneytið þar sem þeir voru. Í ágúst 1991 klifraði Jeltsín upp á skrið- drekann í Moskvu og Sovétríkin hrundu eins og spilaborg. Þjóðirnar fyrir botni Eystrasalts fengu langþráð frelsi. Á DB og Mogga Ég hafði lært til verka á „óháðu og frjálsu“ Dagblaði Jónasar og Morgunblaði Matthíasar og Styrmis. Ég var fréttamaður í tæpan áratug í sjónvarpi; á Sjónvarpinu áður en RÚV fór í tötra og á Stöð 2 fyrir tíð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sem rústaði frjálsri og óháðri blaða- og fréttamennsku á Íslandi. Ég var svo heppinn að starfa hvorki á Stöð 2 né RÚV á nýrri öld. Það voru komnir nýir eigendur að Íslandi. Jón Ásgeir gerir að sönnu tilkall til að vera nefndur helsti skugga baldur Íslandssögunnar. Þegar ofsóknir fjölmiðla hans mögnuðust á nýrri öld tók ég afstöðu gegn ofbeldi Jóns Ásgeirs. Það varð til þess að ofsóknir hófust gegn mér á nokkrum vígstöðvum og útskúfun viðskipta og fjölmiðla. Ég tel það eitt mesta gæfuspor lífs míns að hafa dregið þá línu í sandinn þó að það hafi að sönnu verið dýrt. Og á þessum árum var ég formaður Víkings (1989-1996) og er nú heiðursfélagi. Við reistum Víkina. Davíð Oddsson borgarstjóri tók fyrstu skóflustunguna að nýju íþróttahúsi Víkings sem tekið var í notkun haustið 1991. Áður hafði ég verið formaður handknattleiks- deildar Víkings. Seinna kom Keikó en það er önnur saga og á nýrri öld Váfugl þegar Sjálfstæðis flokkurinn tók að gæla við að svíkja uppruna sinn, tilgang og stefnu og selja þjóðina undir erlent vald í kompaní við guðlausa glóbalista. Atlagan að íslensku fullveldi stendur yfir; atlaga að ættjörðinni sem kynslóðir hafa í yfir þúsund ár ort lofgerðarljóð. Ísland ögrum skorið, ég vil nefna þig, sem á brjóstum borið og blessað hefur mig fyrir skikkan skaparans. Vertu blessað, blessi þig blessað nafnið hans. - Eggert Ólafsson. Höfundur er fjölmiðlamaður Hallur Hallson var um árabil formaður Víkins. Hér sést hann halda ávarp þegar að Davíð Oddsson, þá borgarstjóri, tók fyrstu skóflustunguna að nýju íþrótta húsi Víkings sem tekið var í notkun haustið 1991. Árið 1991 var kvikmynd Friðrik Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, frumsýnd í Stjörnubíói á Laugavegi. Þau Gísli Halldórssonar og Sigríður Hagalín fór á kostum í aðalhlut­ verkum. Hallur lék fréttamann sem skýrði frá dularfullu hvarfi þeirra af elliheimili.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.