Þjóðmál - 01.12.2018, Blaðsíða 9
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 7
Í greininni segir:
„Stuðningur við nýsköpun og rannsóknir
hefur enn verið efldur, nú síðast með
tvöföldun hámarksupphæða endurgreiðslu
vegna rannsóknar- og þróunarverkefna
fyrirtækja. Sömuleiðis er unnið að
nýsköpunarstefnu fyrir Ísland sem er
lykilatriði fyrir framtíð samfélagsins og fjöl-
breyttari stoðir efnahagslífsins. Unnið er að
endurskoðun á starfsumhverfi vísinda og
rannsókna og von á frumvarpi um heilindi í
vísindarannsóknum.“
Ástæða er til að staldra sérstaklega við
þennan kafla greinarinnar og hvetja til þess
að nýsköpun reist á rannsóknum og vísindum
nái til sem flestra þátta. Nýsköpun er afrakstur
samkeppni og metnaðar. Hún leiðir til hag-
kvæmni og framfara. Losa verður um tök
ríkisins á sviði heilbrigðis- og félagsmála og
leyfa nýjum straumum að leika um þessi
stóru útgjaldasvið, ekki til þess að rýra opin-
beran fjárstuðning heldur til að tryggja að
fjármunir séu nýttir undir aga samkeppni.
Hér á þessum vettvangi hefur því verið haldið
fram að samstarf þessara þriggja ólíku flokka
sé vel til þess fallið að skapa æskilegt og
nauðsynlegt jafnvægi á stjórnmálavettvangi
og í samfélaginu almennt.
Það hefur tekist á fyrsta ári stjórnar-
samstarfsins. Næstu vikur reynir á þanþol
þess þegar sverfur til stáls í kjaraviðræðum.
Nýir forystumenn Eflingar stéttarfélags og
Verslunarmannafélags Reykjavíkur (VR)
haga sér að nokkru eins og strengjabrúður
öfgafullra sósíalista þegar þeir boða ágæti
stéttaátaka. Að tekist skuli á við þessa tíma-
skekkju hér núna þegar kaupmáttaraukning
hefur verið meiri en nokkru sinni er til marks
um að litlir jaðarhópar hafa komið ár sinni
fyrir borð í fjölmennum samtökum launa-
manna. Umbjóðendur þessa forystufólks
finna fyrir skaðsemi þess að fela því ábyrgð
verði ekki samið um kaup og kjör innan
þeirra marka sem þjóðarbúið og eðlileg fram-
vinda þess þolir.
Undir lok afmælisgreinar sinnar vara formenn
stjórnarflokkanna við öfga- og lýðskrums-
flokkum og stjórnmálamönnum sem vilja
„sundra og grafa undan þeim lýðræðislegu
gildum sem hafa tryggt stórstígar framfarir
í mannréttindamálum, hagsæld og öryggi“.
Við þessar aðstæður sé mikilvægt „að sýna
fram á að það er hægt að taka tillit til ólíkra
sjónarmiða, miðla málum og vinna samhent
að sameiginlegum markmiðum, þvert á
flokka, samfélaginu öllu til heilla“.
Takist flokkunum þetta verður samstarf
þeirra þjóðinni til heilla.
II.
Að kvöldi þriðjudags 20. nóvember 2018
komu sex þingmenn saman í Klaustri,
veitinga stað skammt frá Alþingishúsinu.
Þetta voru fjórir forystumenn Miðflokksins:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flokks-
formaður, Gunnar Bragi Sveinsson, fyrsti
varaformaður og þingflokksformaður, Anna
Kolbrún Árnadóttir, annar varaformaður, og
Bergþór Ólason, varaformaður þingflokks.
Þá voru þarna tveir forystumenn þingflokks
Flokks fólksins: Ólafur Ísleifsson þingflokks-
formaður og Karl Gauti Hjaltason, vara-
formaður þingflokks.
Bára Halldórsdóttir sem var stödd í Klaustri
fyrir tilviljun tók upp samtalið með leynd í 3
klst. og 41 mínútu. Í samtali við Stundina
7. desember kom fram að henni blöskraði svo
níðangurslegt tal þingmannanna um konur
og fatlað fólk að hún notaði farsíma sinn sem
upptökutæki. Sjálfri sér lýsir hún sér sem
samkynhneigðri og öryrka.
Að kvöldi miðviku dags 28. nóvember
birtust bútar af samtalinu á vefsíðum DV
og Stundarinnar með mynd af hluta þing-
mannanna. Síðan rúllaði málið af stað og
skildi eftir sig pólitískt svöðusár.
Fyrir utan að tala niður til kvenna með skít-
legum orðum voru tvö mál þingmönnunum
ofarlega í huga.